Listin að lifa - 01.12.2000, Síða 26

Listin að lifa - 01.12.2000, Síða 26
af manngöfgi Samverustund með Pétri Sigurgeirssyni biskupi og konu hans Sólveigu Ásgeirsdóttur Jólin eru að koma. Árstíð þúsund ára kristnitöku á íslandi senn á enda. Söguleg öld að baki, ný öld fram- undan. Á slíkum tímamótum er gott að staldra við, horfa til baka og fram á veginn. Og spurningar vakna. Hvað gerir kristin trú fyrir okkur? Ceta íslendingar haft áhrif úti í hinum stóra heimi, með frið á jörðu að leiðarljósi, nú þegar fagnaðarerindið mun brátt boðað í upphafi á þriðja árþúsundi? Þegar gamli tíminn er kvaddur, ný öld að fæðast, er gott að leita svara hjá manni sem vitnar í biblíuna á hraðbergi og svarar oft í ljóðmáli. Pétur Sigurgeirsson, biskup íslands á níunda áratugnum, lýsir af trúarbirtu og manngöfgi. Hann er nú orðinn 81 árs, með langvinna sykursýki og sjóndepru, en tók góðfúslega á móti miðli eldri borgara. Hlýleiki andans unilykur mann í návist séra Péturs. Ljóðmál streymir af vörum hans, iíkt og hughrif hans umbreytist í myndir, hlaðnar trúar- táknum. Þegar hann íhugaði nafnið á blaðinu okkar „Listin að lifa“ kom eftirfarandi vers í huga hans: Lífið er hlekkur langrar keðju; listin samfélags; einn og sérhver öðrum þjóni; önn er sú hvers dags. Þjóni einn sér einum verður; engin keðja til; allt sem gafstu ævinlega; áttu þér í vil. Nafnið Pétur (klettur) gaf Kristur einum af lærisveinum sínum. Pétur biskup er líka bjargfastur í trúnni. Allt hefur styrkt trú hans, bæði mótlæti lífsins og meðbyr og gert hann að áhrifamiklum andlegum leiðtoga. Fyrr á öldum var leitað til slíkra manna og þeir nefndir spekingar. Pétur biskup og frú Sólveig eiga fallegt heimili í Hjálmholtinu, með útsýni til Esjunnar og nálægra kirkna. Kirkjuklukknahljómur berst oft til eyma öldungnum unga sem situr hér við andlega íhugun, en fylgist vel með heimsfréttum og lætur sig dreyma um betri heim. „Látum anda jólanna ríkja allt árið“ var yfirskrift Péturs í fyrsta æskulýðsblaði kirkjunnar á Akureyri á sóknarprestsárum hans þar. Þau gleyma því aldrei, ungmennin þá, sem hlustuðu á séra Pétur lýsa því hve stórkostlegt það væri, ef kærleikur jólanna næði að geisla út frá sér - allt árið. Jólaguðspjallið boðar frið á jörð. „Jólin opna hugann, allt er svo jákvætt á jólunum, en jólahaldið dregur dám af því þjóðfélagi sem við lifum í. Umbúðirnar eru orðnar svo miklar, að það er langt í kjarnann. Jólin snerta samt alla,“ segir Pétur. „Konan mín og börnin voru vön að fara með mér til guðsþjónustu um hátíðina, sem og aðra helgidaga, en yfir jóladagana átti ég mjög annríkt vegna ýmissa aukaverka. Það féll í hlut konu minnar að sjá um undir- búning jólanna heima, sem hún gerði af einstakri smekkvísi og ástúð. Það var ávallt unaðslegt að koma heim eftir annasama daga og taka þátt í jólagleðinni. Aðalmessa ársins fannst mér ávallt vera aftansöngur á aðfangadagskvöld. Kirkjan var þá troðfull af fólki og kirkjusókn mikil alla hátíðisdagana. Ógleymanlegt var, þegar allir sungu saman Heims um ból. Ég lagði mikla áherslu á að kirkjan ómaði öll af sálmasöng og það tókst svo sannar- lega í það skiptið. Af hverju valdirðu prestsstarfíð, séra Pétur? „Ég hef frá því ég man eftir mér verið trúhneigður, enda vanur því sem barn að fara með foreldrum mínum í kirkju. Faðir minn stofnaði unglinga- félag innan kirkjunnar árið sem ég fermdist og var ég virkur í þeim félagsskap. Faðir minn hafði afar sterk áhrif á mig, en ekki man ég eftir að hann orðaði sérstaklega við mig að ég yrði prestur. í huga mér var sterk sú spurning: hvar er þörf fyrir mig? Ég var í 5. bekk MA, þegar ég heyrði í útvarpinu að hann hefði verið kosinn biskup. Þá hvarflaði að mér að verða prestur í kirkjunni sem hann stjórnaði. Atta árum síðar stóð ég andspænis altari Dómkirkjunnar og frammi fyrir föður mínum. Þá vígði hann mig sem aðstoðarprest séra Friðriks J. Rafnars vígslubiskups á Akureyri. í fullu trausti til Drottins fann ég trúaranda koma til mín frá föður til sonar. Líkt og Samúel forðum daga heyrði guðsröddina: „Hvern skal ég senda, hver vill vera erindreki vor?“ sagði ég: „Hér er ég, sendu mig!" Þú valdir nám í blaðamennsku samhliða framhaldsnámi í guðfræði. 26

x

Listin að lifa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.