Frjáls verslun - 01.03.2013, Blaðsíða 98
98 FRJÁLS VERSLUN 3. 2013
MBA-nám við Há-skóla Íslands er ætl að stjórnend-um og verðandi
stjórnendum og er tveggja ára
meistaranám við viðskipta fræði -
deild og hugsað sem nám með
vinnu. Nú stunda 38 nemendur
námið. Bakgrunnur nemenda
er fjölbreyttur og hafa þeir lokið
háskólanámi í ýmsum grein-
um. Má þar nefna tæknifræði,
viðskiptafræði, lögfræði,
stjórnmálafræði, tölvunarfræði
og listnám. Námið er hugsað
fyrir þá sem hafa reynslu af
stjórn unarstörfum og vilja auka
þekkingu sína og færni til að
eiga betri möguleika á að takast
á við forystuhlutverk í atvinnu-
lífinu.
Námið hefst með þriggja daga
undirbúningsnámskeiði og eftir
það taka við fjórtán námskeið
og hagnýtt lokaverkefni. Að
öllu jöfnu er kennt aðra hverja
helgi, föstudag og laugardag,
klukkan 9-17, og til viðbótar er
boðið upp á dæmatíma þegar
við á. Í öllum námskeiðum eru
einkunnarorð námsins; frum-
kvæði, færni og forysta. „Það
er ánægjulegt að geta boðið
upp á MBA-nám í háskóla hér
á landi,“ segir Magnús Pálsson,
forstöðumaður MBA-námsins,
en Háskóli Íslands er annað
árið í röð, samkvæmt matslista
Times Higher Education World
University Rankings, í efstu 2%
þeirra sautján þúsund háskóla
sem starfræktir eru í heiminum
í dag. „Skólinn kappkostar
að halda þeim árangri og við
gæðamat á öllu starfi skólans
er notast við alþjóðlega viður-
kennda mælikvarða.“
Breyttar aðstæður
„Við höfum verið að efla þá
þætti í MBA-náminu sem snúa
að persónulegri færni nem-
enda og stjórnendaþjálfun.
Það hefur komið skýrt fram hjá
brautskráðum nemendum að
þessi áhersla í náminu skipt-
ir miklu máli. Það hefur ýtt á
okkur að gera enn betur á
þessu sviði. Stjórnendahlut-
verkið hefur breyst jafnt og þétt.
Ný kynslóð er að koma inn á
vinnumarkaðinn sem er með
gjörbreytta færni miðað við ungt
fólk fyrir tíu til fimmtán árum og
kröfur um árangur, upplýsinga-
miðlun og nærveru stjórnenda
eru aðrar en áður var.“
Raundæmi
Magnús segir að áhersla á
persónulega færni og stjórn-
enda þjálfun sé nánast rauði
þráð urinn í öllum námskeiðum.
„Við útfærum þetta með ýmsum
hætti eins og til dæmis með
umræðum í kennslustundum
og hópavinnu. Hópavinnan er
einna mikilvægust fyrir marga
nem endur; það skiptir máli
að kynnast fólki með stjór-
nunarreynslu sem kemur úr
öðrum áttum og vinna með því.
Það laðar fram viðbótarþekk-
ingu og samlegðarkraft sem
allir nýta sér. Þá er farið yfir
raun dæmi þar sem rýnt er í
tilteknar aðstæður, alls konar
orsakasamhengi dregið fram og
síðan er rætt hvaða ákvarðanir
eru heppilegastar í viðkomandi
tilfelli. Kennsla raundæma fer
yfirleitt fram með umræðum og
sama má segja þegar nemen-
dur hitta stjórnendur fyrirtækja
eða þegar gestafyrirlesarar
koma í heimsókn.“
Persónuleg færni og stjórnendaþjálfun
MBA-nám við Háskóla Íslands:
Lokaorðið
TexTi: svava jÓnsdÓTTir / Myndir: Geir Ólafsson
Boðið hefur verið upp á MBAnám við Háskóla Íslands í rúman áratug. Áhersla á persónulega
færni og stjórnendaþjálfun hefur jafnt og þétt farið vaxandi.
Magnús Pálsson:
„Við höfum verið
að efla þá þætti
í MBA -náminu
sem snúa að
persónulegri
færni nemenda
og stjórn enda-
þjálfun. Það hefur
komið skýrt fram
hjá brautskráðum
nemend um að
þessi áhersla í
náminu skiptir
miklu máli.“
frjals_verslun_augl_titt_utlit.indd 1 11.3.2013 15:06:02
Magnús Pálsson, forstöðumaður
MBA-námsins við Háskóla Íslands.