Þjóðlíf - 01.04.1991, Page 45

Þjóðlíf - 01.04.1991, Page 45
Bálköstur Hégómans (Bonfire of the Vanities) - ★ ★% Það tíðkast nú vestra að gera kvik- myndir byggðar á metsölubókum og hafa margar heppnast vel. Það nægir að nefna metaðsóknarmyndir eins og The Si- lence of ihe Lambs sem Jonathan Dem- me leikstýrir byggðri á bók Thomas Harris og Sleeping with the Enemy með Juliu Roberts í aðalhlutverki. Þess vegna brá flestum í brún hvað nýjasta mynd leik- stjórans hæfileikaríka Brian DePalma gerðri eftir metsölubók Tom Wolfe Bál- köstur Hégómans var misheppnuð. Reyndar það misheppnuð að hún gaf ekki meira í aðra hönd en 15 milljónir dala sem, miðað við svona viðamikla mynd, er kall- að „flopp“ á kvikmyndamáli. Helstu rök manna eru þau að bókin sé mikið betri og að ekki nokkur maður gæti gert henni almennileg skil á tjaldinu, burt- séð frá því að stórleikararnir þrír, þau Tom Hanks, Bruce Willis og Melanie Griffith, sem fara með aðalhlutverkin, finna sig hvergi og ná ekki að sannfæra eða öðlast samúð áhorfandans. En þrátt fyrir misjafna leikstjórn, slæmt handrit og ósannfærandi leik þá er myndin snilldar- vel tekin og er upphafsskotið einstakt. Sjálfur hef ég ekki lesið bókina en ætla mér að gera það eftir að hafa séð myndina því að sagan sem hún byggir á er skemmti- leg og frumleg þótt eitthvað hafi gleymst eða týnst á leiðinni af pappírnum á film- una. Sýnd í Bíóborginni. Sœringamaðurínn III (Exorcist III) - ★★ Þriðja særingamyndin er lítt tengd fyrirrennurum sínum og fjallar í rauninni lítið um særingar yfir höfuð. Hún er fremur mynd um dularfull morð sem öll hafa þau einkenni að það lítur út fyrir að „tvíbura-morðinginn“ hafi fram- kvæmt þau. Gallinn er að tvíbura-morð- inginn var tekinn af lífi fyrir 15 árum. Það er George C. Scott sem fer með hlutverk rannsóknarlögreglumannsins sem reynir að komast til botns í þessu dularfulla máli. Hann skilar hlutverki sínu prýðisvel og virðist engu hafa gleymt. Annar góður, leikarinn Brad Dourif (Childs Play, Fatal Beauty), leikur tvífara morðingjans og minnir hann mig á Jack Nicholson ungan. Rithöfundurinn William Peter Blatty skrifar handritið og leikstýrir. Hann skrif- Leikararnir Tom Hawker og Melanie Griffith gantast hér við leikstjórann Brian De Palma við tökur á myndinni Bálköstur hégómans.. Hin fagra Sherlyn Fenn leikur í mynd um leigumorðingja. aði bókina The Exorcist á sínum tíma en þessi mynd er byggð á annarri sögu eftir hann sem nefnist Legion. Eins og áður segir þá er myndin ekki beint framhald af Særingamanninum II (sem var léleg) en fæst þrátt fyrir það við hin myrku öfl og baráttu góðs og ills. Helmingur myndar- innar gerist í litlum herbergjum með tveimur leikurum og miklum samtölum (ekki ósvipað einföldu sviðsleikriti), sem gerir það að verkum að manni leiðist. Þetta er nú einu sinni hryllingsmynd! Sýnd í Bíóborginni. FRÉTTIR Leikarar sjónvarpsþáttanna Twin Peaks eru að slá í gegn á hvíta tjald- inu og eru það helst Sherilyn Fenn (Au- dry Horn í þáttunum) og Kyle MacLachlan (hin ógleymanlegi Cooper, sérstakur starfsmaður FBI), sem hafa vak- ið hvað mest umtal. MacLachlan leikur einn hljómsveitameðlima The Doors í nýjustu kvikmynd Oliver Stone um hljómsveitina. Hin fagra Fenn er hinsveg- ar skotmark leigumorðingja í mynd sem ber nafnið Hit Man. Persónan sem Sheril- yn leikur er haldin agoraphobiu sem er andstæða innilokunarkenndar, eða ofsa- hræðsla við stór, opin svæði. Kvikmyndaeftirlitið í Ameríku hefur sett „bannað innan 17 ára“ á kynningamynd sem auglýsir komandi tónleikamynd Ma- donnu sem gengur undir nafninu Truth or Dare. Hvernig verður myndin sjálf!? Leikstjórinn Roland Joffe (Trúboðinn, The Killing Fields) er nú kominn til Kal- kútta þar sem hann leikstýrir Patrick Swayze (sem virðist skyndilega vera orð- inn virtur leikari) í mynd byggðri á skáld- sögu Dominique Lapierre, City of Joy. Farið í friði. Dignus ÞJÓÐLÍF 45

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.