Frjáls verslun - 01.03.2013, Page 95
FRJÁLS VERSLUN 3. 2013 95
„Nokkrir þekktir leik
stjórar hafa leik stýrt
Supermankvikmynd
um, má þar nefna Rich
ard Donner, Richard
Lester, Sidney J. Furie
og Bryan Singer.“
sem Superman er tiltölulega
óþekktur breskur leikari, Henry
Cavill, sem fæddist á eyju
rétt undan strönd Frakklands.
Þegar Cavill var sautján ára
og farinn að fá áhuga á leiklist
fékk hann hlutverk í The Count
of Monte Christo þar sem Jim
Caviez el lék greifann. Í kjölfarið
fylgdu hlutverk í breskum
sjónvarpsþáttum og síðustu
ár hefur hann meðal annars
leik ið í kvikmyndunum Tristan
& Isolde (2006), Red Riding
Hood (2007), Stardust (2007),
Thesus (2011) og The Cold
Light of Day (2012) þar sem
mótleikarar hans voru Bruce
Willis og Sigourney Weaver.
Aðalvinna hans hefur samt
verið í bresku sjónvarpsser-
íunni The Tudors (2007-2010).
Þess má geta að Henry Cavill
var á lista yfir þá sem komu
sterklega til greina að leika
Superman í Superman Re
turns en tapaði á lokasprett in-
um fyrir Brandon Routh.
Auk Russells Crowes eru
nokkrir frægir leikarar í hlut -
v erk um í Man of Steel. Diane
Lane og Kevin Costner leika
fósturforeldra hans og Amy
Adams lekur Lois Lane. Laur-
ence Fishburne og Michael
Shannon eru einnig í lykilhlut-
verkum.
Nokkrir þekktir leikstjórar hafa
leikstýrt Superman-kvikmynd-
um, má þar nefna Richard
Donner, Richard Lester, Sidney
J. Furie og Bryan Singer. Í þetta
skiptið er það Zack Snyder
sem leikstýrir Man of Steel.
Snyder hóf feril sinn með Dawn
of Death (2004). Næst kom
300, sem er hans vinsælasta
kvikmynd, en fastlega má
búast við að breyting verði þar
á þegar Man of Steel verður
tekin til sýningar. Aðrar kvik-
myndir hans eru Watchman
(2009), teiknimyndin Legend
of the Guardians: The Owls
of Ga’Hoole (2010) og Sucker
Punch (2011).
Sjöleikararhafaleikið
Superman
Í árdaga sjónvarpsins árið
1948 var gerð fimmtán þátta
sería um Superman. Áður hafði
hann komið fram í útvarpsþátt-
um. Sá sem fenginn var til að
leika Superman hét Kirk Alyn.
Hann hafði leikið smáhlutverk á
Broadway og tekið þátt í ýms-
um gamansýningum á sviði.
Ekki varð sjónvarpsþáttaröðin
til að auka vinsældir hans og
hvarf hann aftur til fyrri starfa
í nokkur ár og hætti síðan í
leiklistinni.
Næsti Superman, George
Reeves, er öllu frægari þótt
frægð hans sé ekki eingöngu
Super man að þakka, heldur
einu dularfyllsta sakamáli í
Holly wood, sem gerð voru skil í
kvik myndinni Hollywoodland,
en þar lék Ben Affleck Reeves,
sem framdi sjálfsmorð eftir því
sem opinbera lögregluskýrslan
segir, en margir voru á því að
hann hefði verið myrtur. Aldrei
hefur komist á hreint hvort
um morð var að ræða eða
sjálfs morð, en það sem þótti
benda til morðs var að Reeves
hélt við eiginkonu valdamikils
kvikmynda framleiðanda í
Holly wood. George Reeves lék
Superman í 104 sjónvarpsþátt -
um og þótti standa sig vel. Sá
fyrsti var sýndur 1951.
Christopher Reeve smell-
pass aði síðan í hlutverk
Super mans og lék hetjuna í
fjórum kvikmyndum á tímabil-
inu 1978 til 1987, sem allar
urðu mjög vinsælar. Þegar
hann dró sig í hlé var aftur
kom ið að sjónvarpinu og tvær
sjón varpsseríur komu í kjölfarið
á vinsældum kvikmyndanna.
Síðustu árin sem Christopher
Reeve lifði var hann lamaður
frá hálsi eftir að hafa dottið af
hestbaki, en hann sýndi mikið
æðruleysi og kom oft fram í
vinsælum þáttum í sjónvarpi.
Hann lést 1995, aðeins 52 ára
að aldri.
Sjónvarpið tók sem sagt við
og í fyrri seríunni Lois and
Clark: The New Adventures
of Superman var það Dean
Cain sem lék blaðamanninn
Clark Kent og Teri Hatcher
(Að þrengdar eiginkonur) lék
Lois. Naut serían vinsælda
og var sýnd í fjögur ár. Þá var
komið að ungum Superman
í sjónvarpsseríunni Small
ville sem gekk í bandarísku
sjónvarpi 2001 til 2011 og hafa
báðar þessar þáttaraðir ratað í
íslenskt sjónvarp. Tom Welling
heitir leikarinn sem lék ungan
Superman öll árin sem serían
var sýnd.
Sjötti Superman-leikarinn var
síðan Brandon Routh, sem þótti
standa sig ágætlega í Super
man Returns frá 2006 og voru
margir hissa á að Routh skyldi
ekki vera valinn aftur í hlutverk
Supermans í Man of Steel.
Ástæðan er fyrst og fremst sú
að aðrir framleiðendur voru
komnir til sögunnar og vildu
nýjan og ferskan leikara og
völdu því Henry Cavill, sem svo
á eftir að sanna sig en stiklur úr
myndinni lofa góðu fyrir hans
hönd og aldrei að vita nema
hann fái að endurtaka leikinn.
Segja má að bæði Brandon
Routh og Henry Cavill hafi þó
fyrst og fremst verið ráðnir
vegna þess að þeir minna á
Christopher Reeve, sem enn
þann dag í dag er konungur-
Superman-leikaranna.
Christopher Reeve lék Superman
í fjórum kvikmyndum og er sá
leikari sem hefur notið mestra
vinsælda í hlutverkinu.
Russell Crowe og Diane Lane í hlutverkum foreldra Supermans sem senda hann til jarðarinnar.
Lois Lane er ómissandi persóna í Superman-kvikmyndunum.
Í Man of Steel er það Amy Adams sem leikur hana.