Þjóðlíf - 01.04.1991, Síða 52
VIÐSKIPTI
Efasemdir um
dýrar patriotflaugar
Þær voru margsinnis út-
nefndar sem sigurvegarar
Persaflóastríðsins og því
haldið fram að þær hefðu sótt
tuga eldflauga Husseins til
himins. Og þeim er þakkað
að ísrael svaraði ekki Scud-
eldflaugaárásum fraka. Engu
að síður er því nú haldið fram
að þær hafi ekki náð nándar
nærri jafnmiklum árangri og
Pentagon ráðuneytið hefur
haldið fram. Herforingjarnir
tilkynntu stoltir að af 80 Scud-
flaugum Husseins hefðu 49
verið skotnar niður af Patriot-
flaugum, en 50 verið miðað á
þær, þ.e. að aðeins ein hefði
misst marks. Pentagon hefur
haldið nákvæmri tölu leyndri,
en sérfræðingar telja nú að
þær hafi ekki verið 50 heldur
160. Hver þeirra kostar 1.3
milljónir dollara eða um 75
milljónir íslenskar krónur.
Flestar Patriotflaugarnar hafi
sprengt sig sjálfar á leiðinni
að meintum óvinaflaugum.
William Safire sérfræðingur
skrifar í New York Times að
Patriot flaugarnar hafi verið
mun seinheppnari; flestar
þeirra sem hafi náð markinu,
hafi hitt á búk Scud flauganna
en ekki hitt á sprengihausinn.
Þess vegna hafi Scud flaug-
amar sprungið niðri á jörðu. í
rauninni hafi Patriot flaugarn-
ar því aðeins breytt stefnu
Scud flauganna. Það hafi
ekki alltaf verið til hins betra;
Scud-flaug hafi t.d. eftir
árekstur við Patriot flaug lent
á herbúðum Bandaríkja-
manna í Saudi Arabíu og
drepið 28 hermenn — það
var mesti mannskaði sem
Scud flaugar ullu í striðinu.
Þessir gagnrýnu sérfræð-
ingar sem til er vitnað halda
því fram að hagsmunaaðilar í
hergagnaiðnaði, sérstaklega
úr SDI, stjörnustríðsáætlun-
inni, hafi gefið tóninn um
ágæti Patriot flauganna, en
orðspor þeirra hafi minna
með veruleikann aö gera...
(Spiegel/óg)
Eftir Scudflaugina sem lenti á herbúðum Bandaríkjamanna í Dharan í
Saudi Arabíu.
Olíuframleiðsla í Sovétríkjunum.
Bjarga olíuframleiðslunni
Til að hindra stöðugan sam-
drátt í olíuframleiðslu sinni
hyggst Moskvustjórn setja
790 milljarða kr. til þess að
endurnýja olíulindir og
-vinnslu í Sovétríkjunum. Eftir
þriggja ára fjárfestingar-
stöðvun eru olíuvinnslustöðv-
arnar svo illa farnar, að fram-
leiðslan á síðasta ári hefur
aldrei verið minni frá því á ár-
inu 1978. Nýverið lét olíusér-
fræðingur frá Síberíu í Ijós þá
skoðun í Prövdu að ef ekkert
yrði gert til þess að forða olíu-
iðnaðinum frá hruni þyrftu
Sovétríkin að flytja inn olíu í
töluverðu magni þegar á ár-
inu 1993. En nú virðast stjórn-
völd vera staðráðin í að forða
olíuiðnaðinum frá hrörnun og
samdrætti...
(Spiegel/óg)
BMW
Benz
Með nýju S-gerðinni af
Mercedes Benz hefur enn
meiri harka færst í sam-
keppnina í lúxusbílafram-
leiðslu. BMW óttast um sölu
lúxusbíla frá sér og nokkrum
mánuðum áður en S-gerðin
af Benz var kynnt byrjaði að
dragast saman sala á lúxus-
gerð BMW. Og í kjölfarið
réðst BMW gegn keppinautn-
um með óvenjulegri hörku. í
heilsíðuauglýsingum í þýsk-
um blöðum og tímaritum
hæddist BMW að of stórum
bílum, talaði um „bíla í yfir-
stærð“, „ofaukin kíló og senti-
metra“ o.s.frv. Slíkir bílar,
sagði BMW, henta ekki leng-
ur í borgum okkar þar sem er
mikil umferð og takmörkuð
bílastæði. Hvort BMW hafi
hins vegar tekist að sannfæra
WELCHE GROSSE
HAT EIN AUTOMOBIL
MITFORMAT?
Auglýsingin frá BMW.
kaupendur um að skynsam-
leg stærð á traustum bílum sé
heppilegri virðist vafa undir-
orpið. Meðan BMW seldi 45
þúsund bíla af lúxusgerð
sinni á síðasta ári er reiknað
með að Benz selji 50 þúsund
af S-gerðinni á þessu ári. Og
á næsta ári reiknar Benz með
að selja á milli 80 og 90 þús-
und bíla af þessari gerð...
(Spiegel/óg)
52 ÞJÓÐLÍF