Bæjarins besta - 29.03.2007, Blaðsíða 20
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk
bb.is – fjölsóttasti vestfirski vefurinn
Bolvísku fyrirtækin Særaf
ehf. og Roland ehf. hafa verið
sameinuð Netheimum ehf. á
Ísafirði undir nafni Netheima.
Tilgangurinn er að búa til
stærri og öflugri rekstrarein-
ingu sem er betur í stakk búin
til að takast á við fleiri og
fjölbreyttari verkefni. Særaf
ehf. er í eigu Guðbergs Arn-
arssonar rafeindavirkja, en
fyrirtækið hefur m.a. sinnt
þjónustu við skipaflota Vest-
firðinga á sviði siglinga- og
fjarskiptatækja. Guðbergur
verður starfsmaður og hluthafi
í Netheimum og mun áfram
sinna þjónustu sem Særaf
hafði með höndum auk ann-
arra verkefna.
Roland ehf. er tölvuþjón-
ustufyrirtæki í Bolungarvík en
eigandi þess er Roland Smelt
tölvunarfræðingur. Fyrirtækið
hefur sérhæft sig í almennri
tölvuþjónustu til fyrirtækja og
einstaklinga. Roland Smelt
verður starfsmaður og hluthafi
í Netheimum og mun sinna
fjölbreyttum verkefnum fyrir
fyrirtækið.
Netheimar ehf. var stofnað
árið 2002 og hefur rekið tölvu-
þjónustu og verslun á Ísafirði
ásamt annarri tengdri starf-
semi. Fyrirtækið hefur á annað
ár starfað sem verktaki á þjón-
ustusviði fyrir Símann og á
samstarf við öflugustu fyrir-
tæki landsins á sviði upplýs-
ingatækni, Opin kerfi, EJS og
Nýherja. Stofnendur fyrir-
tækisins Lárus G. Valdimars-
son eðlisfræðingur og Magn-
ús Hávarðarson tölvu- og kerf-
isfræðingur munu starfa áfram
hjá fyrirtækinu.
Netheimar eru um þessar
mundir að taka í notkun glæsi-
legt húsnæði að Aðalstræti 20
á Ísafirði, sem er fyrrum hús-
næði Sparisjóðs Vestfirðinga,
og gefur það að sögn fyrir-
tækinu aukin sóknarfæri á
mörgum sviðum. Jafnframt
mun fyrirtækið reka starfsstöð
í Bolungarvík. Sex manns
starfa hjá Netheimum eftir
sameiningu fyrirtækjanna
þriggja. – eirikur@bb.is
Særaf ehf. og Roland ehf. sameinast Netheimum
Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra segir ánæ-
gjulegt hve mörg góð tilboð
hafi borist í gerð nýs Trölla-
tunguvegar, en eins og kem-
ur fram hér í blaðinu voru
tilboð verktaka í gerð veg-
arins mörg hver langt undir
áætluðum verktakakostn-
aði, sem hljóðaði upp á
865,6 milljónir króna. Þannig
er lægsta tilboðið frá Ingileifi
Jónssyni ehf, en það hljóðar
upp á tæpar 662 milljónir
króna, um 200 milljónum
undir kostnaði.
Næstlægsta tilboðið er frá
Klæðningu ehf og hljóðar upp
á 696 milljónir króna. Sturla
segir að þetta sýni að verið er
að bjóða út á hárréttum tíma
og að slaknað hafi á verð-
bólguspennuni. Lág tilboð
eru auðsjáanlega til hags-
bóta og mun Sturla leggja
til að mismuninum verði
varið í uppbyggingu Vest-
fjarðarvegar, en hann vill
hraða uppbyggingu vega
um Barðaströndina.
Mismuninum varið í upp-
byggingu Vestfjarðavegar
Vinna við fyllingu yfir Reykjafjörð gengur vel. Mynd: Páll Önundarson.
Vegagerð um Reykjafjörð
við Ísafjarðardjúp gengur
samkvæmt áætlun. Verið er
að gera fyllingu yfir fjörðinn
en það eru verktakafyrirtækin
KNH og Vestfirskir verktakar
sem sjá um verkið. Að sögn
Sigurðar Óskarssonar hjá
KNH gengur allt samkvæmt
áætlun, en um 35 manns vinna
að verkinu.
Vegurinn sem leggja á í
þessum áfanga er 14,5 km
langur, frá Rauðagarði á
Reykjanesi að Hörtná vestan
Mjóafjarðar. Á honum verða
þrjár brýr; 130 m stálbogabrú
á Mjóafjörð, 60 m spennt
bitabrú á Reykjafjörð og 10
m steypt plötubrú á Vatns-
fjarðarós. Verkið er með þeim
stærstu sem boðin hafa verið
út í vegagerð hérlendis.
Verkefninu á samkvæmt
útboði að vera að fullu lokið
1. nóvember 2008.
– tinna@bb.is
Vegagerð í Mjóafirði í Ísafjarðar-
djúpi gengur samkvæmt áætlun
Vinstri Græn-
ir auka fylgið
í NV-kjördæmi
Sjálfstæðisflokkur og
Vinstrihreyfingin – grænt
framboð eru nærri því jafn
stórir í NV-kjördæmi sam-
kvæmt skoðanakönnun
Capacent Gallup sem birt
var fyrir helgi.
Sjálfstæðisflokkur fær
29,9% atkvæða, en VG fær
29,3% atkvæða. Þá fær
Samfylkingin 20% og
Framsóknarflokkurinn
12%. Frjálslyndi flokkur-
inn fær 7,3%, sem er meira
en í nokkru öðru kjör-
dæmi, en aðrir flokkar fá
1,5% atkvæða, samkvæmt
könnun Capacent Gallup.
– eirikur@bb.is
Fæðingum fækkar á Vestfjörðum
Alls kom 91 barn í heiminn
á Vestfjörðum á síðasta ári,
samkvæmt nýjustu tölum
Hagstofu Íslands, en svo fáir
hafa ekki fæðst á svæðinu ára-
tugum saman. Tvisvar hefur
það gerst á síðustu 16 árum
að 92 börn hafi fæðst á einu
ári, árið 2001 og árið 2005.
Að meðaltali fæddust 134
börn á ári síðustu 16 árin. Flest
börn fæddust árið 1994, eða
198, en eins og áður segir
fæddust fæst í fyrra. Ef tíma-
bilinu er skipt í tvennt sést að
á tímabilinu 1991-1998 fædd-
ust að meðaltali 163,5 börn á
ári, en á tímabilinu 1999-2006
fæddust að meðaltali 104,5
börn á ári. Fæðingum milli
þessara tveggja átta ára tíma-
bila fækkaði þannig um 36%.
Ef litið er til sveitarfélaga
þá töldust 8 fæddir til Bol-
ungarvíkur, en 13 á síðasta
ári. 58 töldust fæddir til Ísa-
fjarðarbæjar, en 47 á síðasta
ári. Þrjú börn fæddust til
Reykhólahrepps, líkt og í
fyrra, og 4 fæddust til Tálkna-
fjarðarhrepps, einnig líkt og í
fyrra. Fimm börn fæddust til
Vesturbyggðar, en 14 í fyrra.
Fjögur börn fæddust til Súða-
víkurhrepps en 5 í fyrra. Eitt
barn fæddist til Árneshrepps,
en ekkert í fyrra. Eitt barn
fæddist til Kaldrananeshrepps
en þrjú í fyrra.
– eirikur@bb.is Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði.