Listin að lifa - 01.12.2000, Page 38
FRÆÐSLU
HORNIÐ
Ágaetu lesendur!
Bestu þakkir fyrir góðar kveðjur,
ábendingar og uppskriftir. Nú fer í
hönd sá tími þegar flestir huga að
undirbúningi jólahátíðar. Tími þeg-
ar gamlar hefðir hafa fastan sess í
matargerð og bakstri. En sumir
kjósa jafnframt því að prófa eitt-
hvað nýtt, fljótlegt og gott til við-
bótar.
ÁVAXTASALAT ÚR NÝJUM
ÁVÖXTUM
Epli, perur, kiwi, bananar, vínber blá
og græn, mandarínur.
Hreinsið og skerið ávextina fremur
smátt. Setjið í skál og bragðbætið
með ögn af sherrý, líkjör og/eða
ávaxtasafa. Setjið filmu eða lok yfir
skálina og geymið á köldum stað í
a.m.k. 2-3 klst. Salatið er gott sem
ábætisréttur eða með öðrum réttum
t.d. með kjöti.
MATARSALAT
Salatblöð, rækjur, melónar, tómatar,
gúrkur.
Hreinsið grænmetið. Rífið eða
skerið salatblöðin og setjið í skál
ásamt tómatbátum, gúrkusneiðum og
melónubitum eða kúlum. Blandið var-
lega saman ásamt rækjum. Berið sal-
atið fram með grófu brauði og sal-
atsósu ef vill.
Gott er að nýta t.d. skinku eða aðra
kalda kjötafganga í salatið í staðinn
fyrir rækjurnar.
KÖLD EPLAKAKA
Uppskrift frá Akureyri
2-3 stór epli
vatn og 2 msk sykur
2 1/2 dl eplakökumylsna (rasp)
6-8 makkarónukökur
1/41 rjómi
• Flysjið eplin og skerið í báta.
Sjóðið þau í litlu sykurvatni við
hægan hita þar til eplin eru glær.
Kælið.
• Myljið makkarónukökurnar smátt
og blandið saman við mylsnuna.
• Þeytið rjómann.
• Setjið mylsnu, epli og rjóma í þunn
lög í grunna ábætisskál.
Neðst i/3 mylsna, því næst i/3 eplabát-
ar ásamt safa og i/3 af rjóma, o.s.frv.
Skreytið efsta rjómalagið með
mylsnu eða rifnu súkkulaði.
Athugið að gott er að nota allan
safann með eplunum, þá verður kakan
mjúk og blandast vel saman. Það er
ágætt að frysta kökuna. Þá er hún lát-
in þiðna í kæliskáp eða á köldum stað
í nokkra klukkutíma áður en hún er
borin fram.
KAKAN SEM ALLIR ELSKA
Uppskrift frá Reykjavík
100 gr smjör eða smjörlíki
2 dl sykur
4egg
4 dl hveiti
2 i/4 tsk lyftiduft
1/2 tsk vanillusykur eða dropar
2 msk. mjólk
1-11/2 dl rúsínur (saxaðar)
100-150 gr marsipan (skorið í þunnar
sneiðar)
50-75 gr súkkulaði (saxað)
• Hrærið smjör og sykur vel saman.
• Aðskiljið eggin og hrærið eggjar-
auðurnar saman við, eina í senn.
• Blandið hveiti ásamt lyftidufti og
vanillu varlega saman við og að
lokum stífþeyttum eggjahvítunum.
Setjið helminginn af deiginu í vel
smurt, djúpt tertumót (22-24 sm í
þvermál). Dreifið rúsínum, marsipani
og súkkulaði yfir og setjið síðan af-
ganginn af deiginu efst ásamt söxuðu
súkkulaðinu, möndlum og hnetum.
Bakið kökuna við 180 gráðu hita í
50-60 mín.
38