Fréttatíminn - 28.11.2014, Blaðsíða 96
HELGARBLAÐ
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
Margrét Vera Mánadóttir
Bakhliðin
Grettin og
góðhjörtuð
Aldur: 17 ára.
Maki: Já, á yndislegan kærasta, hann
Einar Vigni.
Börn: Engin.
Menntun: Er í Menntaskóla Borgar-
fjarðar.
Starf: Ekkert í augnablikinu.
Fyrri störf: Bónus og Kaupfélagið á
Hólmavík.
Áhugamál: Leiklist, tónlist, dans,
gítarinn og að rugla í fjölmiðlum.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Stjörnuspá: Þú ert í innkaupaskapi í
dag. Ef þú horfist í augu við þá reynast
þeir ekki eins hræðilegir og þér fannst
í fyrstu.
Hún Margrét Vera er mesti snillingur sem ég hef hitt, alltaf hress og alltaf glöð,“
segir Ásdís Jónsdóttir, vinkona
Margrétar. „Hún finnur það góða
í öllum og kennir fólki að taka
lífinu með opnum örmum og bros
á vör. Hún getur gert ótrúlega
marga svipi á andlitið, fett upp á
ennið og ekki má gleyma líka að
hún er ótrúlega flink á að spila á
gítar,“ segir Ásdís.
Margrét Vera Mánadóttir er 17 ára
Strandastúlka frá sveitabænum Heið-
arbæ í Strandasýslu. Hún er í Mennta-
skóla Borgarfjarðar. Í vikunni komst
Margrét í fréttirnar þegar leikfélag
Menntaskóla Borgarfjarðar sendi frá sér
fréttatilkynningu þar sem því var haldið
fram að Margrét væri dóttir Richard
O´Brien, höfundar söngleiksins Rocky
Horror Picture Show. Tilkynningin var
uppspuni en náði að blekkja blaðamann
Fréttablaðsins, sem tók viðtal við Mar-
gréti Veru í góðri trú. Tilkynningin var
gerð til þess að vekja athygli á uppfærslu
skólans á söngleiknum, þar sem Margrét
fer með eitt aðalhlutverkanna.
Hrósið ...
... fær íslenska kokka-
landsliðið sem hreppti
tvö gull í heimsmeistara-
keppninni sem fram fór í
Lúxemborg í vikunni.
Flottir
plötuspilarar
Laugavegur 45
Sími: 519 66 99
Vefverslun: www.myconceptstore.is
Verð 39.900,-
NÝ SENDING