Listin að lifa - 01.12.2000, Blaðsíða 7

Listin að lifa - 01.12.2000, Blaðsíða 7
SKOÐUN STJÓRNMÁLAMANNS: Máiefni aldraðra í ísafjarðarbæ ÍSAFJARÐARBÆR Þann i. júní 1996 varð til sveitarfé- lagið ísafjarðarbær við sameiningu sex sveitarfélaga í eitt. Þessi sveit- arfélög voru ísafjarðarkaupstaður, Suðureyrarhreppur, Flateyrarhrepp- ur, Mosvallahreppur, Mýrahreppur og Þingeyrarhreppur. Fjórir byggða- kjarnar og tveir sveitahreppar. Alls búa í þessu nýja sveitarfélagi um 4.300 manns. Eins og nærri má geta var misjafnt hvernig staðið var að þjónustu og hvernig hún var veitt í sveitarfélögun- um sem sameinuðust. Kom þar m.a. til stærð þeirra, en í ísafjarðarkaupstað bjuggu 3.500 manns þegar í hinum fímm sveitarfélögunum bjuggu um 1.000 manns til samans. Miðstöð stjómsýslunnar er í stærsta byggðakjamanum, ísafirði, og þar er fjölbreyttust þjónusta. Stefnt hefur verið að hagræðingu í rekstri frá sam- einingu, en halda sem mestri þjónustu á vegum sveitarfélagsins í hverjum byggðakjarna fyrir sig, þ.á m. í mál- efnum aldraðra. Innan stjómkerfis Isafjarðarbæjar hafa málefni aldraðra verið undir stjóm félagsmálastjóra, en nýverið tók til starfa ný skrifstofa á vegum bæjarins, Skóla- og fjölskyldu- skrifstofa Isafjarðarbæjar, sem sér um stjórn málaflokksins. Vænta má breyt- inga í tengslum við það, ekki síst hvað varðar samræmingu þjónustunn- ar. YFIRLIT YFIR ÞJÓNUSTUNA Á Þingeyri var tekin í notkun ný bygging sem þjónar heilsugæslunni og hjúkrunardeild fyrir fimm einstak- linga. Auk þess stendur til að bjóða út innréttingu á fimm þjónustuíbúðum í sömu byggingu fyrir áramót. Þá er rekið félagsstarf eldri borgara á Þing- eyri í kjallara heilsugæslustöðvar- innar. Er það vel sótt en um 18-20 manns nýta sér þá þjónustu. Hlutfalls- lega eru fleiri aldraðir á Þingeyri og í Dýrafirði en annars staðar í ísa- fjarðarbæ og því mikil þörf fyrir þjónustuíbúðir og almenna þjónustu fyrir aldraða. Á Flateyri er Öldrunarheimilið Sól- borg sem er rekið af Heilbrigðis- stofnun Isafjarðarbæjar sem hjúkrun- arheimili. Þar er pláss fyrir sjö vist- menn. Félagsstarf aldraðra er rekið í samstarfi við Rauða kross deildina á staðnum en í húsnæði ísafjarðarbæjar. Á Suðureyri er dagvistun aldraðra í Sunnuhlíð, að meðaltali eru 6-7 manns sem nýta sér þá þjónustu. Ekki eru hjúkrunarheimili eða þjónustu- íbúðir á Suðureyri. Á Isafirði eru íbúðir og þjónustu- deild á Hlíf. Á Hlíf I eru 30 leigu- íbúðir og Hlíf II 42 íbúðir sem lang- flestar eru í eigu einstaklinga. Þá eru 10 herbergi á þjónustudeild (hjúkrun- ardeild) sem rekin er af sveitarfélag- inu. I allt eru tæplega 100 manns á Hlíf. Dagvistun aldraðra er staðsett á Hlíf, en lítið notuð af eldri borgurum sem búsettir eru utan Hlífar. Vinnustofan á Hlíf er vel nýtt. Þangað kemur fólk utan úr bæ og nýtir sér aðstöðuna ásamt heimafólki á Hlíf. Til viðbótar vinnustofunni hafa nokkrir einstaklingar búsettir á Hlíf skapað sér aðstöðu til smíða. Þessu til viðbótar má nefna heimaþjónustu sem veitt er eftir að fram hefur farið þjónustumat. Hámark í veittri heimaþjónustu eru 4 tímar á viku. Þá er einnig verið að skoða hvort koma eigi á liðveislu fyrir aldraða. Hér er um upptalningu að ræða á því helsta sem um er að vera í mála- flokknum og tengist ísafjarðarbæ með beinum hætti. Ymis starfsemi er á vegum félaga aldraðra í bæjarfélaginu þessu til viðbótar. Það er stefna bæjar- yfirvalda að á hverjum tíma séu sköpuð góð skilyrði til búsetu í Isafjarðarbæ, sama hvar búið er í bæn- um og á hvaða aldri íbúar bæjarins eru. Með kærri kveðju úr ísafjarðarbæ ^X/Mdáv <:}íaíidón&&an, bœjarstjóri HtlMSENDlNGAR þjÓNUSTA .UAI-Sl 1 50 70 OPIÐ ÖLL KVÖLD VIKUNNARTILKL 21.00 HRINGBRAUT 1 19, -VIÐJL HUSIÐ,

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.