Þjóðlíf - 01.04.1991, Page 57
Skoskt og írskt viskí erað öllu jöfnu bruggað úr gerjuðu byggi en bandarískt viskí er hins vegar gerjað að 51
hundraðshluta úr maís. Eimingin fer fram ígríðarstórum koparkerjum.
Hver er munurinn á viskíi
og búrbóni?
Það vefst fyrir mörgum
manninum að skilja hvaða
munur er á hinum ýmsu teg-
undum eðalvína. Hvaða
munur er til dæmis á skosku,
írsku og bandarísku viskíi?
Við leiðum lesandann í nokk-
urn sannleika um það mikil-
væga mál.
Sögu viskísins má rekja ein
áttahundruð ár aftur í aldir.
Einhvern u'ma á 14. öld settust
nokkrir írar að á Kintyreskaga
í Vestur-Skotlandi. Frá þeim
stað breiddist um allt Skotland
sá siður að brugga það sem
kallað var á þessum slóðum
usquebaugh, sem einnig var
stafsett uisge beatha. Það er
gelíska og merkir lífsins vatn,
rétt eins og okkar ágæta áka-
víti.
Skoskt viskí er einungis
framleitt í Skosku hálöndun-
um og er gerjað úr spíruðu
byggi sem er þurrkað yfir mó-
reyk. Þannig öðlast byggið
hinn sérkennandi keim, og
nefnist þá byggmalt (malt er
spírað og þurrkað bygg).
Byggmaltið er blandað vatni
og það látið gerja. Að gerjun
lokinni er lögurinn eimaður
tvisvar sinnum í frumstæðum
eimingartækjum yfir opnum
eldi, en sú aðferð þykir gefa
mun betra viskí en ef notuð
eru lokuð, nýtískuleg eiming-
artæki. Eimaður vínandinn er
því næst látinn fyrnast í ámum
og eftir fjögurra ára fyrningu
fæst loks hið víðfræga maltvis-
kí Hálandanna. Best þykir að
láta fyrninguna fara fram í eik-
artunnum undan sjerríi en
einnig þykir gott að nota eikar-
tunnur sem hafa verið brennd-
ar að innan þannig að viðurinn
hafi kolast eilítið.
írskt viskí er bruggað bæði
úr möltuðu og ómöltuðu byggi
og stundum er það blandað
bæði hveiti og höfrum. írska
viskíið er fyrnt (lagerað) með
því að láta það standa í ámum
líkt og í Skotlandi og í Amer-
íku, en fyrningin varir yfirleitt
lengur hjá írunum.
Sögu bandarísks viskís má
rekja aftur til 1789 en þá var
það fyrst framleitt í Búrbóns-
sýslu (Bourboun County) í
Kentucky, sem síðan telst
upprunahérað flestra banda-
rískra viskítegunda. Búrbóns-
nafnið er að sjálfsögðu dregið
af heiti sýslunnar. Samkvæmt
skilgreiningu er búrbón viskí-
tegund sem er framleidd úr að
minnsta kosti 51 hundraðs-
hluta maískorns. Önnur meg-
ingerð bandarísks viskís,
rúgviskíið, er hins vegar gert
úr minnst 51 hundraðshluta
rúgs.
Skoskt viskí skal vera
minnst þriggja ára þegar það er
sett á markað og margir vín-
framleiðendur selja fram-
leiðslu sína 3-5 ára gamla.
Maltviskí batnar við geymslu í
tólf ár og jafnvel lengur.
Bandarískt viskí, búrbón,
skal vera að minnsta kosti fjög-
urra ára þegar það er sett á
markað.
Kanadískt viskí er bruggað
úr maís að viðbættum rúgi,
hveiti og byggmalti og er
venjulega fyrnt í 6-12 ár. Fyrn-
ingin er lykilatriði varðandi
gæðin og gildir þá einu hvaða
tegund viskís á í hlut.
(Byggt á grein í marshefti 111-
ustreret videnskab (1991) og
Vöruhandbók Jóns E. Vest-
dals.)
/-----------------\
Heitur matur, súpur,
smáréttir og kaffi
(Expresso og Cappuccino).
Meðlæti og smurt brauð
i frábæru verði.
Islenskir réttir
Thailenskir réttir
Franskir réttir
ÞJÓÐLÍF 57