Frjáls verslun - 01.03.2013, Blaðsíða 28
28 FRJÁLS VERSLUN 3. 2013
skoðun
Ásta Bjarnadóttir segir réttan undirbúning mikilvægan í tengslum við starfsmannakann-
anir. Forðast skuli að ýta undir
andrúmsloft þar sem litið er á
könnunina sem tækifæri til að
kvarta eða að allt sem óánægja
er með verði lagað strax. Til að
væntanleg könnun skapi réttar
væntingar þarf að kynna hana
sem lið í stöðugu samtali og sam-
starfi starfsmanna og stjórnenda.
Hún segir þátttöku allra eða
langflestra starfsmanna í könn-
uninni vera grundvallaratriði sem
og að þeir fái kynningu á nið-
urstöðum. „Það má alls ekki fela
slæmar niðurstöður en þá hyrfi
allur vilji til samtals af þessu tagi.“
Ásta segir að ef niðurstöður
komi mönnum á óvart bendi
það til þess að það hafi verið
mikilvægt að gera könnunina
þar sem viðhorf starfsmanna hafi
ekki verið þekkt. „Niðurstöður
ættu í rauninni aldrei að koma á
óvart og það ætti að vera liður í
daglegri vinnu að tala saman á
sömu nótum. Það er vísbending
um að starfsmenn geti ekki verið
hreinskilnir við stjórnendur ef þeir
leggja ofuráherslu á nafnleynd
og eru hræddir við að svara
könnununum. Það eru stjórnend-
ur sem geta haft mest áhrif á
niðurstöður starfsmannakannana.
Hegðun þeirra hefur mest áhrif
á hvernig starfsmönnum líður í
vinnunni og þeir geta stýrt mjög
mörgum af þeim breytum sem
hafa áhrif. Viðhorf millistjórnenda
til vinnustaðarins setur efri mörk á
viðhorf starfsmanna.“
Starfsmannakannanir
sem skila árangri
dr. ásta Bjarnadóttir
– ráðgjafi hjá Capacent
MANNAUÐS-
STJÓRNUN
Hæstiréttur kvað ný -lega upp dóm í máli þar sem var fjallað um frádráttarbærni
vaxta af lánum sem félag
tók til að kaupa annað félag.
Niðurstaðan var sú að vextir af
slíkum lánum væru ekki frádrátt-
arbærir til skatts eftir að þessi
félög höfðu verið sameinuð.
Þessi niðurstaða leiðir hugann
að því hversu mikilvægt það er
að túlkanir á reglum skattalaga
séu skýrar og þeim sé ekki
breytt eftir á.
Það hefur tíðkast mjög lengi
að eignarhaldsfélög hafi keypt
rekstrarfélög og fjármagnað
kaupin með lánsfé að meira
eða minna leyti en vextir af
slíkum lánum eru frádráttarbær-
ir hjá eignarhaldsfélögunum
sjálfum. Það má líka samskatta
félög sem þannig háttar um
þannig að tap sem myndast í
móðurfélaginu vegna vaxt anna
jafnast á móti hagnaði í rekstrar -
félaginu. Í mörgum til vikum hátt -
aði hins vegar þann ig til að þessi
félög voru sam einuð og þá var
það oft að kröfu bankanna eða
annarra lánar drottna. Skattyfir-
völd gerðu ekki athugasemdir
við þessa tilhögun um árabil
og stjórnendur fyrirtækjanna
töldu því að ekki léki vafi á því
að vaxtagjöldin væru eftir sem
áður frádráttarbær til skatts.“
Margret segir að nú stefni í
að síðbúin túlkun skattyfirvalda
leiði til þess að allmörg fyrir-
tæki, sem þegar hafa gengið í
gegnum fjárhagslega endur-
skipulagningu, standi frammi
fyrir endurálagningu skatta upp
á hundruð milljóna eða jafnvel
milljarða króna.
„Þessi fyrirtæki sem flest eru
nú í eigu nýrra eigenda – nýju
bankanna, lífeyrissjóða eða
einstaklinga – munu í einhverj-
um tilvikum ekki standa undir
þessum breyttu forsendum.
Þetta er áminning til okkar um
að tímanleg og vönduð túlkun á
skattareglum er ein af forsend um
þess að fyrirtæki búi við þann
stöðugleika sem er for senda alls
heilbrigðs rekstrar.“
margret flóvenz
– stjórnarformaður kpmgEndurskoðun
Mikilvægi vandaðrar
túlkunar á skattareglum
Fríverslunar-hvað?
árni þór árnason
– stjórnarformaður oxymap ehf.
FYRIRTÆKJA-
REKSTUR
Nokkur umræða á sér núna stað vegna við ræðna Evrópu og Bandaríkjanna um
frí verslunarsamning en það sem
skiptir öllu máli fyrir Íslendinga
eins og í öllum viðskiptum er að
kaupa ódýrt og selja dýrt. Það
eru samt ljón í veginum eins og
samkeppni og sölumagn sem
geta haft mikil áhrif.“
Austurbakki setti árið 1982 upp
innkaupafyrirtæki í Kaliforníu
í Bandaríkjunum til að kaupa
banda rískar vörur beint frá fram -
leiðendum. Faðir Árna Þórs, Árni
Árnason, tók að sér að koma
því á fót og rak í um 20 ár. Árni
Þór segir að venjulega leiðin
hafi falist í að kaupa vörur hjá
Norður landa skrifstofu sem síðan
fór í gegnum Evrópuskrifstofu
og pantaði þaðan frá Banda -
ríkjunum.
„Þarna spöruðust viðbótargjöld
og tollar sem gátu numið allt frá
20%-40% samkvæmt varlega
reiknuðum gömlum tölum sem
ég hafði við höndina. Einnig gat
þetta stytt afgreiðslutíma um allt
að mánuð.
Við eigum að hugsa fyrst og
fremst um okkur sjálf og bæta
inn kaupa reglur og gera þær
hlið hollari ríkjum eins og Banda -
ríkjunum og Asíulöndum. Með
því að kaupa beint frá aðalfram-
leiðslulöndum heimsins erum við
að kaupa eins ódýrt og hægt er
og spara þannig gjaldeyri.
Það ætti að forðast að fara í
gegnum tvítollun í Evrópu, sem
nú orðið framleiðir lítið og er í
flestum tilfellum óþarfa milliliður
og meira upptekin af grænu
hagkerfi og kolefnissköttum. Það
er líka búið að flæma margar
atvinnugreinar úr álfunni og efla
þar með atvinnuleysi.
Við getum svo selt okkar fram -
leiðsluvörur á dýrustu markaði
heims eins og til dæmis til
Evrópu.“
Betri kjör
á fjármögnun
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
J
ó
n
s
s
o
n
&
L
e
’m
a
c
k
s
•
jl
.i
s
•
s
Ía
Skilmála og nánari upplýsingar má finna á landsbankinn.is eða hjá Bíla- og tækjafjármögnun Landsbankans í Borgartúni 33.
* Vildarkjör til Vörðufélaga og núverandi skilvísra viðskiptavina Bíla- og tækjafjármögnunar.
** Fylgja öllum lánum yfir 500.000 kr. sem tekin eru frá 10. maí til 7. júní.
» 9,4% óverðtryggðir –
breytilegir vextir*
» Lægri lántökugjöld*
» 10.000 Aukakrónur**
» Lánstími er allt að
7 árum
» Lánshlutfall er allt
að 75%
Landsbankinn býður upp á tvær leiðir, bílasamning eða bílalán, til að eignast
nýjan eða notaðan bíl, ferðavagn eða hjól. Vörðufélagar njóta betri kjara.
9,4%
vextir 10.000Aukakrónur