Listin að lifa - 01.12.2000, Side 3

Listin að lifa - 01.12.2000, Side 3
Langir biðlistar sjúkrahúsa valda sjúklingum þjáningum Biðlistar fylgja öllum sjúkrahúsum, en forsenda eðlilegs sjúkrahússrekstrar og að heilbrigðisþjónustunni sé sinnt samkvaemt lögum, er að biðtími eftir aðgerð eða umönnun sé við hæfi. Kannanir landlæknisembættisins hafa leitt í Ijós, að á síðastliðnum fjórum árum eru að staðaldri um 7000 manns á biðlistum og meiri hluti þeirra kemur úr röðum eldri borgara. Á einstaka listum hefur orðið smávægileg fækkun. Athugun á bæklunarlistum sýnir, að allt að 65% sjúklinga bíða 6-12 mánuði eftir aðgerð, þrátt fyrir verulegar þján- ingar á biðtímanum og draga fram lífið á sterkum verkja- og svefnlyfjum. (Rannsókn SHR). Margoft hefur komið fram að lang- ur biðtími eftir rannsókn og að- gerð vegna kransæðasjúkdóma, dregur úr lífslíkum sjúklinga. (Landlœk?iisembœtuð 1997). Áður fyrr gengu gallsteinasjúkling- ar fljótlega undir aðgerð, en nú er algengt að yfir 60% þeirra komast ekki í aðgerð fyrr en ástand þeirra hefur stórversnað og batalíkur minnkað. (Próf. J. Magnússon). Nú bíða yfir 250 aldraðir eftir hjúkr- unarplássi á Reykjavíkursvæðinu, en 30-40% þeirra eru of veikir til þess að bíða heima að áliti Pálma V. Jónssonar forstöðulæknis öldrunarsviðs. Vegfarendur á götum borgarinnar mæta á hverjum degi illa þjáðum ein- staklingi vegna geðsjúkdóms eða vímu- efnaneyslu. Skortur á sjúkrarými veld- ur því, að margt fársjúkt fólk fær ekki vistun, en reikar um götur með lyf í vasa sem það hefur ekki rænu á að taka inn. Jafnvel eru dæmi þess að fólk er útskrifað samdægurs eftir sjálfsmorð- stilraun, með til að mynda alvarlega lík- amlega áverka. Rekja mætti fjölmargar raunasögur um afdrif biðlistasjúklinga sem beðið hafa marga mánuði, óvinnufærir og illa þjáðir. Stundum má lesa greinarkorn og jafnvel leiðara í dagblöðum um „hvort verið sé að leggja fólk inn á sjúkrahús að óþörfu?“ Vissulega leggja vaktlækn- ar fólk stundum inn á sjúkrahús vegna gruns um einkenni alvarlegs sjúkdóms sem síðan líður hjá, a.m.k. í bili og jafn- vel að fullu. Hver getur staðhæft að inn- lögn hafi verið óþörf? Kannanir landlæknisembættsins á ár- unum 1995-97 leiddu í ljós að afköst og árangur íslenskra sérgreinadeilda og minni sjúkrahúsa er svipaður og gerist á bestu sjúkrahúsum á Norðurlöndum. Dönsk ráðgjafarstofnun komst að svip- aðri niðurstöðu. Við verðum að hafa í huga að yfirgnæfandi hluti íslenskra lækna og margra hjúkrunarfræðinga hefur áralanga starfsreynslu á útlensk- um heilbrigðisstofnunum. Til þess að fá staðfestingu á afköst- um sérdeilda er bent á yfirlitsgrein í breska læknablaðinu (B.M.J.) í sept. 1999, en þar kemur fram að legutími á íslenskum sérdeildum er styttri en á bandarískum sérdeildum, sem þó losna fyrr við sjúklinga vegna sjúkrahótela sem rekin eru í nánum tengslum við deildir þar. Kvartanir berast oft um stuttan legutíma og „of hraða útskrift“ sjúklinga hér á landi. Vafasamt er, að samanburður á af- köstum annarra atvinnugreina hérlendis við samsvarandi atvinnugreinar í út- löndum sé hagstæðari en hér er nefnt. Að lokum má spyrja: „Hvaðan koma þær hugmyndir stjómenda og stjórn- málamanna um afköst sjúkrastofnanna, sem stangast þvert á athuganir þeirra er sinna veiku fólki daglega?" Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni mótmælir kröftuglega fækkun sjúkrarýma á hjúkrunar-, geð- og handlækningadeildum eins og fram kemur í fjárhagsáætlun stóru sjúkrahúsanna í Reykjavík fyr- ir árið 2001, þar sem stór hluti þess fólks sem er á biðlistum er eldra fólk. f.li. stjómar Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni fÉlafíw 'f&Iafs&ati fmmaátw 3

x

Listin að lifa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.