Listin að lifa - 01.12.2000, Side 40
Ætla má að maðurinn eyði þriðjungi
ævinnar í rúminu, þess vegna hlýtur
rúmið að vera mikilvægasta hús-
gagnið á heimilinu. Rúmið ætti
samkvæmt því að vera best lagað
að þörfum notandans. Reyndin er
oft önnur, rúmdýnur eru oft lélegar
og úr sér gengnar, enda láta margir
sitja á hakanum að endurnýja dýnur
og rúm. Til þess að okkur líði vel
þarf líkaminn að hvílast vel á nótt-
unni. Vakni maður stirður í baki má
oft kenna dýnunni um.
Hvernig á góð dýna að vera?
• Dýnan þarf að gefa hæfilega eftir
þyngstu hlutum líkamans, eins og
öxlum, mjöðmum og rassi.
• Ef dýnan er of hörð styður hún ekki
nægilega við mjóbakið og veldur
óþægindum í bakvöðvum.
• Ef dýnan er of mjúk vantar oft
stuðning við mjóbakið. Einnig
reynist fólki oft erfiðara um vik að
snúa sér og að komast fram úr rúm-
inu.
• Stífleika dýnu þarf að miða við lík-
amsþyngd notandans.
• Rúmdýnan þarf að vera á rúmbotni
sem hæfir dýnunni.
• Hæð á dýnu má helst ekki vera
lægri en í hæð við hnésbót, gott er
að bæta 5-10 cm við svo að auðvelt
sé að setjast og standa upp frá rúm-
inu.
Auk þessa þarf að hafa í huga:
• Fjölbreytt úrval er til af dýnum í
rúm/hjónarúm. Sumar dýnur passa
ekki í gömul rúm því að þær eru út-
búnar með fótum.
• Hægt er að fá tvöfalt dýnukerfi í
gömul rúm.
• Dýnur endast mislengi, en oft er
gert ráð fyrir að endingartími sé 8
til 10 ár.
• Sumum dýnum þarf að snúa reglu-
lega.
mikilvægasta húsgagnið
• Til eru mismunandi rúmbotnar svo
sem krossviðarplata, viðarrimlar,
netbotnar, handstilllir botnar með
kodda og/ eða setstillingu, hækkun
undir fætur, einnig rafknúnir botnar
og rúm.
Ýmsar gerðir eru til af yfirdýnum,
enda eru þær ekki síður nauðsynlegar.
Þess má geta að margar þeirra eru sér-
staklega ætlaðar til að fyrirbyggja
legusár.
Gera má ráð fyrir að það taki
nokkra daga að venjast nýrri dýnu þó
að hún sé eins góð og kostur er á.
Til að láta sér líða vel í rúminu þarf
einnig að hafa góðan kodda og létta
sæng.
Mikið úrval er til af heilsukoddum
og eru þeir misjafnlega stífir/mjúkir
og háir. Gott er að fá kodda lánaða til
reynslu í nokkra daga til að átta sig á
hvort koddinn henti eða ekki. Snún-
ingslök geta auðveldað fólki að snúa
sér í rúminu, einnig er gott að vera í
náttfötum úr sleipu efni.
Hæð á rúmi:
Mörg rúm eru of lág svo að fólk á í
erfiðleikum með að setjast og standa
upp frá rúminu. Hægt að setja þar til
gerða rúmklossa undir rúmfæturna og
hækka þannig rúmið. Rúm, sem er á
sökkli, er hægt að hækka með að
smíða hærri sökkul undir rúmið.
40