Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2013, Blaðsíða 84

Frjáls verslun - 01.03.2013, Blaðsíða 84
84 FRJÁLS VERSLUN 3. 2013 til að draga kjarkinn úr kaup ­ end um. Hugsanlega þarf að kafa dýpra til að skilja stöðuna. „Væntingar um bættan efnahag eru númer eitt, tvö og þrjú og tiltrú fólks á framtíðina verður að vera meiri og bjartari,“ segir Erna Gísladóttir, forstjóri BL. Bílgreinin hefur mátt þola upp undir 90% samdrátt í sölu undanfarin ár en nýskráningar bíla fóru úr um það bil 20.000 bílum niður í 3.000 bíla árið 2009. Í kjölfarið varð mikil upp ­ stokkun í greininni sem tók tvö til þrjú ár. Eftir þennan mikla samdrátt 2008 töldu menn sig loksins sjá vonarglætu á síðasta ári. Þá seldust tæplega 7.900 nýir bílar til einstaklinga og fyrirtækja og 8.300 bílar séu sendibílar taldir með. „Það þarf að gera margt til að örva markaðinn, það sem af er þessu ári hefur sala á nýjum bílum til almennings dregist saman en sala var að meðaltali 84 bílar á viku í fyrra en er í ár 79. Þetta hljómar ekki mikið en er samt í ranga átt,“ segir Erna Gísladóttir og bætir við: „Kaupmáttur verður að aukast. Fólk þarf að hafa meira eftir um mánaðamót eða alla vega væntingar um betri tíð, t.d. að aukin yfirvinna bjóðist eða hærra kaup fyrir sömu vinnu. Fyrirtækin þurfa líka að fá bætt rekstrarumhverfi, t.d. með því að lækka tryggingargjaldið.“ Margir benda einnig á að ýmislegt hafi orðið til að rugla kaupendur, tíðar reglu gerða ­ breytingar og tíðar verð breyt­ ingar. Þannig hækk uðu flest umboð verð bíla sinna um ára mótin en í apríl fóru hækk ­ anir að ganga til baka enda hafði krónan þá styrkst um 11% frá áramótum. Bílasalar segja að tíðar verðbreytingar rugli kaupendur og geri þá óörugga. Væntanlega mun þó lækk unin ýta við mörgum enda miðlungsbílar að lækka um allt að hálfri milljón króna. Þetta sýnir glöggt hve miklu máli þróun krónunnar skiptir fyrir afkomu greinarinnar. Bjargar ferða þjón­ ustan bílgreininni? Áðurnefndar tölur benda ekki til neinnar metsölu og eru tals vert undir því sem áætluð endur nýjunarþörf segir til um. En samt í áttina. Af þessum 7.900 bílum sem seldust til ein staklinga og fyrirtækja á síðasta ári seldust 3.500 bílar til bílaleigna sem voru óvenju fyrirferðarmiklar á síðasta ári. Það er vissulega vitnisburður um þann þrótt sem einkennir ferðaþjónustuna, nánast eina atvinnugreina í landinu. Breytingar á vörugjöldum um áramótin gerðu bílaumboðin hins vegar áhyggjufull um það hvernig málin myndu þróast í ár. Sumir óttuðust verulegan sam drátt hjá bílaleigunum en það virðist ekki ætla að ganga eftir. Kristinn G. Bjarnason, fram ­ kvæmdastjóri hjá Toyota, segist greina áfram sterka þörf hjá bílaleigunum og á ekki von á miklu falli frá síðasta ári. Hugsanlega seljast um 2.900 til 3.000 bílar til bílaleigna, sem væri ekki mikil breyting. Í því sambandi er vert að benda á að talsvert er um að fyrirtæki nýti sér bílaleigubíla, í lengri eða skemmri tíma. Sá markaður getur auðveldlega breyst ef rekstrar umhverfi fyrirtækja breytist. aukin áhrif stýri­ vaxta Seðla ­ bank ans Fáar greinar eru næmari fyrir hagsveiflu og óvissu í hag kerf­ inu en bílgreinin. Egill Jó hanns­ son, forstjóri Brim borgar, segir að íslenska bíla markaðnum megi skipta í tvennt; bílaleigubíla og al mennan markað fyrirtækja og ein staklinga. „Vöxtur er á bílaleigumarkaði en frá mars hefur orðið vart við samdrátt. Líklegar ástæður fyrir tregari markaði eru óvissa vegna kosninga, aukið aðhald Seðlabankans með hækkandi vöxtum og almennt þrengra í búi þar sem hagvöxtur og einkaneysla er minni en búist hafði verið við. Líklega hafa að gerðir Seðlabankans til að auka aðhald í hagkerfinu mun hrað ari áhrif en bankinn reikn­ ar með og hraðari en áður hefur sést. Ástæðan fyrir því er að nú er ekkert aðgengi í erlend lán og fleiri og fleiri hafa snúið sér í óverðtryggða vexti og því virka stýrivextir Seðlabankans mun hraðar,“ segir Egill. Þeir sem á annað borð treysta sér til að spá telja að bílasala aukist á þessu ári og fari úr 8.300 bílum upp í um 9.000 nýja bíla. Það jafngildir 8% aukn ­ ingu frá síðasta ári. Fyrstu þrjá mánuði ársins virtist þetta ætla að ganga eftir en þá jókst sala bíla til einstaklinga um 9% og auk þess hafa bílaleigurnar verið fyrirferðarmeiri en menn héldu að þær yrðu. Þetta er þó viðkvæmt ástand en það mátti vissulega greina þær væntingar hjá bílaumboð un ­ um að eftir kosn ingar færi sala af stað, ein fald lega vegna þess að þá væri óvissu aflétt. bÍLar „Væntanlega mun þó lækkunin ýta við mörgum enda mið l­ ungsbílar að lækka um allt að hálfri milljón króna. Þetta sýnir glöggt hve miklu máli þróun krón unnar skiptir fyrir afkomu grein­ ar innar.“ gReiða Þarf MeiRa á miLLi en áðuR Fólk fær minna en áður fyrir gamla bílinn og þarf að greiða meira á milli en áður. Þetta er ein af ástæðum þess að margir doka við áður en þeir kaupa nýjan bíl. Úlfar Hinriksson, fram kvæmda stjóri Suzuki- umboðs ins, tekur undir þetta. Hann bend ir á að fólk hafi frestað því að endurnýja bílinn og aki því gjarnan um á sex til sjö ára gömlum bíl, fólk sem gjarnan hafi endurnýjað bíl sinn á þriggja ára fresti áður fyrr. Úlfar rakti dæmi um það hvernig aðstæður hefðu breyst: Fyrir bankahrun hefði nýr bíll kostað þrjár milljónir og fólk getað endurnýjað hann með milljón króna milli- gjöf. Núna kostar sami bíll sex milljónir og milligjöfin fjórar milljónir. Þarna þurfi fólk að reiða fram þremur milljónum króna hærri upphæð en áður fyrir sama bíl. Það sé eðlilegt að slíkt standi í kaupendum. Bílasölum verður tíðrætt um að fólk keyri bíla sína leng ur og því líði lengri tími á milli endurnýjunar. Þess séu jafn vel dæmi að menn kjósi að keyra bíla sína út og þá gjarnan fólk sem áður endur - nýjaði bílinn með reglulegu millibili. Það leiðir af sjálfu sér að þegar reynir loksins á verðmæti gamla bílsins er hann mun verðminni en áður. Kaupandi þarf að punga út hærri upphæð loksins þeg - ar endurnýjun verður ekki umflúin. „Það kemur á marga þegar þeir fá að heyra hvað þeir fá fyrir gamla bílinn,“ segir Úlfar. Þeir sem keyptu nýjan bíl fyrir bankahrun á t.d. um þrjár milljónir gátu endurnýjað hann með um milljón króna milligjöf. Núna kostar sami bíll um sex milljónir og milligjöfin er fjórar milljónir. Eðlilega hefur slíkt áhrif.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.