Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2008, Síða 6
þriðjudagur 17. júní 20086 Fréttir DV
Húsfélag diskósöngvara stefnir honum fyrir þakviðgerð:
Herbert treystir á æðri mátt
Mál Herberts Guðmundssonar
söngvara og eiginkonu hans, Svölu
Jóhannesdóttur, gegn húsfélaginu
í Prestbakka 11 til 21 var tekið fyr-
ir síðasta föstudag. „Nú er verið að
reyna að sverta það sem við
gerðum, þetta er alveg
fáranlegt,“ segir Herbert
um málflutning lögfræð-
ings húsfélagsins.
Húsfélagið hefur stefnt
Herberti til að greiða í
húsfélagið en hann hef-
ur ekki gert það frá því það
var stofnað árið 2005. Sam-
kvæmt málinu má telja að
Herbert sé kominn í mál
við sjálfan sig þar sem
hann er skráður í hús-
félagið og húsfélagið
að kæra hann.
Þegar Herbert og
kona hans keyptu íbúðina hafði mað-
urinn sem seldi þeim hana sett það
í kaupsamninginn að nauðsynlegt
væri að klæða þakið og því er
hann ósáttur við að þurfa að greiða
fimm milljónir króna í hússjóðinn.
Nú á að fara að taka þakið í gegn í
raðhúsunum en Herbert hefur neit-
að að taka þátt í þeim kostnaði þar
sem hann er búinn að taka þak-
ið sitt í gegn. „Matsmaður
hefur dæmt þakið í góðu
standi og það ætti að standa
í heil tuttugu til þrjátíu ár í
viðbót,“ segir Herbert. „Lög-
fræðingur húsfélagsins hef-
ur aðeins reynt að núa okk-
ur um nasir að þakið sé allt
laust og ómögulegt. Hver get-
ur borgað fimm hundruð
þúsund krónur á mánuði í
hússjóð?“ segir Herbert og
trúir því að æðri máttur
muni koma inn í kring-
umstæðurnar og dæma
honum í hag.
Hjónin frá Prestbakka
Herbert og Svala eru ekki
sátt með að þurfa að
borga 500 þúsund krónur
á mánuði í hússjóð.
Hafsteinn gunnar Hauksson
blaðamaður skrifar: hafsteinng@dv.is
Fagra Ísland Fær Falleinkunn
Fyrir síðustu alþingiskosningar birti Samfylkingin tímamóta
stefnuyfirlýsinguna Fagra Ísland um umhverfismál. Nú hefur
Þórunn sveinbjarnardóttir setið tæpt ár fyrir flokksins hönd í
umhverfisráðuneytinu og á mjög langt í land með að uppfylla þau
loforð sem flokkurinn gaf í yfirlýsingunni. Jafnvel flokksmenn
eru farnir að bila í trúnni á sýn flokksins í umhverfismálum.
Samfylkingin birti fyrir síðustu al-
þingiskosningar stefnuyfirlýsingu
sína í umhverfismálum undir heit-
inu Fagra Ísland og markaði að sögn
flokksmanna tímamót í pólitískri
orðræðu um umhverfismál og nátt-
úruvernd. Þrátt fyrir að Samfylking-
arkonan Þórunn Sveinbjarnardótt-
ir hafi setið í umhverfisráðuneytinu
í rúmt ár á flokkurinn mjög langt í
land með að uppfylla þann langa
lista loforða sem þar birtist. Van-
efndirnar eru raunar svo miklar að
jafnvel flokksmenn eru farnir að ef-
ast um hið fagra Ísland Samfylking-
arinnar. Birgir Guðmundsson stjórn-
málafræðingur telur fylgi flokksins
ekki í hættu.
stóriðjustopp varð
stóriðjuflopp
Meðal þess sem flokkurinn lofaði
var að slá ákvörðunum um frekari
stóriðjuframkvæmdir á frest þangað
til nauðsynleg heildarsýn yfir nátt-
úruverðmæti lægi fyrir. Það var varla
liðinn fjórðungur kjörtímabilsins
þegar stóriðjustoppið varð að engu
og samfylkingarmaðurinn Björgvin
G. Sigurðsson var tekinn til við að
grafa fyrir álverinu í Helguvík í orðs-
ins fyllstu merkingu.
Álverinu hefur enn ekki verið
veitt starfsleyfi, en Umhverfisstofn-
un kemur til með að auglýsa eftir at-
hugasemdum við leyfisveitinguna á
morgun og rennur fresturinn út 13.
ágúst. Enn fremur hefur hvorki tek-
ist að útvega álverinu nægilega raf-
orku né losunarkvóta, svo ljóst er að
framkvæmdin er ekki komin of langt
á leið til að grípa í taumana ef viljinn
er fyrir hendi.
ekki tekist að friða landsvæði
Samfylkingin lýsti því einnig ein-
dregið yfir fyrir kosningar að hún
hygðist gera nokkrar breytingar á
lögum til að tryggja umhverfisvernd.
Má þar nefna að færa heimild til veit-
ingar rannsóknar- og nýtingarleyfa
vegna virkjunaráforma úr hönd-
um iðnaðarráðherra til Alþingis,
og sömuleiðis ákvörðunarvald um
nýtingu losunarheimilda. Enn sem
komið er hefur Alþingi ekki yfirvald
yfir ákvörðunum af þessu tagi.
Í stjórnartíð Sjálfstæðisflokks og
Framsóknar var ákveðið að stofna
Vatnajökulsþjóðgarð og tóku lög um
hann gildi 1. maí á síðasta ári. Sam-
fylkingin lagði áherslu á að þjóð-
garðurinn yrði stækkaður þannig að
hann feli í sér Langasjó og allt vatna-
svið Jökulsár á Fjöllum. Einnig vildi
flokkurinn gera sex svæði til viðbótar
að friðlandi, þar á meðal Kerlingar-
fjöll og Skjálfandafljót. Það hefur enn
ekki verið gert.
ekki staðfest alþjóðlega
umhverfissáttmála
Ísland er eitt Norðurlanda sem
enn á eftir að staðfesta Árósasamn-
inginn frá 1998 sem tryggir almenn-
ingi aðgang að ákvarðanatöku sem
áhrif hefur á umhverfið. Er þar með
viðurkennt að umhverfismál séu
hagsmunamál þjóðarinnar allrar.
Samfylkingin hugðist beita sér fyrir
staðfestingu samningsins og einnig
Landslagssáttmála Evrópu fyrir kosn-
ingar. Það hefur enn ekki verið gert.
Ísland er einnig þátttakandi í verk-
efninu Staðardagskrá 21, en kveðið er
á um verkefnið í ályktun SÞ frá 1992.
Er þar um að ræða áætlun sem sveit-
arfélögum er ætlað að gera í átt að
sjálfbærri þróun. Samfylkingin vildi
tryggja sveitarfélögum fjármagn til að
vinna og fylgja slíkri áætlun eftir.
Samkvæmt fjárlögum árið 2008
var ríflega veitt úr þjóðarbúinu til að
styðja við bakið á Staðardagskránni,
og er því um að ræða fullkomnar
efndir af hálfu flokksins. Hins vegar
hefur verkefninu verið eyrnamerkt
fé frá því 2006, svo tæpast má segja
að fjárlögin í ár hafi valdið straum-
hvörfum. Það sama má segja um
fjárveitingar sem Samfylkingin lof-
aði frjálsum félagasamtökum á um-
hverfissviði.
Vilja umhverfisskatt
Flokkurinn lagði áherslu á að
landið yrði grætt upp með skógrækt
og landgræðslu og komandi kyn-
slóðir fengju bætt land í hendurn-
ar. Skógrækt og landgræðsla eru, og
hafa lengi verið, til fyrirmyndar á Ís-
landi. Ekki er hægt að saka flokkinn
um vanefndir í þeim málaflokki.
Yfirlýsingin Fagra Ísland kvað
einnig á um eflingu starfsemi sem
stuðlar að endurvinnslu úrgangs.
Umhverfisráðherra stofnaði nefnd
til að kanna aðgerðir til að draga úr
sóun á pappír í blöð og fjölpóst og
hvetja til endurvinnslu. Er framganga
Þórunnar í málaflokknum henni til
hróss og augljóst að hún vill taka til
hendinni í endurvinnslu.
Samfylkingin lýsti einnig yfir vilja
til að beita hagrænum hvötum til að
draga úr notkun mengandi eldsneyt-
is fyrir síðustu kosningar. Starsfhóp-
ur fjármálaráðuneytisins um skatt-
lagningu eldsneytis og ökutækja
lagði meðal annars til að kolefnis-
skattur yrði lagður á eldsneyti og
mengunarvalda. Umhverfisráðherra
fagnaði tillögum hópsins og hyggst
beita sér fyrir að þær verði að veru-
leika, þó enn eigi raunar eftir að stað-
festa þær á þingi.
skiptir ekki miklu
máli fyrir flokkinn
„Ég held að það sé ekki komið að
því að þetta skipti miklu máli fyrir
flokkinn,“ segir Birgir Guðmunds-
son, stjórnmálafræðingur og blaða-
maður, aðspurður hvort vanefndir
í umhverfismálum hafi áhrif á fylgi
flokksins. Hann segir viðhorfin í
Samfylkingunni til stóriðju tvíbent
og erfitt að þjóna ólíkum hagsmun-
um margra í einu, nú þegar flokkur-
inn er kominn í ríkisstjórn. „Þeir eru
komnir í svolitla Framsóknarstöðu,
þurfa að segja bæði já og nei.“
Ekki náðist í umhverfisráðherra
né aðstoðarkonu hans við vinnslu
fréttarinnar.
Umhverfisráðherra fagnaði tillögum hópsins og
hyggst beita sér fyrir að þær verði að veruleika,
þó enn eigi raunar eftir að staðfesta þær á þingi.
Þórunn sveinbjarnardóttir Á mikið
verk fyrir höndum í umhverfismálum.