Þjóðlíf - 01.04.1991, Blaðsíða 44
KVIKMYNDIR
STJÖRNUR
Uppvakningar (Awakenings) -
★ ★★
Það eru þeir Robin Williams og
Robert DeNiro sem bera hitann og
þungann í kvikmyndinni Uppvakningar,
sem Penny Marshall (Big) leikstýrir.
Samleikur þeirra félaga er á köflum stór-
kostlegur og er ég ekki frá því að DeNiro
hafi frekar átt skilið að fá Óskarinn en
starfsbróðir hans Jeremy Irons. DeNiro
leikur mann nývakinn úr dái eftir fjölda
mörg ár og myndin lýsir hvernig hann
bregst við og aðlagast þessum nýju að-
stæðum. Við fylgjumst með sambandi
læknisins Williams og hinum uppvaknaða
DeNiro á meðan þeir ganga í gegnum end-
urfæðinguna og hvernig þeim tekst að
vekja enn fleiri þyrnirósir aftur til lífs.
Melanie Gríffith íþekktrí stellingu ímyndinni
Bálköstur Hégómans.
Tveir frábærir saman á tjaldinu. Robert DeNiro og Robin Williams íAwekenings.
Bíttu Mig Elskaðu Mig (Atame!)
- ★★★
inum.
Fyrst og fremst verð ég að gagnrýna
íslensku útgáfuna á heiti kvikmynd-
ar spánska leikstjórans Almodovar. Hún
er eflaust ætluð til að trekkja að kallana í
frökkunum sem birtast klukkan fimm á
allar sýningar sem kynntar eru „létt bláar“
eða „erótískar“. Jú vissulega er atburðarás
Atame! nokkuð svæsin á íslenskan mælik-
varða en það er margt fleira sem liggur að
tjaldabaki.
Ungur maður sem dvalið hefur mest allt
sitt líf á geðveikrahæli er látinn laus, þar
sem hann er talinn með öllum mjalla. Svo
virðist þó ekki vera því hann arkar rakleið-
is í nærliggjandi upptökuver þar sem verið
er að filma ódýra hryllingsmynd. Þar fylg-
ist hann gaumgæfilega með aðalleikkonu
myndarinnar sem er eiturlyfjaneytandi og
fyrrverandi klámmyndadrottning. Hann
eltir hana heim og ræðst á hana, lemur og
bindur við rúmið. Nú hafa eflaust margir
hugsað sér gott til glóðarinnar þar sem
„eðlilegasta“ þróun mála væri flott nauðg-
unarsena. En svo verður ekki, heldur játar
hann blíðlega ást sína og spyr hvort að hún
gæti elskað sig. Framvinda mála verður sú
að stúlkan kynnist ekki einungis piltinum
heldur einnig nýjum hliðum á sjálfri sér,
löngu horfnum bak við sukk og ósæmilegt
líferni. Með þeim takast ástir og þau keyra
saman út í sólarlagið.
Almodovar er þekktur fyrir að taka á
viðkvæmum málum með sérkennilegri
blöndu af alvöru og gamansemi og sést það
Madonna snýr baki í kvikmyndaeftirlitið sem
ætlar að banna tónlistarmynd hennar „Fate
ordare“.
Hugljúf mynd sem var á köflum of hæg
en það var þess virði að bíða eftir snillingi
eins og Robert DeNiro sem með hverri
myndinni á fætur annarri sýnir að hann er
besti núlifandi kvikmyndaleikari í heim-
vel í þessari nýju mynd þar sem hann
skoðar okkar dýpstu eðlishvatir þar sem
ástríða og kynhvöt eru ríkjandi.
Sýnd í Háskólabíó.
44 ÞJÓÐLÍF