Listin að lifa - 01.12.2000, Side 39
KORTAGERÐ
Spurt hefur verið um leiðsögn í korta-
gerð og efni til kortagerðar. Ég brá
mér því í verslunina Föndru og leitaði
upplýsinga. Verslunarstjórinn brást
vel við og eftirlét Fræðsluhorninu
þessa fallegu mynd og munstur sem
auðvelt og fljótlegt er að pikka á
kortapappír og sauma út með silfur
eða gullþræði.
Með bestu kveðjum og jólaóskum
cföiyndí& SleiijuyisdáUi/i/
hússtjómarkennari
Viðbót í þjónustubók:
Ostabúðin Skólavörðustíg, Skóla-
vörðustíg 8, s. 562 2772, 5% afslátt-
ur.
Make up forever búðin Skólavörðu-
stíg 2, s. 551 1080, 15% stað-
greiðsluafsl., 10% afsl. ef greitt m.
kreditkorti.
Bifreiðastöð Hafnarfjarðar, Fjarðar-
götu 13-15, s. 555 0888, 10% afslátt-
ur.
Hárkollur og höfuðföt
Hárkollugerð Kolfinnu Knútsdótt-
ur ehf var stofnuð í júní 1999.
Stefna fyrirtaekisins er að hafa í
boði hárkollur eða höfuðföt fyrir
þá sem missa hárið af einhverjum
ástæðum, eða fyrir þá sem langar
að breyta til og setja upp hárkollu
eða höfuðfat við ýmis tilefni sér til
hagræðingar og gamans.
Hárkollugerðin komst í samband
við fyrirtæki í Suður-Þýskalandi
sem hefur starfað í 125 ár og fram-
leiðir sitt eigið gervihár. Fyrirtækið
framleiðir einkar léttar og fallegar
hárkollur í mörgum litum og gerð-
um, og^ okkur er ánægja að geta
boðið Islendingum upp á þessar
hárkollur. Þar sem litaúrvalið er
mikið er ógjörningur að liggja með
alla liti á lager, en mjög stuttur af-
greiðslutími er hjá fyrirtækinu og
hafa hárkollurnar yfirleitt verið
komnar til landsins á fimmta degi.
Fyrirtækið hefur einnig boðið
upp á einstaklega fallega hártoppa
fyrir konur.
Allir fylgihlutir til hárkollunotk-
unar svo sem standar, greiður, hár-
lakk, sjampó o.s.frv. eru líka til sölu.
Við bjóðum einnig upp á höfuð-
föt fyrir konur, sem mörg koma frá
fyrirtæki í Oklahoma og eru sér-
staklega sniðin fyrir konur með lítið
eða ekkert hár. Þau eru sniðin yfir
hárlínuna, þannig að ekki sést að lít-
ið eða ekkert hár er undir. Þessi höf-
uðföt hafa verið í mörgum litum og
gerðum, úr mjúkum og léttum efn-
um, svo að þau erti ekki hársvörð-
inn hjá þeim sem ekkert hár hafa.
Einnig hafa verið í boði höfuðföt
sem innihalda sólarvörn og hlífa
hársverðinum fyrir sólargeislum.
Ekki má gleyma vetrarhöfuðfötun-
um, sem eru nauðsynleg í vetrar-
hörkunni hér á íslandi. Nú á næstu
dögum er von á sérlega fallegum,
nýjum vetrarhöfuðfötum.
Fyrir karlmenn eru einnig hár-
toppar og herrahárkollur í boði frá
sama fyrirtæki í Þýskalandi. Falleg-
ar hárkollur og hártoppar sem gam-
an er að geta boðið íslenskum karl-
mönnum. Þar sem litaúrval og teg-
undir eru margbreytilegar er ógjörn-
ingur að eiga allt á lager, en pöntun-
artími er stuttur og þið eruð svo
sannarlega velkomnir.
Stefna fyrirtækisins er að bjóða
ætíð upp á gott og fallegt úrval af
hárkollum og höfuðfötum, fylgjast
með nýjungum úti í heimi og bjóða
Islendingum. Nú eru nýjar hug-
myndir í þróun um framleiðslu á
hárkollum og höfuðfötum. Við von-
um að vel takist til með þá hönnun
svo að hægt verði að koma henni á
markað sem fyrst.
Hárkollugerðin hefur verið til
húsa á Frumkvöðlasetri Iðntækni-
stofnunar, en I. desember mun fyr-
irtækið opna verslun á Skólavörðu-
stíg 8, á 2. hæð. Nýja símanúmerið
er: 511-5222. GSM númer er
óbreytt: 896-7222.
Verið öll velkomin í nýju versl-
unina. Við hlökkum til að sjá ykkur.
‘Koltinnú/ jKtuU&dáUh/
39