Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2013, Page 74

Frjáls verslun - 01.03.2013, Page 74
74 FRJÁLS VERSLUN 3. 2013 L eiðtogar þurfa oftar en ekki að taka fjölda afdrifaríka ákvarð- ana á hverjum degi í sínum störfum. Þær ákvarðanir geta haft alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir þá sjálfa og alla hagsmunaaðila; starfsmenn, viðskiptavini, hlut- hafa og svo mætti lengi telja. Sá leiðtogi sem stendur föstum fótum á jörðinni, þekkir gildi sín og lífsreglur, veit hvað hvetur hann áfram, byggir upp fólkið í kringum sig og nær jafnvægi á öllum sviðum lífs síns er sannur leiðtogi og trúverðugur sem slíkur. Þess vegna fylgir fólk honum fúslega í átt að sameiginlegri sýn, þrátt fyrir erfiðar og stund- um óvinsælar ákvarðanir, en ekki af því að það á að gera það. Slíkur leiðtogi nær meiri árangri en hinir „hefðbundnu“ leiðtogar sem krefjast fylgis í skjóli stöðu sinnar og setja eigin hag framar hag heildarinnar. Byggt á reynslunni Eins og svo oft tíðkast í bókum sem þessum þá ræddu höfund- ur og meðhöfundur hans við 125 þekkta og reynda leið- toga um leiðtogahlutverkið og hvað reynst hafði þeim best í vegferð þeirra sem forystumenn fyrirtækja. Það er út frá þessum samtölum sem dregin eru sam- an lykilatriði bókarinnar sem kristallast í Fimm lykilþáttum sannrar forystu (sjá mynd). Þessir leiðtogar sem deildu reynslu sinni eru engir aukvisar og sagan af leið þeirra í átt að því að verða sannir leiðtogar er sögð í bókinni. Þessar sögur eru persónulegar og einlægar og fjalla oftar en ekki um mistök þeirra og hvað þeir lærðu af þeim. Þeir sem sögu sína segja eru meðal annarra Warren Benn- is, sir Adrian Cadbury, George Shultz (fyrrverandi utanríkisráð- herra Bandaríkjanna), Charles Schwab, Anne Mulcahy (Xerox), Howard Schultz (Star- bucks), Dan Vasella (Novartis), Carol Tome (Home Depot), Alan Horn (Warner Brothers) og Ann Moore (Time, Inc.). Sögur þessara sterku leiðtoga ljá bókinni persónulegra gildi og gera hana aðgengilegri og skýrari en annars hefði verið. Eins og svo oft hefur verið sagt í þessum greinaflokki eru það dæmin sem sanna að aðferðirn- ar virka. Hinn fullkomni leiðtogi Þrátt fyrir sögur þessara þekktu leiðtoga leggur höfundur áherslu á að enginn geti verið sannur og trúverðugur leiðtogi með því að herma eftir öðrum. Hinn fullkomni leiðtogi er ekki til. Því verður enginn fullkominn leið- togi með því að reyna að apa eftir öðrum. Sanni leiðtoginn er sá sem finnur sinn tilgang sem leiðtogi, fylgir honum byggt á gildum sínum og tekur því óvinsælar ákvarðanir en nýtur engu að síður fylgis vegna þess að hann er trúr sannfæringu sinni. Það er því ekki hægt að haka við lista einkenna leiðtoga og segja „ég hef þessi einkenni til að bera – ég er leiðtogi“. Málið er flóknara en svo. Í ljósi þessa setur höfundur fram fjögur lögmál um leiðtoga. Höf- undur kallar lögmálin ný lögmál en ekkert er nýtt undir sólinni. Í Appollóhofinu í Delfí er ritað „þekktu sjálfan þig“. Um aldir hefur ýmislegt verið lagt út frá þessum fleygu orðum, meðal annars það að nauðsynlegt sé fyrir leiðtoga að þekkja sjálfa sig til að geta komið fyrir sem ósviknir leiðtogar og þannig náð enn meiri árangri en ella. Kastljósinu er beint að þessum þætti í leiðtogaþróuninni í bókinni True North eftir Bill George. TexTi: unnur valborG HilMarsdÓTTir unnur valborg hilmarsdóttir stjórnendaþjálfari hjá vendum „Þessir leiðtogar sem deildu reynslu sinni eru engir aukvisar og sagan af leið þeirra í átt að því að verða sannir leiðtogar er sögð í bókinni.“ bækur Bókin True North eftir Bill George: Vertu þú sjálf(ur) Höfundurinn Bill George.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.