Frjáls verslun - 01.03.2013, Blaðsíða 58
58 FRJÁLS VERSLUN 3. 2013
álagningar opinberra gjalda upp á tæpar
400 milljónir króna. Innlendur kostnaður
Norðuráls er um 25 milljarðar króna á ári
en í þeirri tölu eru laun, orka og að keypt
þjónusta. Þar af er keypt þjónusta af inn
lendum fyrirtækjum fyrir um 10 mill jarða
króna.
„Við höfum lagt áherslu á að vera góður
þegn í samfélaginu. Við höfum reynt að
ráða fólk úr nágrannabyggðunum og það
hefur tekist vel. 80% starfsmanna eru af
Vesturlandi og ég held mér sé óhætt að
segja að við skiptum miklu fyrir samfélagið
hér í kring.“ Ragnar bendir á að Norðurál
hafi reynt að nýta verktaka á Vesturlandi
eins og kostur er. Félagið sé í samstarfi
við mikinn fjölda verktaka og samstarfið
hefur yfirhöfuð gengið vel. Norðurál sé
aðalstyrktaraðili ÍA og styrki fjölmörg önn
ur verkefni, með mesta áherslu á Vestur
land. Í því sambandi er vert að hafa í huga
að álfyrirtækin vörðu nærri 250 milljónum
króna til samfélagsverkefna af ýmsu tagi á
síðasta ári, svo sem til íþrótta, menntunar
og menningar. Gagnrýnendur áliðnaðarins
segja gjarnan að með þessu séu félögin að
kaupa sér frið í samfélaginu en um leið
er það krafa margra að stór fyrirtæki beiti
sér með þessum hætti. Viðbrögðin gætu
því virst mótsagnakennd. Samskipti við
verkalýðsfélögin hafa alla tíð verið að
grunni til uppbyggileg og góð og hefur
Norður ál lagt áherslu á góð samskipti fyrir
sitt leyti, þótt aðilar takist auðvitað á þegar
kemur að endurnýjun samninga eða um
einstök mál eins og gengur og gerist.
Til að gefa vísbendingu um umfang
Norðuráls í íslenska hagkerfinu bendir
Ragnar á að félagið flytji inn og út tæplega
500 þúsund tonn á ári með gáma skip
um Eimskips. Það sé til viðbótar við
aðra hefðbundna hráefnaflutninga.
Þessir flutningar séu ákveðin kjölfesta
fyrir skipafélögin og þeir breytist lítið
sem ekkert milli mánaða, allt árið um
kring. „Eftir hrun voru þessir flutningar
gríðar lega mikilvægir þar sem almennur
innflutn ingur stöðvaðist snarlega.“
áHrif á lífríkið Hverfandi
Sem gefur að skilja eru umhverfismálin
brýn og Ragnar fullyrðir að þar sé enginn
afsláttur gefinn. Hvergi í veröldinni vinni
álver eftir strangari umhverfisskilyrðum
en hér. Hann afhendir blaðamanni nýja
skýrslu um umhverfisvöktun iðnaðar svæð
isins á Grundartanga sem Ragnar segir
einstaka um margt. Þar hafa óháðir aðilar
verið fengnir til að vakta og meta þau áhrif
sem starfsemi á iðnaðarsvæðinu hefur á
umhverfi þess. Í starfsleyfi verksmiðjunnar
er kveðið á um að slík skýrsla sé gerð. „Það
er mikilvægt að hafa í huga að rannsóknir
og eftirlit með umhverfisáhrifum í nær
umhverfi álversins á Grundartanga eru
framkvæmdar af óháðum aðilum og
þær aukast stöðugt. Niðurstöður þeirra
sýna að áhrif á lífríkið eru og hafa verið
hverfandi. Þessi árangur er ekki sjálfgefinn
og til að hann náist þarf reksturinn að
vera í góðu jafnvægi. Við finnum það líka
meðal starfsmanna að það er gríðarlegur
metnaður fyrir því að standa sig vel í
þessum málum.“
Ítarlega er fylgst með loftgæðum, árvötn
um, sjó, gróðri, heyi og grasbítum til að
rannsaka styrk flúors, brennisteinstvíoxíðs,
brennisteinsvetnis, köfnunarefnisoxíðs
og svifryks. Þessar rannsóknir og eftirlit
sýna að áhrif Norðuráls á lífríki í nágrenni
fyrirtækisins eru og hafa verið hverfandi.
Að sögn Ragnars var þetta mjög ánægju
leg niðurstaða og hann leggur áherslu
á að félagið vilji sýna metnað í þessum
efnum. Ef umkvartanir koma sé reynt að
bregðast við þeim án fordóma. Í kring
um verksmiðjuna á Grundartanga er
skil greint þynningarsvæði sem ekki er
ætlað til reglulegrar beitar eða heyskapar.
Þess má geta að Norðurál er með vottað
gæðastjórnunarkerfi samkvæmt alþjóðlega
ISO 9001staðlinum. Stefnt er á vottun
umhverfis og öryggisstjórnunarkerfa á
árinu 2013.
raGnar GuðmunDsson