Listin að lifa - 01.12.2000, Qupperneq 10
emvemd
WS
Beinvernd er landssamtök áhuga-
fólks um beinþynningu, jafnt leikra
sem laerðra. Samtökin voru stofnuð
12. mars 1997 í Reykjavík. Stjórn
Beinverndar skipa sjö manns og er
Ólafur Ólafsson, fyrrverandi land-
læknir, formaður.
Markmið félagsins eru fjögur:
1. Að vekja athygli almennings og
stjórnvalda á beinþynningu sem
heilsufarsvandamáli.
2. Að standa að fræðslu meðal al-
mennings og heilbrigðisstétta um
þá þekkingu sem á hverjum tíma er
fyrir hendi um beinþynningu og
varnir gegn henni.
3. Að stuðla að auknum rannsóknum
á eðli, orsökum og afleiðingum
beinþynningar og forvörnum gegn
henni.
4. Að eiga samskipti við erlend félög
á svipuðum grundvelli.
Beinvernd er aðili að alþjóðlegu sam-
tökunum International Osteoporosis
Foundation. Veffang Beinverndar er
www.beinvernd.is og netfang
beinvernd@beinvenul.is Upplýsingar
gefur einnig starfsmaður Beinverndar,
Halldóra Björnsdóttir, halldora@-
beinvernd.is. Sími Beinverndar er
897-3119.
BEINÞYNNING
Beinin eru lifandi vefur, sem inniheld-
ur kalk, og er í stöðugri endurbygg-
ingu, þ.e. niðurbroti og nýmyndun,
enda þótt fullum vexti sé náð. Þar eru
að verki bæði beinmyndunarfrumur
og beinúrátur. Á aldrinum milli 20-40
ára er jafnvægi þarna á milli og bein-
magnið helst stöðugt. Beinmassinn er
mestur á þessum aldri. Röskun á jafn-
vægi beinmyndunar og beinniðurbrots
veldur því að beinvefurinn rýrnar og
það ástand skapast sem við köllurn
beinþynningu. Við beinþynningu
þynnist hin harða og þétta skurn bein-
anna og frauðbeinið, sem fyllir hol
þeirra, gisnar. Við þetta minnkar
styrkurinn, beinin verða stökk og
hætta á brotum eykst við minnsta
átak.
Beinþynning er mjög útbreiddur
sjúkdómur, milljónir manna um allan
heim eru haldnar honum. Flestir vita
ekki, að þeir eru með sjúkdóminn því
hann er einkennalaus uns beinin eru
orðin svo stökk og viðkvæm að þau
geta brotnað við lítinn áverka.
Afleiðingar beinþynningar eru
beinbrot við lítinn áverka, einkum á
efri árum. Algengust þessara brota
eru framhandleggsbrot, hryggsúlubrot
og mjaðmarbrot.
Framhandleggsbrot gróa oftast án
fylgikvilla. Samfallsbrot á hrygg eða
hrun getur valdið miklum og stundum
langvinnum verkjum. Líkamshæðin
lækkar með tímanum, þ.e. líkaminn
bognar. Þá fylgja aflögun í vexti oft
verulegar sálarþjáningar. Lærleggs-
hálsbrot eru alvarlegust og nær alltaf
afar sársaukafull. Dánartíðnin er um-
talsverð fyrstu vikurnar eftir brotið, og
margir ná aldrei fyrri getu. Það er fátt
sem rýrir lífsgæði eins mikið á efri
árum og beinþynning.
HELSTU VERKEFNI BEIN-
VERNDAR AÐ UNDANFÖRNU
Dagana 4.-6. júní 2000 var Beinvernd
einn af styrktaraðilum norrænnar
öldrunarráðstefnu, 15th Nordic Ger-
ontological Congress 2000, sem hald-
in var í Reykjavík. Á ráðstefnunni var
Beinvernd með sýningarbás, þar sem
starfsemin var kynnt fyrir fagaðilum í
heilbrigðisþjónustu.
Dagana 6.-9. júlí sl. tók Beinvernd
þátt í landbúnaðarsýningunni BÚ
2000 í samstarfi við íslenska mjólkur-
iðnaðinn, sem er styrktaraðili Bein-
verndar. Þar var Beinvernd með
sýningarbás og stóð fyrir spurninga-
leik um mjólkina og beinin. Á hverj-
um degi kom gestur í bás Beinvemdar
og svaraði spumingum gesta um
beinþynningu. Gestirnir voru Aðal-
steinn Guðmundsson lyflæknir og
öldrunarlæknir, Ólafur Ólafsson fyrrv.
landlæknir og formaður Beinverndar
BEINVERND
og Ársæll Jónsson lyflæknir og öldr-
unarlæknir.
Þann 20. október sl. var alþjóðlegur
beinverndardagur og hófst undirbún-
ingur hans af hálfu Beinverndar þegar
á haustdögum. Slagorð Beinverndar-
dagsins var „Fjárfestu í beinum'1 og
var því einkum beint að ungu
kynslóðinni. Áhersla var lögð á mikil-
vægi þess að gæta strax á unga aldri
að beinheilsunni, á meðan líkaminn er
að taka út sinn vöxt og þroska. Allir
nemendur í 8. bekk grunnskólans (13
ára) fengu afhentan bæklinginn Holl-
usta styrkir bein ásamt spurn-
ingablaði um mjólkina og beinin.
íþróttakennarar ræddu við nemendur í
íþróttatímum um hreyfingu og hollt
mataræði. Beinvernd opnaði upplýs-
ingavef www.beinvernd.is þar sem
hægt er fá upplýsingar og fræðslu um
þennan þögla sjúkdóm, beinþynn-
inguna. Einnig voru skrifaðar greinar
sem birtust í Degi og Morgunblaðinu
og viðtöl í sjónvarpi og útvarpi til-
einkuð deginum.
Gott er að hafa ætíð í huga að
helstu forvamir gegn beinþynningu
eru hreyfing, kalk og D-vítamín. Við
ættum að forðast að sitja lengi í senn.
Munum að standa alltaf upp af og til
og hreyfa okkur. Hreyfing og líkam-
leg þjálfun styrkir bæði vöðva og
bein, bætir jafnvægi og dregur þannig
úr byltum.
^dtaltdáxa ifájÖMi&dóMvv,
starfsmaöur Beinvenidar
10