Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2013, Síða 72

Frjáls verslun - 01.03.2013, Síða 72
72 FRJÁLS VERSLUN 3. 2013 Kristján Guðmundsson, háls-, nef- og eyrnalæknir hjá Læknastöðinni í Glæsi bæ, hefur látið málefni sér fræðilækna sig miklu skipta í gegnum tíðina. Hefur m.a. verið formaður samninganefndar Læknafélags Íslands og var í stýrihópi velferðarráðherra sem skilaði tillögum og greinargerð um heildarskipulag sérfræði- þjónustu lækna árið 2011. Kristján er uggandi um fyrir- hugaða byggingu nýs Land- spítala. „Verkefnið yrði það um- fangsmesta sem hið opinbera hefur tekið sér fyrir hendur og því þarf að vanda vel til verks- ins. Ef illa tekst til gæti það haft alvarlegar afleiðingar fyrir bæði heilbrigðiskerfið og ríkisfjármál- in í heild. En því miður er ég engan veginn sannfærður um að þeir útreikningar sem lagðir hafa verið fram og eiga að sýna fram á sparnað um 2-3 milljarða á ári með nýjum spítala fái staðist.“ Kristján heldur því til að mynda fram að útreikningar á við mið- unar tölum um kostnað verði nýr spítali ekki byggður séu bæði óljósir og innihaldi skekkjur sem séu nýja spítalanum í hag. ekki veittur aðgangur að upplýsingum „Það er búið að benda á skekkj- ur t.d. við afskriftir á nýbygg- ingum, sölu á eldri eignum og óljósar áætlanir um rekstrar- kostnað í útreikningunum. Þar að auki eru aukin göngudeild- arþjónusta og færri innlagnir með byggingu sjúkrahótels einn stærsti sparnaðarliðurinn sem nefndur hefur verið við bygg ingu spítalans. Rekstrar - kostnaður sjúkrahótelsins kemur hins vegar hvergi fram í útreikningunum, því hann er greiddur af Sjúkratryggingum Íslands. Þannig að þótt spíta- linn sjálfur spari kostnað með þessum hætti liggur þarna tals - verður kostnaður sem fellur á ríkið sem er hvergi tekinn með,“ segir Kristján. Hann bætir við að velferðar- ráðuneytið hafi á síðasta ári farið í saumana á útreikningun- um og tilkynnt að þeir stæðust, en neiti hins vegar að veita aðgang að gögnunum sem liggja þar til grundvallar. „Þessi gögn verða að koma í dagsljósið til að hægt sé að leggja óháð mat á hvort útreikningarnir standist,“ segir Kristján. Þessu til viðbótar hefur hann efasemdir um staðsetn- ingu spítalans og telur að á einum stórum spítala sé fagleg samkeppni milli stofnana úr sögunni sem leiði til stöðn un ar. Eins setji það starfsfólk í erfiða stöðu þegar flestir vinna á ein- um og sama vinnustaðnum sem er alráður um kjör og vinnu - aðstæður. „Vafaatriðin eru einfaldlega enn of mörg til að það sé verj- andi að ráðast í jafn gríðarlega umfangsmiklar framkvæmd- ir. Í það minnsta þarf miklu sterkari rökstuðning fyrir því að þetta verkefni borgi sig,“ segir Kristján. Kristján Guðmundsson, Læknastöðinni í Glæsibæ: Þurfum stErKari röK fyrir Byggingu nýs spítaLa „Bygging nýs Landspítala yrði það um- fangsmesta sem hið opinbera hefur tekið sér fyrir hendur og því þarf að vanda vel til verksins. Ef illa tekst til gæti það haft alvarlegar afleiðingar fyrir bæði heil - brigðiskerfið og ríkis fjármálin í heild.“ vErðmiðinn Er 85 miLLjarðar Verkefni­af­þessari­stærðargráðu­rúmast­ekki­innan­núverandi­ríkisfjármálaáætlunar­varðandi­markmið­um­að­ná­afgangi­ á­heildarafkomu­ríkissjóðs,­segir­í­greiningu­fjármála-­og­efnahagsráðuneytisins. ByGGinG nýS LandSPÍTaLa: Heildarkostnaður við bygg ingu nýs landspítala er áætlaður 85 milljarðar króna. Framkvæmdin rúmast ekki innan fjár laga og draga þyrfti úr öðrum fram kvæmdum verði hafist handa við bygg inguna. Þetta kom fram í greiningu á um fangi framkvæmdarinnar sem unnin var af fjármála­ og efnahagsráðuneytinu og sagt var frá í fréttum í lok febrúar síðastliðinn. Áætlað er að framkvæmdirnar kosti um 61,5 millj arða króna og um 73,5 milljarða ef tækjakaupum er bætt við. Við það bæt ist fjármagnskostnaður upp á um 20 mill j ­ arða sem eykur heildarkostnaðinn í um 85 milljarða króna, að frádregnum tekjum sem aflað verður með sölu eigna. Á móti kemur að færa má 15 milljarða til tekna hjá ríkissjóði vegna vsk. af verkefninu. Í greiningunni segir að um sé að ræða langstærsta fjárfestingarverkefni sem hið opinbera hefði nokkurn tíma ráðist í. Ljóst sé að það hafi afgerandi áhrif á þróun rekstrarkostnaðar við heilbrigðiskerfið. Verkefni af þessari stærðargráðu rúm ­ ast ekki innan núverandi ríkis fjármála ­ áætlunar, hvorki til skemmri tíma litið hvað varðar markmið um að ná afgangi á heildarafkomu ríkissjóðs né til lengri tíma litið hvað varðar markmið um að sá af gangur fari vaxandi og dugi til að lækka skuldabyrði hins opinbera umtalsvert, eða í a.m.k. 60% á innan við áratug, segir í grein ingunni. HeiLbriGðisþjónustan
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.