Listin að lifa - 01.12.2000, Side 27

Listin að lifa - 01.12.2000, Side 27
1 I Oft var gestkvæmt á biskupsheimilinu og þarna standa séra Pétur og Sólveig við fagurlega búið veisluborð. „Blaðamaður og prestur eiga sameiginlegt - að flytja fréttir. Blaðamennskan hefur oft hjálpað mér í boðun orðsins. Postulastarfið felur í sér að flytja tíðindi. Ein ritningargrein hefur orðið mér sérstaklega minnis- stæð. Ég myndi vilja kalla hana litlu biblíuna mína, líkt og Lúther á sínum tíma talaði um (Jóh. 3:16) sem ég auðvitað tek heilshugar undir og eru hliðstæð litlu biblíunni minni, en það eru þessi orð: því að það var Guð, sem í Kristi sætti heiminn við sig, er hann tilreiknaði þeim ekki afbrot þeirra og fól oss að boða orð sáttargjörðarinnar. (2. Kor. 5:19). Báðar fara þessar „litlu biblíur“ vel saman og stækka hvor aðra af ríkdómi sínum.“ Pétur er mjög hrifnæmur maður. Á fögum augnablikum spretta upp sálmar í huga hans sem færa mörgum hugarró. Sálmurinn HIMNESKUR FRIÐUR varð til á slíkri stund. „Þá vorum við Sólveig stödd í Frúarkirkju, höfuðhelgidómi Dan- merkur, framan við Kristsmyndina frægu eftir Bertel Thorvaldsen sem sýnir Krist með útbreiddar hendur: „Komið til mín“ Er við Sólveig vorum að dáðst að Kristsmyndinni kom banda- rískur æskulýðskór í sömu erindagjörðum. Krjúpa þarf við altarið til að horfast í augu við Krists- myndina. Unglingarnir skiptust á og hófu að syngja svo fallegt lag, að ég varð yfir mig snortinn. Söngur þeirra gerði augnablikið að hrífandi bæna- stund framan við þetta fræg- asta og helgasta listaverk Thorvaldsen. Á eftir bað ég söngstjórann að gefa mér nótur að laginu, hvað hann fúslega gerði. Þegar ég svo fór að gera söngbók fyrir unglingana fyrir norðan lét ég lag og texta fylgja með.“ Ég hef heyrt mikið látið af unglingastarfi þínu á Akureyri, viltu segja okkur aðeins frá því? „I Bandaríkjunum kynntist ég unglingastarfi lúthersku safnaðanna „Luther League.“ Starfið var mjög lifandi og ég leitaðist við að koma á fót svipuðu æskulýðsstarfi í Akureyri sem var nýjung þá. Fullorðið fólk, sem tók þátt í því á sínum unglingsárum, segist aldrei gleyma því. Fermingin, sem er staðfesting skírnarinnar, er um leið staðfesting þess að unglingurinn sé fullgildur safnaðarmeðlimur. Hins vegar reynist það svo því miður að unglingar sækja yfirleitt ekki til kirkjunnar, sem hvatti mig til að fá þá eftir ferminguna. Ég varpaði þessháttar spurningu fram í lok undirbúningstímanna vorið 1947. Bömin réttu samstillt upp hendur því til samþykkis. Þannig varð æskulýðsfélagið til. Það er ákaflega áríðandi að böm og unglingar alist upp í jákvæðu andrúmslofti, en því miður er reyndin oft önnur, eins og fjölmiðlar og þjóðfélagið bera vott um. Mér dettur í hug munurinn á jákvæðni og neikvæðni, í sambandi við það sem maður sagði eitt sinn: „Áður leið mér mismunandi illa, en nú líður mér mismunandi vel.“ Hér var ekki um að ræða að heilsa mannsins hefði breyst, heldur var um hugarfarsbreytingu hans að ræða.“ Fannst ykkur ekki erfitt að yfirgefa Akureyri, þegar þú varst kallaður í biskupsstólinn? „Þá urðu mikil kaflaskipti í lífi okkar. Allt fyrra starf mitt var einskonar undir- búningur þess sem þá beið mín. Biskupsembættið var HÉR RÍKIR HIMNESKUR FRIÐUR cPétur /Sig urgv irjjon JitrStrt S. Jorty raJdj. 1. Héi rík - ir himn-esk - ur frið - ui, 2. í kóin-um hjá kioss-in - um stend - ur 3. Kyrrt er, svo kall-ið má heyr - a: (3- m 1. hljótt et á baen - - ar - - stund. 2. Kristsmynd - in, og ég sé 3. „Kom — ið til mín all - ir þér. ’ r~r~r~iT rrrif 27

x

Listin að lifa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.