Fréttatíminn - 28.11.2014, Síða 76
76 matur & vín Helgin 28.-30. nóvember 2014
A ð sögn Guðríðar Maríu, framkvæmdastjóra Naut-hóls, hefur þriggja rétta
jólaseðillinn notið mikilla vinsælda
síðustu ár. Hann verður á boðstól-
um frá og með 3. desember í hádeg-
inu og á kvöldin. „Matreiðslumenn
okkar hafa lagt mikinn metnað í
samsetningu seðilsins. Forrétt-
irnir eru blandaðir en þar er með-
al annars að finna dýrindis hrein-
dýraborgara, rauðbeðugrafinn lax
og hægeldaða andabringu. Í aðal-
rétt er svo val um kalkúnabringu
eða blálöngu með tilheyrandi með-
læti. Hádegin í desember hafa verið
þétt setin undanfarin ár og búumst
við ekki við neinni breytingu á því
þetta árið.“
Jólahátíð um helgar
Á föstudags- og laugardagskvöldum
er boðið upp á stærri jólaveislu en þar
er að finna fjölbreytt úrval forrétta,
millirétta, aðalrétta og eftirrétta.
Þó svo að jólaveislan sé í formi hlað-
borðs þá sjá þjónarnir um að bera
matinn á borð til gestanna. Vinsæld-
ir jólaveislunnar sjást líklega best á
því að búið er að bóka næstum því
allar helgar fram að jólum en Guð-
ríður María segir þó að enn sé eitt-
hvað laust síðustu helgina fyrir jól.
Jólabrunch á sunnudögum
„Sunnudagsbrunchinn okkar er
ávallt vinsæll og verður hann með
sérstöku jólaívafi frá og með næsta
sunnudegi og út allan desember.
Það jafnast ekkert á við að eiga
notalega stund með fjölskyldu og
vinum í desember og þá er jóla-
brunch tilvalinn til að gera vel við
sig í mat og drykk í skammdeginu,“
segir Guðríður María. Á disknum
verður meðal annars að finna eggja-
muffins með kardimommukeim, ris
a la mandle, rauðbeðugrafinn lax og
fleira góðgæti sem gerir máltíðina
einstaklega eftirminnilega.
Hægt er að panta borð í gegnum
síma eða á heimasíðu Nauthóls:
www.nautholl.is
Unnið í samstarfi við
Nauthól
Veitingastaðurinn Nauthóll mun skarta sínu fegursta á aðvent-
unni. Glitrandi jólatré og seríur fá að njóta sín í því einstaka
umhverfi sem Öskjuhlíðin og Nauthólsvíkin bjóða upp á. Jóla-
ilmurinn verður svo ekki langt undan en sannkölluð jólaveisla
verður á Nauthól í margvíslegu formi allan desember.
Jólastemning
á Nauthól
í töfrandi
umhverfi
Þriggja
rétta
jólaveisla
Forréttir
Hreindýraborgari,
gráðostadressing, epli og
klettasalat
Danskt hænsnasalat, grill-
aður aspas og hráskinka
Rauðbeðugrafinn lax,
kryddjurtamæjó og rifin
rauðbeða
Hægelduð andabringa,
appelsínu- og fennel salat
Aðalréttur
Val um eftirfarandi:
Grilluð kalkúnabringa,
sætkartöflumús, grillaður
aspas, sveppir, nípa og
villisveppasósa
Blálanga, smælki, bak-
aðar rauðbeður, grænkál,
paprika, brúnað smjör og
ferskar kryddjurtir
Eftirréttur
Bláberjakaka með hesli-
hnetum, sítrus og súr-
mjólkursorbet
Dagbjört Fjóla veit-
ingastjóri, Ari Sylvain
yfirmatreiðslumaður,
Ragnar Guðmundsson
matreiðslumaður og
Gísli Jensson yfirþjónn
munu sjá um jóla-
veisluna á Nauthól í
desember.
Girnilegur forréttaplatti: Rauðbeðugrafinn lax, danskt hænsnasalat, hægelduð andabringa og hreindýraborgari.
Boðið er upp á himneska bláberjaköku í eftirrétt á þriggja rétta jólamatseðli Nauthóls.