Þjóðlíf - 01.04.1991, Side 15
Á einumgeisladiski cr jafnvelhægt aðgeyma allanþann hugbúnaðsem „venjulegur“notandiþarf
nokkurn tíma að nota.
aðeins unnið með einn disk í senn eins og
um harða diska væri að ræða en skiptir á
milli þeirra á u.þ.b. 6 sek. sem er svipaður
tími og tekur að skipta af hörðum diski
yfir á diskling. Þá er sækitími (sá tími sem
það tekur að staðsetja gögn á diskinum)
drifsins u.þ.b. 600 millisek, sem er næst-
um þriðjungi styttra en á flestum öðrum
geisladrifum. Þeir PIONEER menn selja
þetta drif semsagt sem alhliða heimilis-
tæki: þ.e. tónlistarspilara og tölvudrif og
gefa kaupendum auk þess ástæðu til að
réttlæta kaupin með öllum þeim fjölda
gagna sem fylgja pakkanum.
Leikjaframleiðendur hafa einnig nýtt
sér þessa fjölgun geisladrifa og end-
urútgefið vinsælustu leiki sína á geisla-
diskum. Sumir ganga þó lengra en aðrir,
t.d. hefur Sierra On-Line gefið út King’s
Quest V, Space Quest IV, og barnaleikinn
Mixed up Mother Goose á geisladiskum
og í stað þess að sá sem leikur leikinn lesi
Með geislavæðingunni gctur venjulegt fólk notað tölvur margfalt meira en áður. Hún geturþýtt
byltingu í lifnaðarháttum nútímafólks.
skilaboð á skjánum hlustar hann á rödd af
geislaspilaranum. Þannig hefur Sierra t.d.
breytt Mixed up Mother Goose þannig að
ólæs börn geta leikið hann með hjálp „tal-
andans“.
Geisladrif eru ekki orðinn staðalbúnað-
ur tölva hér á Vesturlöndum enn sem
komið er en í Japan eru allar tölvur seldar
með geisladrifum. Þar er þróun tölva
komin mun betur á legg en hér vestra og er
því gjarnan litið þangað til samanburðar,
t.d. þegar markaðssetja á hluti eins og
geisladrif og fleira tengt tölvum. Reynsla
Japananna og forskot þeirra á okkur Vest-
urlandabúa í þessum málum gera það að
verkum að japanski markaðurinn er að
verða nokkuð sem framleiðendur vélbún-
aðar eru farnir að nota sem mælikvarða á
hvað muni seljast hér og því eru nýjungar
á okkar mörkuðum gjarnan orðnar frekar
gamlar í hettunni í Japan.
Geisladrif sem þessi eru enn sem komið
er ekki á íslenskum markaði en þeir inn-
flutningsaðilar sem rætt var við töldu sig
geta útvegað þau eftir þörfum. Á Amer-
íkumarkaði eru þau seld á u.þ.b. 1000 dali
og miðað við það listaverð töldu innflytj-
endurnir sig geta útvegað þau og selt á um
80.000 krónur með vks og slíku. En að
sjálfsögðu veltur verðið á gæðum og
möguleikum drifsins sem um ræðir og
auðvitað væri mögulegt að finna þau bæði
ódýrari og dýrari ef vill.
Á tölvusýningu IBM s.l. haust vakti
mikla athygli hugbúnaður á geisladiski
sem gaf upplýsingar um hin ýmsu dýr.
Dýrin voru sýnd bæði á kyrrmyndum svo
og á hreyfimyndum og einnig var hægt að
heyra hvernig hljóð dýrið gefur frá sér.
Með þessu fylgdu síðan lærðar greinar um
viðkomandi dýr á skjánum og ef um var
beðið heyrðist rödd sem bar fram nafn
dýrsins á engilsaxnesku. Ótrúlegt úrval
„dýraskýringa" var á diskinum og flestar
skýringarnar innihéldu hljóð og hreyfi-
mynd. Stór hópur barna var jafnan fyrir
framan þessa tölvu og virtust börnin ekki
hafa minni áhuga á þessu en þeim leikjum
sem boðið var uppá annarsstaðar. Einnig
var á þessari sýningu alfræðisafn á geisla-
diski sem vakti kannski frekar athygli
eldri kynslóðarinnar, enda á ensku og ekki
jafn litríkt.
Möguleikar geislatækninnar á tölvu-
markaðnum virðast vera óþrjótandi
og ættu að geta nýst flestum. Verðið fer
hríðlækkandi og gagnamagnið eykst og
einn góðan veðurdag verður geisladrifið
kannski jafn sjálfsagður búnaður og mús-
in er í dag.
0
ÞJÓÐLÍF 15