Bæjarins besta


Bæjarins besta - 29.03.2007, Síða 19

Bæjarins besta - 29.03.2007, Síða 19
FIMMTUDAGUR 29. MARS 2007 19 Horfur á föstudag: Suðlæg átt og fremur hlýtt í veðri. Vætusamt, einkum S- og V-lands. Horfur á laugardag: Suðlæg átt og fremur hlýtt í veðri. Vætusamt, einkum S- og V-lands.. Horfur á sunnudag: Suðlæg átt og fremur hlýtt í veðri. Vætusamt, einkum S- og V-lands. Horfur á mánudag: Suðlæg átt og fremur hlýtt í veðri. Helgarveðrið Sælkeri vikunnar er Þórarinn Ólafsson á Ísafirði Veislumatur og alþýðuréttur Sælkeri vikunnar býður upp á tvo rétti, saltfisksrétt sem hann segir að sé veislumatur og Chilli-Lasagna sem er al- þýðuréttur. „Ég er nú engin ofsa kokkur en get þó bjargað mér af og til í eldhúsinu. Yfir- leitt eru mínir réttir einfaldir og fljótlegir“, segir Þórarinn. Hann mælir með að að bera fram með saltfisknum soðnar kartöflur, ferskt salat, eðal- hvítlauksbrauð og síðast en ekki síst gott hvítvín. Með Chilli-Lasagnaréttinum segir hann að nauðsynlegt sé að hafa hvítlauksbrauð fátæka mannsins (þverskorið ristað brauð með smjöri og hvít- laukssalti) og kók. Réttur 1. Saltfiskur (veislumatur) Hráefni: Notið eðal-saltfisk hnakka úr þorski Beikon, möndlu-flögur, valhnetur, heslihnetur og rúsínur Magn: Magnið fer að sjálfsögðu eftir því hve margir eru í mat hverju sinni. Hinsvegar má endalaust narta í þennan rétt þrátt fyrir að hann sé orðin kaldur og því óhætt að hafa þetta ríflegt. Sjálfsagt er að nota 4-6 hnakka (800-1200g), eitt til tvö bréf af beikoni, hálf- an til heilann pakka af möndl- um og hnetum og rúsínur eftir smekk. Aðferð: Veltið hnökkunum upp úr hveiti og steikið með ólífuolíu á heitri pönnu þangað til að báðar hliðar eru orðnar nett gylltar. Setjið þá hnakkana í eldfast mót og inní ofn á 180°C næstu 10-15 mínúturn- ar. Á meðan hnakkarnir gera sig klára í ofninum þá takið þið beikonið, möndlurnar og hneturnar og ,,svissið” á pönnu. Rúsínurnar fara á pönnuna þegar búið er að ,,svissa” hitt hráefnið í ca. 5-6 mín. Þegar hneturnar eru orðn- ar vel ristaðar er tímabært að bera réttinn fram. Réttur 2. Chilli-Lasagna (alþýðuréttur) Hráefni og magn: Pakki af venjulegu Lasanga 2 grænar og góðar paprikur 4 litlir laukar 500-600g af nautahakki 2 dósir af heilum niður- soðnum tómötum 1 dós af tómatpúrru Aðferð: Svissið paprikuna og lauk- inn á pönnu með ólífuolíu á góðum hita. Þegar grænmetið er orðið vel lint takið þið það af pönnunni og setjið nauta- hakkið á pönnuna. Brúnið hakkið og kryddið vel með chilli dufti (ca. hálf dós) bætið tómötunum og tómatpúrrunni saman við hakkið. Þegar las- anga sósan/súpan (sem fylgir með í pakkanum) er orðin klár þá setjið þið hakkið og græn- metið saman við hana og látið malla saman í 4-5 mínútur. Að lokum hellið þið þessu í eldfast mót ofan á lasanga plöturnar, gerið 3-4 lög. Setjið svo inní ofn á 220°C í 25 mínútur. Takið þá mótið út og setjið vel af osti yfir. Aftur inní ofn í 10 mínútur í viðbót, eftir þann tíma ætti rétturinn að vera tilbúinn. Á meðan las- anga er að klára sig í ofninum er tilvalið að nota tímann og vaska upp og taka til í eldhús- inu. Ég skora á Bergljóti Hall- dórsdóttir á Ísafirði sem næsta sælkera enda veit ég fyrir víst að þar er á ferðinni kona sem lumar á mörgum snilldar uppskriftum. Auður Yngvadóttir og Ólína Þorvarðardóttir á námskeiðinu við Kröflu. Ísfirska björgunarhunda- sveitin við æfingar á Kröflu Þrír ísfirskir unghundar hafa nú fengið vottun sem efnilegir björgunarhundar með C-gráðu á vetraræfingu Björgunar- hundasveitar Íslands sem fór fram við Kröflu sl. viku. Hundarnir sóttu námskeiðið ásamt eigendum sínum sem sjá um þjálfun þeirra, en þau eru: Auður Yngvadóttir með Border-Collie hundinn Skímu, Ólína Þorvaðardóttir með dal- matíuhundinn Blíðu og Ágúst Hrólfsson með Rottweiler- hundinn Balta. Á námskeið- inu tók Auður Yngvadóttir ennfremur réttindi sem leið- beinandi við þjálfun björgun- arhunda. Markmið vetraræfingar af þessu tagi er að þjálfa og taka út björgunarhunda í snjóflóða- leit og björgun við vetrarað- stæður. Hundarnir eru æfðir og prófaðir í svokölluð A, B og C- próf. A og B próf eru vottun um að hundur sé tækur á útkallslista, C-próf er vottun um að hundur sé hæfur sem björgunarhundur og tækur til þjálfunar fyrir B-próf. Námskeiðið sóttu félagar í björgunarhundasveitum alls- staðar að af landinu, samtals 24 leitarteymi. Þar af voru sex leitarteymi af Vestfjörðum. Auk Ísfirðinganna fóru frá Patreksfirði: Bríet Arnardóttir með Skutlu (A-próf), Þröstur Reynisson með Lassa (A-end- urmat) og Smári Gestsson með Skyttu (unghund án gráðu). Ísfirsku teymin eru meðlim- ir í Björgunarfélagi Ísafjarðar og fá þaðan aðstoð við þjálf- unina. Þeir hundar sem nú tóku C-próf hafa verið í þjálf- un frá því í sumar og æft 1- 2svar sinnum í viku. Næst á döfinni er að halda helgarnám- skeið hér fyrir vestan, til þess að taka út og votta þá hunda sem ekki áttu heimangengt að þessu sinni. Það eru fjórir Border-Collie hundar. Frá Ísafirði eru: Skvísa Harðar Sævars Harðarsonar, Tinni Jónu Dagbjartar Guð- mundsdóttur og Patton Skúla Bergs og frá Patreksfirði Goði Ingþórs Keranssonar. – annska@bb.is Tíkin Blíða finnur mann í snjóholu. Straumur í gegnum slippinn Nóg er að gera í slippnum Skipanausti á Ísafirði. Verið er að leggja lokahönd á Unu SU 3, en verið var að breyta bátnum svo hann henti betur sem krókakerfisbátur, en það felst t.d. í því að sett er í hann ný beitningarvél. Að því loknu mun Una halda til Breiðdalsvíkur, þaðan sem hún verður gerð út. Á brautinni utan dyra er Gunnvör ÍS 53 en hana er verið að gera klára til humarveiða er hún heldur á til Vestmannaeyja í maí. Gunnvör var smíðuð á Ísafirði árið 1979 og hét hún upprunalega Hilmir ST, en síðast bar hún nafnið Bryndís ÍS. Í slippnum er einnig tvíbyttna í eigu HG sem nota skal við þorskeldi fyrirtækisins.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.