Listin að lifa - 01.12.2000, Side 33

Listin að lifa - 01.12.2000, Side 33
mér fannst ég vera afskaplega mikið öðruvísi en þau. Fann ég sárt til þess að vera ekki nógu vel til fara. Þegar hringt var skólabjöllunni streymdu allir inn og ég fylgdi hópn- um. Við fórum inn langan gang, upp stiga og í stórum sal settumst við, hver við sitt borð. Fyrst þegar læknirinn kom heim einn dag um hádegisbilið og sagðist hafa hitt einn af kennurunum í MA og spurði hann hvernig mér gengi í prófunum. „Ekki gekk henni vel hjá mér, ætli hún falli ekki,“ var svarið. Þetta voru auðvitað dapurleg tíðindi fyrir ... SPUZÐi M/G N/iFNS OG NVFFF/i M/iA/A//) ÉG VÆP/. kom kennari til mín og bað mig að borga prófgjald og leggja fram skírn- arvottorð eða fæð- ingarvottorð. Ég kom alveg af fjöll- um og hafði hvorugt. Hann leit hvasst á mig með öðru auganu en hitt augað sýndist mér horfa í hina áttina, út í hom. Hann spurði mig hverra manna ég væri og hvar ég byggi. Þegar honum varð ljóst hjá hvaða fólki ég héldi til bað hann mig að koma næsta dag með próf- gjaldið og vottorðið. Skriflegu prófin voru fyrst og mér fannst þau ekki erf- ið. En munnlegu prófin voru alveg ný reynsla fyrir mig. Stofurnar fylltust af eldri nemendum skól- ans til að hlusta og fylgjast með. Munnleg ís- lenska var fyrsta prófið og mér gekk vel, gat svarað öllum spurningunum. Svo vildi til að skóla- meistari, Sigurður Guðmundsson, var staddur inni í stofunni og hlustaði á mig. Þegar ég var komin fram á gang sneri hann sér að mér, hrósaði mér fyrir góða frammistöðu, spurði mig nafns og hverra manna ég væri. Ég nefndi nöfn foreldra minna en svo var að sjá sem þar með missti hann áhuga á að tala við mig og gekk burt. Prófdögunum var senn að ljúka mig en ég tók þessu þó rólega. Ef til vill var þetta alltof framandi og jafn- vel of óraunverulegt fyrir mig. Ég hafði á þeim tíma alltaf haft metnað til að gera vel í öllu sem ég tók mér fyrir hendur og þessi metnaður, af hverju sem hann var sprottinn, hefur líka fylgt mér alla tíð síðan. Kvöldið sem einkunnir voru lesnar upp var lengi að líða. Við þurftum að bíða fram undir miðnætti eftir þessum kvíðvænlega upplestri. Loks var hringt á sal og ég tók mér stöðu alveg við dyrnar aftan við alla, svo að ég yrði fljót að láta mig hverfa. Mér er enn minnisstætt hvernig hjarta mitt barðist ótt og títt. Skemmst er frá því að segja að ótti minn var óþarfur. Ég var langt frá því að falla og lenti í efsta fjórðahluta próftak- anna í meðalein- kunn. Sjaldan á ævi minni hef ég verið jafnstolt og ánægð með sjálfa mig. Það var gaman að koma heim og koma læknishjónun- um þægilega á óvart. Margt gott fólk hefur veitt mér stuðning og um- hyggju á lífs- leiðinni, en ég met það svo núna að bréfið góða og 100 krónurnar frá frænku minni hafi ráðið því að ég fór í mennta- s k ó 1 a og því að ég g a t löngu síðar farið í há- skólanám og lokið meist- araprófi í fjar- lægu landi í þeirri grein sem ég hafði áhuga á. Að undanskil- inni ást nánustu fjölskyldu minnar hefur menntunin verið mér meira virði en flest annað í lífinu. /yjuáuUi ’/iiáyehíidóttífr Eimrsnesi 28, Reykjavík 33

x

Listin að lifa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.