Frjáls verslun - 01.03.2013, Blaðsíða 88
88 FRJÁLS VERSLUN 3. 2013
íslandsbanki
Jón Hannes Karlsson,
framkvæmda stjóri Ergo,
fjármögnunarþjónustu
Íslandsbanka.
markaðurinn
réttir úr kútnum
Ergo nefnist nú fjármögnunarþjónusta
Íslandsbanka. Ergo sérhæfir sig í fjármögn
un atvinnutækja og atvinnuhúsnæðis
fyrir rekstraraðila og fjármögnun bíla og
ferðavagna fyrir einstaklinga.
Hvers konar bíla lán eru í boði hjá Ergo? „Ergo býð ur upp á bílalán og
bíla samn inga, en bæði þessi
fjár mögn unar form bjóðast á
hag stæðari kjörum fyrir bif
reiðir sem losa 120 g af CO2 eða
minna og eru þá nefnd græn
fjármögnun. Auk þess fjár
magn ar Ergo líka bíla og önnur
at vinnu tæki fyrir fyrirtæki og
minni lögaðila.
Ergo er með þrjá vildarflokka
eins og Íslandsbanki. Þetta er
hefðbundin vild, gullvild og
platín umvild. Gull og platín
u m vildarvinir fá bæði afslátt af
stofn gjöldum og vöxtum.
Hámarkslánstími í ein stakl
ings fjármögnun er sjö ár eða 84
mánuðir. Boðið er upp á bæði
verðtryggða og óverðtryggða
vexti en vaxtakjörin ráðast
af vildarflokki viðskipta
vina. Verðtryggðir vextir eru frá
7,85% 8,15% en óverðtryggðir
vextir frá 9,40%9,70%.
Jákvæð þróun
Ergo fjármagnar allt að tíu ára
gamla bíla og fer lánstíminn
eftir aldri bílsins. Markaður
með notaða bíla er mun stærri
en með nýja bíla. Á síðasta
ári sáum við þó umtalsverða
fjölgun á kaupum einstaklinga
á nýjum bílum. Sú þróun hefur
haldið áfram á þessu ári og
í dag hefur Ergo fjármagnað
um 13% fleiri nýja bíla til
ein staklinga en á sama tíma á
síðasta ári. Á sama tíma er vöxt
urinn í fjármögnun á not uð um
bílum til einstaklinga um 5%.“
Bílaleigur mikilvægur
viðskiptavinur
Hvernig er staðan á íslenskum
bílakaupamarkaði í dag, að
þínu mati?
„Íslenski bílakaupamark
að urinn fór í gegnum gríðar
lega erfitt tímabil í tengsl
um við efnahagshrunið
2008. Nýskráningar á öllum
öku tækjum voru rúmlega
2.500 árið 2009 í samanburði
við 15.00020.000 ökutæki
árin þar á undan. Á síðasta ári
voru rúmlega 8.000 ökutæki
ný skráð hérlendis. Á síðustu
fjórum árum hafa bílaleigurnar
staðið undir nærri helmingi
af sölu á öllum nýjum bílum
til að mæta auknum fjölda
ferða manna. Þessir bílar hafa
svo verið að koma aftur út á
markaðinn eftir eitt og hálft til
tvö ár og mætt þar eftirspurn
almennings eftir nýlegum,
notuðum bílum. Áhyggjuefni í
sölu á nýjum bílum til einstakl
inga hjá bifreiða umboð unum
hefur verið að salan hefur
einkum verið á ódýrustu bílun
um og svo aðeins í dýrasta
flokkn um. Salan á bílum milli
þessara flokka hefur verið öllu
dræmari. Við sjáum fyrir okkur
jákvæðar horfur á markaðnum
á næstu mánuðum þar sem
marg ar spennandi bifreiðir eru
að koma inn á markaðinn. Á
síðustu árum hafa orðið mikl
ar framfarir í framleiðslu á
eyðslu grönnum bílum sem
menga mun minna en eldri
bílar. Markaðurinn á Íslandi er
ekki á leið í 15.00020.000 bíla
sölu en er greinilega að rétta
aðeins úr kútnum eftir erfið
ár.“
„Við sjáum fyrir
okkur já kvæðar
horfur á mark-
aðnum á næstu
mánuðum þar sem
margar spenn andi
bifreiðir eru að
koma inn á mark-
aðinn.“
Texti: Hrund Hauksdóttir / Mynd: Geir Ólafsson