Listin að lifa - 01.12.2000, Síða 22
Fréttamolar frá FEB í
Reykjavík
Frá skrifstofunni
Tryggingamiðstöðin, Aðalstræti
6-8, og FEB hafa skrifað undir
svohljóðandi samning:
TM mun veita umbjóðendum FEB
eftirfarandi tryggingarkjör:
• 10% afslátt af TM-ÖRYGGI.
• 20% aukaafslátt af fjölskyldu- og
fasteignatryggingum.
• Öll áunnin réttindi frá öðrum
tryggingafélögum, s.s. bónus á
bifreiðatryggingum, flytjast yfir
til TM með viðskiptunum.
Öll tjónaafgreiðsla og iðgjalda-
ákvarðanir fara fram á skrifstofu TM
og eru unnin þar af starfsfólki TM.
Hvor aðili mun tilnefna sinn tengilið
til að framfylgja þessu samkomulagi.
BREYTTUR OPNUNARTÍMI! Frá
og með 1. nóvember er skrifstofan
opin frá kl. 10.00 til kl. 16.00 alla
virka daga.
SILFURLÍNAN undir skrifstofusíma
tvisvar í viku! Silfurlínan er nú
opin á morgnana frá kl 10.00 til
12.00 mánudaga og miðvikudaga.
María H. Guðmundsdóttir situr við
símann, Anna Jónsdóttir er henni til
aðstoðar.
LÖGFRÆÐIRÁÐGJÖF Á ÞRIÐJU-
DÖGUM! Lögfræðingur félagsins,
Þorvaldur Lúðvíksson, veitir félags-
mönnum ráðgjöf á þriðjudögum.
Tímapantanir á skrifstofu.
MÆTIÐ Á ÞINGPALLANA! Stjóm
Félags eldri borgara vill hvetja fé-
lagsmenn til að mæta á palla Al-
þingis og fylgjast með málum er
snerta hag aldraðra.
MINNINGARKORT FEB eru til
sölu á skrifstofunni.
Frá félagsstarfinu
ÁRSHÁTÍÐIN var haldin í Ásgarði
Glæsibæ 10. nóvember. Veislustjóri
var Árni Johnsen alþingismaður og
ræðumaður kvöldsins var Stein-
grímur J. Sigfússon alþingismaður.
Félagar úr Karlakórnum Þröstum
sungu nokkur lög. Þorsteinn Ólafs-
son og Jónína Magnúsdóttir sáu um
gamanmál.
Hljómsveitin Upplyfting lék fyrir
dansi. Mikið var dansað, skemmti-
kraftar fóru á kostum, frábær
kórsöngur og góð hljómsveit.
Efnt var til happdrættis sem eftirtal-
in fyrirtæki styrktu: Nói - Siríus,
Ostabúðin Bitruhálsi, Verslunin 10
- 11, og Nettó í Mjódd. Þökkum
við þeim veittan stuðning.
JÓLAVAKAN verður í Ásgarði,
Glæsibæ, 9. desember. Söngfélagið
stendur fyrir vökunni og söngnum -
allir syngja jólalögin saman.
Súkkulaði og meðlæti á borðum að
góðum og gömlum jólasið. Séra
Olöf Ólafsdóttir flytur jólahug-
vekju. Nánar auglýst síðar.
HEITUR MATUR í HÁDEGINU! í
félagsheimilinu okkar Ásgarði er
seldur heimilismatur í hádeginu alla
virka daga. Góður matur á góðu
verði.
Hdrkollugerð
Kolfinnu Knútsdóttur ehf.
Fyrir konurnar:
•/
• mikið úrval af hárkollum
• íalleg höfuðföt svo seni:
• túrhanar
• úti höfuðföt
• næturhúfur
http://www. harkollugerd. is
Hárkollugerð Kolfinnu Knútsdóttur ehf,
Skólavörðustíg 8, 2. hæð, 101 Reykjavík,
Sími 511 5222, Gsm 896 7222
e-mail: kolfinna@harkollugerd.is
Bókagjöf:
FEB í Reykjavík barst að gjöf bókin „Hugleiðingar og
minningabrot" eftir Sæmund Bergmann Elimundarson
frá Hellissandi, gefin út sem handrit af höfundi í tilefni
af 85 ára afmæli hans 6. október 2000. Bókin er einkar
góð heimild um uppvaxtarár á Snæfellsnesi í mikilli
fátækt og hugleiðingar aldraðs manns á vistheimili um
álitamál í íslensku þjóðfélagi sem vert er að glugga í.
22