Þjóðlíf - 01.04.1991, Síða 51
Höfum við efni á því að auka ekki verulega fjárfestingu í menntakerfi og samgöngum?
sýni besta afkomu, vegna þess að þau
byggja starfsemi sína að verulegu leyti á
kunnáttusemi af þessu tagi. Það sé ekki
lengur aðalatriðið að geta framleitt
óhemju magn á lágu verði, þeir beri mest
úr býtum sem koma auga á ný tækifæri og
finna nýjar, snjallar lausnir. Gömul vefn-
Reich segir að í flestum
framleiðslu og þjónustu-
greinum byggist sífellt
stærri hluti af vöruverði
á hugviti og kunnáttu-
semi starfsmanna.
aðarfyrirtæki halda velli með því að nýta
uppsafnaða sérþekkingu til þess að fram-
leiða sérhannaðan vefnað fyrir bílsæti,
húsgögn, regnfatnað og fleira. I tölvu-
framleiðslu afli þeir mestra tekna sem sér-
hanni hugbúnað sniðinn að ákveðnum
þörfum. Vélbúnaður og vinnslukerfi í
tölvum séu aftur á móti að verða öll eins,
sama hvert vörumerkið sé.
g tölvurnar eru gott dæmi um það að
skil milli vöruog þjónustu eru að
mást út. Við tölvuvæðingu fer til dæmis
mestur kostnaður í forritun og uppsetn-
ingu kerfisins, ekki sjálfar vélarnar.
Framleiðslukostnaður venjulegrar borð-
tölvu er aðeins 10 til 15 prósent af endan-
legu verði, hitt fer í rannsóknir, hönnun
og sölu. í lyfjaiðnaði, tölvuiðnaði og stál-
iðnaði felst stærstur hluti söluverðs á
kostnaði við rannsóknir, hönnun, sölu og
þjónustu, ekki kostnaði við sjálfa vöru-
framleiðsluna. Reich segir að í flestum
framleiðslu og þjónustugreinum byggist
sífellt stærri hluti af vöruverði á hugviti og
kunnáttusemi starfsmanna. Þessvegna sé
Fyrir hagsæld hvers
lands skiptir það
höfuðmáli hvernig hlúð
er að kunnáttu og
hugviti þjóðarinnar,
minna veltur á því hver
hefur eignarhald á fjár-
magni.
hugvitið dýrmætasta eign hverrar þjóðar,
það auki framleiðni og skili mestum arði.
Og hugvit þjóðarinnar verði ekki keypt og
flutt úr landi af erlendum fjármagnseig-
endum.
Vélar slitna, hráefni klárast, og auðlind-
ir ganga til þurrðar, —en hugvit og kunn-
átta í að finna snjallar, nýjar úrlausnir
eykst með æfingu og reynslu segir Robert
Reich. Hann telur að með skóla- og sam-
göngukerfi sínu skapi þjóðfélög forsendur
fyrir annaðhvort vaxtarspíral eða víta-
hring:
Alþjóðlegt fjármagn sæki í hátæknifjár-
festingar, þar sem höfð sé hliðsjón af
menntunarstigi og kunnáttu í viðkomandi
landi. Slíkum fjárfestingum fylgi aftur
starfsþjálfun og aukið hugvit - og þannig
koll af kolli.
Lítil opinber fjárfesting í menntamál-
um og samgöngukerfi orsaki aftur á móti
vítahring sem valdi því að við fjárfestingar
sé fyrst og fremst höfð hliðsjón af ódýru
vinnuafli í landinu. Það valdi minnkandi
ríkistekjum, enn lélegri menntun, og svo
koll af kolli.
eich hagfræðiprófessor segir að
hægri og vinstri menn deili um keis-
arans skegg. Þjóðarauður velti ekki lengur
á því hve mikið fjármagn auðmenn hafi
undir höndum eða hversu vel gangi að
jafna skattatekjum til almennings. Fyrir
hagsæld hvers lands skipti það höfuðmáli
hvernig hlúð sé að kunnáttu og hugviti
þjóðarinnar, minna velti á því hver hafi
eignarhald á fjármagni. Reich spyr því:
Höfum við efni á að sleppa því að auka
verulega fjárfestingu í menntakerfi og
samgöngum?
0
ÞJÓÐLÍF 51