Þjóðlíf - 01.04.1991, Síða 41
MENNING
METNAÐARFULL
OG GLÆSILEG
BÓK
EFTIR PÉTUR MÁ ÓLAFSSON
Björn Þorsteinsson og Bergsteinn Jóns-
son: íslandssaga til okkar daga. Rvík
1991
Sagt er að hver tími skrifi sína eigin
sögu, sagnfræðin taki mið af þeim
straumum sem leika um höfunda hennar,
svo og því hvert stefni í framtíðinni. Þann-
ig einkenndist hin rómantíska sagnfræði á
íslandi af baráttu þjóðarinnar við erlent
vald; einkunnir sem menn fengu fóru eftir
því hversu vel þeir dugðu í þeirri baráttu.
Fornir kappar voru vændir um landráð
þótt Islendingar þess tíma hefðu kannski
ekki litið á sig sem sérstaka þjóð og sjálf-
stæði í núu'ma skilningi óþekkt hugtak.
Með frelsi undan Dönum breyttust
áherslur, menn fóru að huga að öðrum
þáttum.
íslandssaga til okkar daga eftir Björn
Þorsteinsson og Bergstein Jónsson rekur
eins og nafnið gefur til kynna sögu þjóðar-
innar frá landnámi til nútímans. Af henni
að dæma er samtíminn ákaflega upptek-
inn af stjórnmálum sem síðan snúast eink-
um um efnahagsmál. Höfundarnir leggja
megináherslu á þetta tvennt en annað er
tekið með þegar þurfa þykir og við á.
Þannig verða ýmsir þættir útundan sem á
undanförnum árum hafa rutt sér til rúms í
sagnfræði hér á landi, s.s. hugarfarssaga,
félagssaga, kvennasaga - saga fjöldans.
Þetta gerir bókina dálítið gamaldags. En
þá verður að hafa í huga að þetta er yfir-
litsrit í einu bindi um langt tímabil. í slíku
riti verður að velja einn ákveðinn þráð í
sögunni og er ekki einu sinni hægt að kafa
undir yfirborð hans, aðeins tæpa á því
helsta. Hér er það stjórnmála- og hagsaga.
Höfundarnir neyðast því til þess að fara
fljótt yfir sögu á öðrum sviðum.
Sem dæmi má nefna að endalok Jóns
Arasonar fá drjúgt rými enda skipta þau
máli í stjórnmála- og hagsögu þjóðarinnar
en hins vegar fá atburðir sem gerðust vest-
ur á fjörðum nokkrum áratugum síðar
minni umfjöllun. Þá fylktu venjulegir
bændur liði með sýslumanni sínum, Ara í
Ögri, eltu uppi spænska skipbrotsmenn
og murkuðu úr þeim lífið. Og höfðu að
sögn gaman af. Þannig velja höfundarnir
það sem skiptir máli fyrir heildarmynd
bókarinnar en gera minna úr öðru eða
sleppa því. Með slíkar takmarkanir í huga
verður að lesa bókina Islandssaga til okkar
daga.
Annað sem taka verður með inn í mynd-
ina er að bókin er ekki verk eins manns.
Björn Þorsteinsson féll frá áður en henni
lauk og gengu Bergsteinn Jónsson og
Helgi Skúli Kjartansson frá texta hennar.
Björn var þá búinn með lungann úr sög-
unni fram til síðustu aldamóta sem Helgi
Skúli lagði síðan síðustu hönd á en Berg-
steinn fjallar um þá öld sem nú er að líða.
Fyrir vikið verða ákveðin skil í bókinni.
Bergsteinn hefur að nokkru leyti aðrar
áherslur en Björn og Helgi Skúli, leggur
meira upp úr hreinni stjórnmálasögu þar
sem hlutur einstaklinga verður mikill.
Kaflaskiptin um síðustu aldamót verða
enn skýrari við það að Bergsteinn neyðist
til þess að fjalla ýtarlegar um efni sem
hinir voru búnir að tæpa á í næstu köflum
á undan, t.d. um upphaf ýmissa samtaka.
Bókin er í fjórum hlutum. í hverjum
þeirra eru fjölmargir kaflar sem
skiptast síðan í aðra enn minni. Að auki
eru ýmsar skrár í bókinni og orðskýringar.
Það er því ákaflega þægilegt að fletta upp í
henni og leita að ákveðnum efnisþáttum.
Við fáum greinargóða mynd af stjórn-
mála- og hagsögu Islands, meginlínur eru
raktar og tekið á ýmsum goðsögum sem
lengi hafa lifað með þjóðinni. Lesandinn
kemst að því að frásagnir af landnámi ís-
lands eru ekki heilagur sannleikur heldur
skrifaðar löngu síðar með ákveðna hags-
muni í huga; hann sér einnig að Danir og
einokunarverslun þeirra voru ekki rót alls
ills á sínum tíma heldur áttu innlendir
stórbændur mikla sök á þeirri kyrrstöðu
sem ríkti hér á landi um aldir, þeir högn-
uðust á óbreyttu ástandi og börðust því
gegn eflingu sjávarútvegs.
En Islandssaga til okkar daga er annað
og meira en einungis texti. Bókin er líflega
sett upp, þar er fjöldi skýringarmynda og
þar eru töflur sem auka mjög á gildi bókar-
innar. Einnig er hún ríkulega skreytt
myndum. Hrefna Róbertsdóttir valdi
þær og verður að segjast að þar hefur vel
tekist til. í riti sem þessu er freistandi að
fara hefðbundnar leiðir í myndavali, leita í
aðrar bækur en sneyða hjá söfnum. Það er
ekki gert hér. Hrefna hefur augljóslega
lagt mikla vinnu í að finna ljósmyndir við
hæfi. Þær dýpka meginmálið en þar hjálpa
einnig til góðir og fræðandi myndatextar
Helga Skúla Kjartanssonar.
Islandssaga til okkar daga er metnaðar-
full bók og glæsileg. Þar er augljóslega
ekkert til sparað svo hún megi takast sem
best, t.d. hafa margir af helstu sagnfræð-
ingum þjóðarinnar lagt hönd á plóg. Hún
gefur ágætt yfirlit yfir stjórnmála- og hag-
sögu þjóðarinnar og tæpir á öðru. Hún
tekur ýmsar goðsögur sem dafnað hafa
meðal okkar til endurmats og er ákaflega
læsileg. Bókin er líflega sett upp og þannig
að auðvelt er að leita sér fróðleiks í henni. I
henni eru fjölmargar myndir, töflur og
skýringarmyndir sem gera það að verkum
að gaman er að blaða í henni. Útkoma
íslandssögu til okkar daga er svo sannar-
lega gleðiefni. Það var kominn tími til að
við íslendingar eignuðumst aðgengilegt
og nútímalegt yfirlitsrit í einu bindi um
sögu okkar.
0
ÞJÓÐLÍF 41