Þjóðlíf - 01.04.1991, Qupperneq 20

Þjóðlíf - 01.04.1991, Qupperneq 20
■Hl ERLENT Leitað Stalínmynda Þegar húmaði aö kveldi í Moskvu og erill dagsins var úti, þá dró Jósef Vissaríono- vits Djugasvili, nefndur Stal- ín, sig í hlé, og hvarf gjarnan inn í lokað herbergi og horfði á kvikmyndir. Einræðisherr- ann hafði sérstakt dálæti á myndum úr villta vestrinu, en einnig myndum um hin vold- ugu Sovétríki - og uppáhalds kvikmyndahetja hans var að sjálfsögðu Stalín. Að mati kvikmyndasögufræðingsins André Bazin sannfærðu þær einræðisherrann um „yfir- burði hans“. Og nú hefur kvik- myndasafnið í Munchen tekið saman myndir af þessum toga og sýnt undir heitinu „listasmíðin Stalín". Þessi samantekt hlaut svo mikið lof að kvikmyndasafnið hefur haldið söfnunarstarfinu áfram og keypt upp ógrynni mynda en af nógu er að taka. Fundist hafa myndir í gömlum söfnum t.d. í Búlgaríu og Júgóslavíu, sem ekki var vit- að um. Þá fannst t.d. fjöldi Stalínsmynda í safni sam- bandslýðveldisins Þýska- lands, sem voru frá tímum nasista, þ.e. frá því er þær voru teknar herskildi þegar Kommúnistaflokkur Þýska- lands var bannaður... (Spiegel/óg) Thank You/ Goviernor Ann, FOR PROTECTING OUR CHILDREN [FROM POISONOUS -TOXIC WASTE FAMIUES AGAINS T CONTAMINATEO ENVIRÞW4FNT Foreldrar láta í Ijós þakklæti sitt. Metframleiðsla á sorpi Ríkisstjórinn í Texas í Banda- ríkjunum, hin 57 ára gamla Ann Richards, fékk mikið þakklæti fyrir tiltölulega lítinn verknað á dögunum. Þetta ríki nauta og olíumilljóna- mæringa er lang stærsti framleiðandi sorps í Banda- ríkjunum, en fékk nú fyrst allra ríkja í Bandaríkjunum löggjöf sem á að draga úr að því er virtist endalausri aukn- ingu sorps. Foreldrar í Dayt- on settu upp af því tilefni mikla þakkartöflu (tvisvar sinnum sex metrar) í heiðurs- skyni við æðstu konu ríkisins. Þó gagnrýna margir að árangurinn hafi einungis orð- ið sá að í löggjöfinni stendur að „ekki megi bæta við nýjum öskuhaugum í námunda við skóla og íbúahverfi“... (Spiegel/óg) Úr Stalínmyndinni „Eiðurinn“. Vegvísirfyrir Kaunda Dómarar í hæstarétti Sam- bíu reyna að koma inn lýð- ræðislegri hugsunarhætti hjá hinum forræðissinnaða forseta landsins. Kaunda varð að láta undan kröfum fólksins í landinu um fjölf- lokkalýðræði og kosningar í október á þessu ári, en er ekki sáttur við að hafa þurft að gefa eftir. Flann ætlaði að veikja pólitíska and- stæðinga sína með því m.a. að þrengja að fjölmiðlum í landinu. Þannig gaf hann út fyrirskipun til ríkisfjölmiðla um að þeir mættu ekki segja frá skoðunum og at- höfnum stjórnarandstöð- unnar í landinu. En hæsti- réttur landsins greip í taum- ana og felldi þann úrskurð að Kaunda yrði að taka þessa fyrirskipun aftur, því hún væri „andstæð stjórn- arskránni og lýsti mannfyrir- litningu“... (Spiegel/óg) Afríkubúi næsti aðalritari? „Afríkubúum hlýtur að finnast þeir utanveltu", sagði Pérez de Guellar aðalritari Samein- uðu þjóðanna en hann er sagður óska eftir því að Afr- íkumaður verði eftirmaður hans í embætti. Hann lætur af störfum um næstu áramót. Afríka er sú heimsálfa sem á flest ríki innan Sþ eða 52 af 159 ríkjum. Aðalritarar hafa verið frá Evrópu, Ameríku og Asíu og því þykir mörgum tími til kominn að Afríkumaður setjist í stól aðalritara. Aðal- ritarar hafa ekki verið margir: Norðmaðurinn Tryggvi Lie 1946-1952, Svíinn Dag Hammarskjöld 1953-1961, Burmamaðurinn U Thant 1962-1971, Kurt Waldheim Austurríkismaöur frá 1972 til 1981 og loks Perúmaðurinn Péres de Cuellar sem gegnir embættinu til ársloka. Aðal- ritarinn er kosinn af allsherj- arþingi Sþ, en þó einungis samkvæmt uppstillingarlista sem 15 aðildarríki Öryggis- ráðs Sþ hafa komið sér sam- an um. Þar geta Bandaríkin, Frakkland, Bretland, Kína og Sovétríkin sem eiga fastafull- trúa í ráðinu notfært sér neit- unarvald sem þau hafa í ráð- inu. Þess vegna verður eng- inn aðalritari nema hljóta blessun þessara ríkja... (Spiegel/óg) Pérez de Cuellar. 20 ÞJÓÐLÍF
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.