Listin að lifa - 01.12.2000, Qupperneq 36

Listin að lifa - 01.12.2000, Qupperneq 36
Kynslóðabil hvað er það? Ekki eru mjög mörg ár síðan ég fór að heyra þetta orð kynslóðabil og í framhaldi af því, nauðsyn þess að brúa kynslóðabilið. Hvað er átt við? Hvað og hvernig er þetta kynslóðabil? Hér á landi hafa búið margar kynslóðir og talað um að á sumum bæjum hafi sama ættin búið, kynslóð eftir kynslóð og þá átt við að bam hafi tekið við af foreldri. Talað hefur verið um aldamóta- kynslóð, fullveldiskynslóð, lýð- veldiskynslóð og sextíu og átta kyn- slóðina, sem höfðar til fólks sem þá var upp á sitt besta eða fæddist ná- lægt þessum tímamótum. Hvar er kynslóðabilið? Hvar á að brúa? Eða eru þetta bara orð sem fundin eru upp af starfsfólki félags- málastofnana, en frá þeim heyrir maður þetta oft, en spyr: hvar bilið sé og hvernig finni maður það? Eft- ir því sem ég best veit eru um fjöru- tíu ára aldursmunur á alþingis- mönnum, sá yngsti um þrítugt og sá elsti yfir sjötugt, hvar er kyn- slóðabilið þar? Ég vann í mörg ár hjá stóru fyrirtæki eða stofnun, og þar vann fólk á aldrinum sextán ára til sjötugs og varð ég ekki var við kynslóðabil þar sem aldnir og ungir unnu saman. Fólk er misjafnlega gamalt, en getur verið sama kyn- slóðin fyrir því. í Síðasta blaði Listin að lifa er viðtal við félagsfræðing, sem sagði m.a: „Við erum í gríð og erg að aðgreina kynslóðirnar, erum alla daga meira og minna að^ reisa „múra” á milli aldurshópa. I hnot- skurn sjáum við þá múra í margra hæða blokkum sem reistar eru ein- göngu fyrir eldra fólk. Mál er að linni.“ Einn forstöðumaður félagsstarfs aldraðra skrifar í Morgunblaðið 10. nóv. sl.: „Undanfarin ár, jafnvel áratugi, hefur tilhneiging til að flokka fólk eftir aldri verið áberandi jafnt í stjórnsýslustörfum sem og í hugum manna. Einkum og sér í lagi hefur þessi flokkun beinst að eldra fólki og virkar þá stundum eins og eldra fólki sé ýtt út úr samfélaginu. Búið til nýtt samfélag í samfélaginu. Við þurfum ekki annað en að líta í kringum okkur til að sjá þessa þróun. Sérstök lög um málefni aldr- aðra, sérstakar íbúðir fyrir aldraða, sérstakar þjónustumiðstöðvar fyrir aldraða." Þegar ég sé svona skrif frá fólki, sem á og er að vinna fyrir okkur, er mér efst í huga: Hvers vegna er þetta fólk að berjast gegn okkur og búa til ímyndað kynslóðabil? Það er eins og þetta fólk geri sér ekki grein fyrir því, að það eru eldri borgarar sjálfir sem hafa staðið að byggingum fyrir aldraða, en þar fá færri inni en vilja, og þjónustu- miðstöðvar fyrir aldraða eru byggð- ar eftir þeirra óskum í tengslum við íbúðablokkir aldraðra. Þetta er byggt fyrir eldri borgara að ósk þeirra sjálfra. Hvers vegna er mál að linni? Hvers vegna megum við eldri borg- arar ekki draga okkur í hlé og búa í íbúðum, sem henta okkur og veita okkur ró og frið? Hvers vegna megum við ekki gera það sem okk- ur hentar og við viljum? Ef litið er út í náttúruna sést, að það er eðlilegt að eldri einstaklingar fylgi ekki æskunni eftir, en fylgist með úr fjar- lægð, og það er einmitt það sem við eldri borgarar erum að gera. Hvers vegna þarf að brjóta það niður með ímynduðu kynslóðabili? Hvers vegna eru aðrir reynsluminni að segja okkur fyrir verkum? Hvers vegna megum við sem erum heil heilsu ekki ráða okkur sjálf? ^Kwií ^éjiístuf sAscyáms&atv, fonnaður FEB í Kópavogi Nýko mnar nýjar bækur \ ogstöksnið|yrir \ kortaútsaum. utsaumsgam JráDMC og utsaumssett opið iaugaráaga frá 10 0116. Lanpollsvcgur 111 Siral 568 6500 www.fondra.is Hamborgarar og eldri borgarar! Fyrrverandi framkvæmdastjóri FEB í Reykjavík var að taka við rekstri á hamborgarastað og fjölskyldan, börn og barnabörn, sátu á rökstólum um gott nafn á staðinn. Rætt var um nafnið Afaborgarar. „Eg veit um enn betra nafn," sagði þá lítil afastelpa. .Auðvitað á hamborgarastaðurinn hans afa að heita Eldri borgarar!“ Verðandi fyllibytta - að sögn Péturs Blöndal! Maður hringdi á skrifstofu FEB í Reykjavík og sagðist vilja ganga í félagið, hann yrði 67 ára í dag. „Ég óska þér til hamingju með daginn,“ segir Stefanía á skrifstofunni. „Ertu að óska mér til hamingju," segir maðurinn. „Ég sem verð bæði fyllibytta og óreglumaður!" 36

x

Listin að lifa

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.