Frjáls verslun - 01.03.2013, Blaðsíða 61
FRJÁLS VERSLUN 3. 2013 61
15 milljarðar komnir í Helguvík
Líklega hafa fá ef nokkur verkefni verið umtalaðri í íslensku viðskiptalífi en
fyrirhuguð álverksmiðja í Helguvík. Norðurál hefur lagt 15 milljarða króna
til verksmiðjunnar, sem þó er aðeins lítill hluti heildarfjárfestingarinnar,
tekur Ragnar fram. Líklega eru ekki margir forstjórar með hálfbyggða
verksmiðju upp á marga milljarða króna á herðum sínum. Ragnar er
þó furðu rólegur yfir því, segist ekki hafa nokkrar efasemdir um að
verksmiðjan rísi.
„Líklega eru ekki
marg ir forstjórar
með hálfbyggða verk-
smiðju upp á marga
milljarða króna á
herðum sínum.“
Norðurál Grundartangi
Árleg framleiðsla
Ár Tonn á ári Tonn frá upphafi
1998 11.079 11.079
1999 58.324 69.402
2000 57.653 127.055
2001 74.374 201.429
2002 89.949 291.377
2003 90.145 381.523
2004 92.556 474.079
2005 92.517 566.596
2006 160.343 726.939
2007 235.666 962.604
2008 272.388 1.234.993
2009 277.180 1.512.173
2010 274.641 1.786.814
2011 278.752 2.065.566
2012 284.839 2.350.405
0
50.000
100.000
150.000
200.000
250.000
300.000
1998
1999
2000
2001
2002
2003
2004
2005
2006
2007
2008
2009
2010
2011
2012
Framleiðsla
hvers
árs
Framleiðsla
á
ári
í
tonnum
síðasta ári greiddi áliðnaðurinn rúmlega
60 þúsund reikninga fyrir innlendar vörur
og þjónustu, samtals að upphæð um 40
milljarðar króna, fyrir utan raforkukaup.
Yfir 700 innlend fyrirtæki nutu góðs af
þessu. Það er mat Samáls að afleidd störf
vegna starfsemi í áliðnaði séu um 5.000.
Ragnar segir að þetta samhengi hafi skort
í umræðuna og margir átti sig ekki á
því hve fjölbreytt starfsemi sé afleidd af
áliðnaðinum. Einnig þeirri staðreynd að í
lok árs 2012 störfuðu ríflega 1.500 manns
í áliðnaði á Íslandi. Við þann fjölda bætast
á sjötta hundrað starfsmanna verktaka
sem vinna á starfssvæði álveranna. Meðal
mánaðarlaun í geiranum eru tæpar 600
þúsund krónur.
Ragnar segir að stærð álfyrir tækjanna muni alltaf hafa áhrif á umræðuna og við því sé kannski ekki mikið að gera. „Það hefur
skapast ákveðin menning hjá ákveðnu
fólki að atyrða áliðnaðinn umfram aðrar
starfsgreinar. Þetta fólk vill gjarnan búa til
úr áliðnaðinum andstæðing sem er síður
eftirsóknarverður en önnur stefna sem það
telur heppilegri. Þá virðast staðreyndir
ekki alltaf flækjast mikið fyrir fólki og
lengi vel var umræðan um efnahagslegt
mikilvægi greinarinnar frekar sérkennileg.
Það var ekki fyrr en Hagfræðistofnun
Háskóla Íslands gerði úttekt sína á síðasta
ári sem umræðan breyttist aðeins. Þegar
staðreyndirnar voru lagðar á borðið
hjálpaði það fólki að skilja mikilvægi
þessarar atvinnugreinar fyrir íslenskt
samfélag.“ Hér vísar Ragnar í bein og óbein
áhrif sem hann segir að geti vissulega
vafist fyrir fólki að skilja. Þessu til viðbótar
nefnir Ragnar að eignarhaldið sé gjarnan
gert tortryggilegt þótt ávallt hafi verið
ætlunin að stofna til erlendrar fjárfestingar
af þessu tagi og um það gerðir sérstakir
samningar. „Ég tel að þessi fyrirtæki hafi
verið til fyrirmyndar og komið með ýmsa
þekkingu og mikilvægar nýjungar inn í
íslenskt samfélag, eins og í umhverfis og
öryggismálum. Það hefur orðið bylting í
öryggismálum í byggingariðnaði í kringum
þennan iðnað. Öryggismál eru nokkuð
sem við tökum gríðarlega alvarlega. Það
sem kemur flestum nýjum starfsmönnum
á óvart er hvað öryggis og umhverfismál
eru stór þáttur í rekstri svona fyrirtækis.
Þessi nálgun var alveg ný fyrir mér þegar
ég byrjaði, komandi úr hefðbundnu
íslensku fyrirtæki með fjölþætta starfsemi.“
álklasi oG menntunarmál
Með aukinni álframleiðslu hefur myndast
álklasi hér á landi þótt það sé ekki ýkja
langt síðan farið var að ræða um hann
sem slíkan. Hafa verður í huga að sjávar
útvegsklasinn hér á landi hefur byggst
upp og þróast á undangenginni öld og þó
er ekki langt síðan hann var settur fram
á þann hátt að allir skilji og hafa verður
í huga að öflugir klasar þróast á löngum
tíma. Í því samhengi er álklasinn rétt að
„Það hefur skapast
menning hjá ákveðnu
fólki að atyrða áliðn-
aðinn umfram aðrar
starfsgreinar.“