Listin að lifa - 01.12.2000, Page 11
Frá Félagi áhugafólks um íþróttir
KYNNISFERÐ TIL HORNAFJARÐAR
Félagið hefur staðið fyrir kynnis- og fræðsluferðum á
landsbyggðinni í sumar. Ferðast var um Vestfirði 5. til
9. júní. Á Neskaupsstað var fundað 20. júní, en þang-
að kom fólk úr Fjarðarbyggð. Síðasta ferðin var til
Hornafjarðar helgina 14. til 15. október. Leiðbeinendur
þar voru Cuðrún Nielsen, Ernst Bachmann, Soffía Stef-
ánsdóttir, Ólöf Þórarinsdóttir og Hjörtur Þórarinsson.
Námskeiðið fór fram í Mánagarði, en páttkeppnin í fé-
lagsmiðstöðinni í Sindrabæ fyrir hádegi á sunnudag.
Heimamenn undir forystu Sigurðar Hjaltasonar og Auð-
ar Jónasdóttur íþróttakennara höfðu auglýst vel fyrirhug-
að námskeið í Eystrahorni og skjávarpi. Þátttakendur á
námskeiðinu voru 50, en 27 í púttkeppninni.
Fjölbreytt verkefni voru tekin fyrir. Markmið félags-
ins var kynnt í upphafi og 15 ára starfsemi þess.
Fræðsluerindi var haldið um heilsufar og gildi hófsamrar
hreyfingar. Síðan voru teknir fyrir línu- og hópdansar,
hringleikir og boltaleikir, æfingar með fallhlíf, létt leik-
fimi með slökunaræfíngum og með teygjuböndum.
Ýmsir samkvæmis- og athyglisleikir voru kynntir og al-
mennur söngur var öðru hvoru. Þrír hópar léku boccia
og krokketleikurinn var kynntur.
Einnig voru veittar upplýsingar um hagkvæm innkaup
á íþróttatækjum o.fl.
Þessi kynning féll í góðan jarðveg hjá eldri borgurum
á Homafírði. Þeir eru með vatnsleikfimi, líkamsrækt,
aldraðra:
Hringleikur í Mánagarði.
boccia, borðtennis, golf og fleira. Svona kynningarfund-
ir á einstökum stöðum gefa eldri borgurum upplýsingar
um ýmsa valkosti, sem eru háðir áhuga og kunnáttu ein-
staklinga á hverjum stað.
Miklar þakkir fengum við að launum fyrir þessa ferð,
auk ánægjunnar sem við höfum af því að vera þátttak-
endur með áhugasömu eldra fólki að viðhalda lífsgleði
og góðri heilsu.
Ahrifamættinum eigi skal leynt,
íþróttir vekja hressandi brag.
Markmiðið okkar er: Aldrei of seint
að auka sér gleði og lífsþrótt hvern dag.
^KföiUw tfkÍMimsson
Grafarvogs
Apótek
Torginu Grafarvogi
Hverafold 1-5, 112
Reykjavík
Alm. sími 587 1200
Læknasími 587 1202,
Fax 587 1225
OPIÐ:
mánud.-föstud. 9-19
laugard. 10-14
Heyrnar- og
talmeinastöð
íslands
Háaleitisbraut 1 • Reykjavík
Sími 581 3855 • Fax 568 0055
Netfang:postur@hti.is
SJÓNSTÖÐ
ÍSLANDS
Þjónustu- og
endurhæfingarstöð
sjónskertra
Hamrahlíð 17 • 105
Reykjavík
Sími 568 8765
Opið mánudaga til
föstudaga
frá kl. 9-16
Tilvísun frá augnlækni
er skilyrði fyrir þjónustu
11