Frjáls verslun - 01.03.2013, Blaðsíða 56
56 FRJÁLS VERSLUN 3. 2013
Norðurál fagnar 15 ára starfsafmæli sínu í sumar. Óhætt er að segja að félagið hafi byrjað smátt en á Grundartanga voru í fyrstu aðeins
framleidd 60 þúsund tonn af áli á ári.
Félagið hefur hins vegar vaxið í nokkrum
skrefum sem hentar íslensku samfélagi mjög
vel, segir Ragnar Guðmundsson, forstjóri
Norðuráls, þar sem við höfum komið okkur
fyrir á skrifstofu í húsakynnum félagsins í
Skógarhlíð.
Það hafa verið erilsamir tímar undanfarið
og líklega eru ekki margir forstjórar með
hálfbyggða verksmiðju upp á marga mill
jarða króna á herðum sínum. Ragnar er
þó furðu rólegur yfir því, segist ekki hafa
nokkrar efasemdir um að verksmiðjan rísi.
Þegar hann sér svip blaðamannsins dregur
hann upp graf sem sýnir hvar hægt er að
sækja orkuna og vitnar svo í stóriðjuskáldið
Einar Benediktsson og segir „vilji er allt,
sem þarf“. – Og brosir.
Líklega hafa fá ef nokkur verkefni verið
umtalaðri í íslensku viðskiptalífi en fyrir
huguð álverksmiðja í Helguvík. Norður ál
hefur lagt 15 milljarða króna til verk
smiðj unnar, sem þó er aðeins lítill hluti
heildar fjárfestingarinnar, tekur Ragnar
fram. Gerðir voru samningar árið 2007
við Hitaveitu Suðurnesja og Orkuveitu
Reykja víkur en síðan hefur ýmislegt gengið
á. Mestu skiptir auðvitað bankahrunið
haustið 2008. Blaðamaður hefur með
reglu legu millibili undanfarin ár rætt við
Ragnar um stöðuna og hugsanlega fram
vindu og undrast enn hve rólegur hann
er yfir ástandinu. Hann tekur þó fram að
hjá Norðuráli sé allt tilbúið um leið og
grænt ljós fáist á framkvæmdina. Það er
þó augljóst að hann er ekki ánægður með
ýmsar stjórnvaldsákvarðanir og segir að
slík afskipti hafi tafið fyrir. Ragnar bendir
einnig á að Hitaveita Suðurnesja sé búin
að ganga tvisvar í gegnum eigendaskipti
um leið og félaginu hafi verið skipt upp
í tvö félög. „Allt svona tefur og tekur
athygli frá uppbyggingu. Betra hefði verið
að upprunalegir eigendur hefðu komið
verkefninu af stað áður en þeir seldu.“
Ragnar dregur ekki fjöður yfir að miklar
tafir hafa orðið en hann segist vongóður
um að það sjái til sólar síðar á þessu ári,
það hafi verið unnið heilmikið í þessum
málum undanfarna mánuði og misseri.
vantar staðfestinGu á
orkuafHendinGu
„Norðurál er tilbúið fyrir sitt leyti að klára
verksmiðjuna og hefur notið góðs stuðn
ings frá móðurfélaginu Century Alum
in um, en það vantar bara staðfestingu á
orkuafhendingu. Ef menn einhenda sér í
að leysa það sem út af stendur getur allt
verið komið á fulla ferð síðar á árinu.“
Fyrstu tveir áfangarnir í Helguvík eru um
180 þúsund tonn samtals og nota rúmlega
300 MW. Ragnar bendir á að samkvæmt
nýlegum fréttum gæti verið til ónýtt orka
í landinu sem nemur 100 til 200 MW eða
um helmingur þess sem þarf. Þetta sé orka
sem hægt er að selja strax án nokkurrar
fjárfestingar. „Það þarf því ekki mikið til að
komast á beinu brautina, af nógu er að taka
fyrir þetta verkefni og ýmis önnur verkefni
samkvæmt nýsamþykktri rammaáætlun,“
segir Ragnar.
Það kemur fram hjá Ragnari að allt
þetta ferli hefur orðið til þess að fjárfestar
eru orðnir varari um sig og vilja nú hafa
fast ara land undir fótum í samskiptum
við íslensk stjórnvöld. Norðurál gerði
fjárfestingarsamning við ríkisstjórnina og
voru drög að fjárfestingarsamningi fyrir
Helguvíkurverkefnið kláruð með fulltingi
Össurar Skarphéðinssonar, þáverandi
iðnaðarráðherra, í desember 2008. Þeim
samningi var síðan fylgt í gegnum þingið
af þáverandi formanni iðnaðarnefndar,
Katrínu Júlíusdóttur. „Mér fannst það ferli
ganga mjög vel og það var unnið hratt
og vel í því máli,“ segir Ragnar. Málið fór
að þessu loknu í gegnum ferli hjá ESA,
eftirlitsstofnun EFTA, í júlí 2009 og samn
ingur var síðan formlega undirritaður í
raGnar GuðmunDsson
Hér kemur ítarlegt viðtal
sigurðar más jónssonar
við ragnar Guðmundsson,
forstjóra norðuráls. víða
er komið við sögu.
HVenær Verður
HelguVík fullkláruð?
framkvæmdirnar á
Grundartanga.
móðurfélagið Century
aluminum.
Hvenær verður Helguvík
fullkláruð?
15 milljarðar komnir í
Helguvík.
raforkusamningarnir við
or og Hs.
ónýtt orka í landinu.
kolefnisskatturinn.
meðallaun hjá norðuráli
615 þús. kr. á mánuði.
Heildarverðmæti álsins á
Grundartanga nálægt 80
millj arðar kr. á síðasta ári.
norðurál er einn stærsti
skattgreiðandi landsins.
lífríkið.
Græn framleiðsla.
briCs-löndin sterkur
kaupandi.
menntamál.
sæstrengur.
innlend útgjöld áliðnaðar
100 milljarðar á ári.
700 fyrirtæki þjónusta
áliðnaðinn.