Listin að lifa - 01.12.2000, Page 41
Sérþarfir:
Þegar sjúkdómar eða fötlun hefur gert
vart við sig þannig að fólk getur ekki
lengur bjargað sér sjálft er oft þörf á
ýmsum hjálpartækjum. Meðal þeirra
eru frístandandi gálgi, létti (rúmstigi),
rúmklossar til að hækka rúmið, stuðn-
ingsstöng spennt á milli gólfs og lofts,
stuðningshandfang fest á rúmið, laust
stillanlegt höfðalag, laust, rafknúið
höfðalag, skápúðar/höfðalög tilsniðin,
rúmdýnur fyrir stillanlega rúmbotna,
yfirdýnur, snúningslök, rafknúin
sjúkrarúm, rúmborð o.fl. Flest þessara
hjálpartækja fást gegnum Hjálpar-
tækjamiðstöð Tryggingastofnunar rík-
isins að uppfylltum ákveðnum skil-
yrðum.
Það er ekki auðvelt að velja rúm,
því að úrvalið er fjölbreytt og þarfír
eru mismunandi. Gott er að gefa sér
tíma og skoða vel og máta til að fá
rúm sem hentar sem best. Rúmið er
sennilega mest notaða húsgagn heimil-
isins og því mikilvægt að það sé einnig
það besta, þannig að rnaður vakni að
morgni án óþæginda og vel hvíldur.
Höfwidar: Ella B. Bjamarson,
sjúkraþjálfarí, Sjúkraþjálfun Vesturbœjar, og
Guðrún K. Hafsleinsdóttir iðjuþjálfi
við Heilsttgœsluna í Reykjavík.
Teikningu gerði Hildtir Þráinsdóttir,
iðjuþjálft á Reykjalundi.
UTFARARÞJONUS TAN_
Stofnað 1990
Persónuleg þjónusta
Sími: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is utfarir@itn.is
fj' 1
4SZ
Rúnar Geirmundsson Sigurður Ragnarsson
Utfararstjóri Útfararstjóri
Ljúffengt jólaskyr
með eplum
KEA mjólkurvörur