Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.09.2009, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 24.09.2009, Blaðsíða 4
4 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 38. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, Sími 421 0000 Fax 421 0020 Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Blaðamaður: Ellert Grétarsson, sími 421 0004, elg@vf.is Auglýsingadeild: Gunnar Einarsson, sími 421 0001, gunnar@vf.is Útlit, umbrot og prentvistun: Víkurfréttir ehf. Hönnunardeild Víkurfrétta: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, steini@vf.is Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0011, thorgunnur@vf.is Skrifstofa Víkurfrétta: Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0009, rut@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf. Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is Afgreiðsla Víkurfrétta er opin alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17. Athugið að föstudaga er opið til kl. 15. Með því að hringja í síma 421 0000 er hægt að velja beint samband við auglýsingadeild, fréttadeild og hönnunardeild. FRÉTTAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN ER Í SÍMA 898 2222 VÍKURFRÉTTIR EHF. Hegn ing ar laga brot um fækk aði á milli ára í ágúst í um dæmi lög regl- unn ar á Suð ur nesj um. Þau voru 78 nú en 90 á síð asta ári. Um ferð ar laga brot um fækk aði einnig á milli ára. Alls fékk 401 öku mað ur sekt af þeim sök um í ágúst síð ast- liðn um sam an bor ið við 663 í sama mán uði 2008. Öku- menn virð ast því vera farn ir að gæta sín bet ur á hraða- mynda vél un um en með til- kom þeirra jókst gríð ar lega fjöldi þeirra öku manna sem voru „napp að ir“ fyr ir hraðakst ur. Á sama tíma bili fækk aði fíkni efna brot um í um dæm inu úr 20 í 12. Þetta kem ur fram í töl fræði rík- is lög reglu stjóra. Í henni kem ur fram að fjöldi inn brota hafi ver ið 2,457 fyrstu átta mán uði árs ins. Það jafn gild ir 300 inn- brot um á mán uði eða um 10 brot um á dag. Aukn ing inn- brota á milli ára nem ur hátt í 30%, af því er þar kem ur fram. Tíð ar frétt ir af inn brot um hafa ver ið í fjöl miðl um und an far ið en þjófa gengi hafa far ið ráns- hendi um höf uð borg ina. Sam kvæmt upp lýs ing um frá lög regl unni á Suð ur nesj um hef ur dreg ið úr þjófn að ar- brot um í um dæmi henn ar eft ir því sem lið ið hef ur á árið. Sem dæmi má nefna að í jan ú ar komu 24 þjófn að ar- mál inn á borð lög regl unn ar á Suð ur nesj um sam an bor ið við fimm mál í ágúst síð ast liðn um og átta í júlí. -með an þjófa gengi fara ráns hendi um höf uðu borg ina Þjófn að ar brot um fækk ar á Suð ur nesj um Borið hefur á því að fólk komi með heimilissorp og jafnvel garðaúrgang í endurvinnslu-móttöku Dósasels við Iðavelli í Reykjanesbæ. Dósasel tekur eingöngu við skila- gjaldsskyldum drykkjarumbúðum þ.a.e.s drykkjum tilbúnum til neyslu að undanskildum mjólkurvörum Hanna Andrésdóttir hjá Endur- vinnslunni, sem Dósasel er móttökuaðili fyrir, segir að því miður séu að myndast biðraðir í Dósaseli þegar upp úr dósa- og flöskupokunum séu að koma annað en greitt er skilagjald fyrir. Dósasel er vinnustaður þroskahefta og vinnur þar yndislegt fólk sem vill allt fyrir alla gera. Fólk er hvatt til að koma aðeins með skilagjaldsskyldar umbúðir, það flýtir fyrir allri afgreiðslu og styttir biðraðir. Ekki þarf lengur að telja og flokka dósir heldur aðeins að koma með þær HEILAR. Ljósmynd: Ellert Grétarsson EKKERT HEIMILISSORP Í DÓSASEL - ENGAR BIÐRAÐIR Gunnar Birgir Birgisson er Víðismaður ársins. Viðurkenning þessi er veitt til minningar um Júlíus Baldvinsson, fyrrverandi leikmann og formann Víðis. Þetta er í sjöunda sinn sem Víðismaður ársins er valinn. Viðurkenningin er veitt einstaklingi sem ættingjar Júlíusar telja er hafa skarað fram úr á einhvern hátt, og vilja heiðra þann einstakling fyrir framlag hans til Knattspyrnufélagis Víðis. Lokahóf Víðis fór fram um liðna helgi en þar sem Gunnar Birgir var staddur í Englandi á leik Manchester United og Manchester City var afhending á verðlaunagripum geymd fram á síðasta þriðjudagskvöld. Þá komu Víðismenn Gunnari á óvart með þessum skemmtilegu fréttum. Gunnar var glaður með útnefninguna og mun halda áfram grjóthörðum stuðningi við sína menn í Víði eins og mörg undanfarin ár. Gunnar Birgir er Víðismaður ársins Karl Júlíusson afhendir Gunnari bikar með nafnbótinni Víðismaður ársins. Ljósmynd: Hilmar Bragi Bárðarson

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.