Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Síða 2
„Við vorum að velta fyrir okkur
hvernig best væri hægt að tryggja
stöðugleika hjá starfsfólki og datt
okkur þá í hug að ráða pör til vinnu,“
segir Óðinn Gestsson, framkvæmda-
stjóri Fiskvinnslunnar Íslandssögu á
Suðureyri. Fyrirtækið á einnig stóran
hlut í hausaþurrkuninni Klofningi
sem sömuleiðis er á Suðureyri. Kon-
ur hafa sótt í fiskvinnsluna en karl-
menn í hausaþurrkunina. Nú er svo
komið að um fimmtán pör starfa hjá
þessum tveimur fyrirtækjum og ástin
blómstrar sem aldrei fyrr.
Óvenju stór árgangur
Mikil frjósemi hefur verið með-
al starfsfólksins, margir hafa nýlega
átt börn en aðrir bíða í ofvæni eft-
ir að afkvæmin líti dagsins ljós. Í ár
er búist við að um tíu börn fæðist
starfsfólki fyrirtækjanna tveggja. Því
verður það óvenju stór árgangur sem
hefur skólagöngu á Suðureyri eftir
sex ár en dæmi eru um heilu árin þar
sem ekkert barn hefur komið í heim-
inn í bæjarfélaginu. Óðinn tekur sem
dæmi að í haust byrji um fimm börn
í grunnskólanum og því ljóst að sam-
félagið er sannarlega að lifna við.
Suðureyri frekar en Pólland
Andrej Zepuryk kom ásamt eig-
inkonu sinni til Suðureyrar frá Pól-
landi. Þau starfa bæði hjá Íslands-
sögu, hann við löndun og að slægja
fisk en konan hans í fiskvinnsl-
unni. Þau eignuðust stúlkubarn fyr-
ir hálfu öðru ári og ekkert fararsnið
er á Andrej aftur til Póllands: „Það er
miklu betra að vera hér. Þetta er góð
vinna og vel borguð. Og umhverfið
fjölskylduvænt,“ segir hann.
Barnsfæðingar aldrei
vandamál
Nýbakaðir foreldrarnir fara vit-
anlega í foreldraorlof en Óðinn hef-
ur litlar áhyggjur af því þó starfsfólk-
ið þurfi að vera frá í einhvern tíma.
„Þetta er eins og best verður á kos-
ið. Barnsfæðingar eru aldrei vanda-
mál. Nýtt líf er að koma í heiminn,“
segir hann og þakkar fyrir að helsta
vandamál hans, ef svo skal kalla, sé
að starfsfólkið sé duglegt að fjölga
sér. „Það er nokkuð mikið um barn-
eignir hjá þeim. Nokkrar konurnar
eru óléttar núna. Aðrar nýbúnar að
eiga og komnar í fæðingarorlof. Þetta
er því heldur fjörugt,“ segir hann. Allt
stefnir því í að hann þurfi að ráða
nýtt fólk, tímabundið hið minnsta.
„Við leitum þá að pörum,“ segir hann
kankvís.
Mæður á ferli
Óðinn segir lítið mál að finna
fleira fólk til starfa á Suðureyri. „Það
spyrst fljótt út ef fólki líkar vel. Við
leggjum upp með að þetta sé venju-
legur vinnustaður þar sem fjölskyld-
an er í fyrirrúmi.“ Eyrin er einnig ör-
uggur staður fyrir börn að vera á. „Ég
heyrði því fleygt að það er tvímæla-
laust góður staður þar sem mæður
með kerrur eru algeng sjón. Ég get
ábyrgst að þeir sem dvelja hér dag-
langt koma til með að sjá þó nokkuð
af þeim.“
Fjölskylduvænn vinnutími
Vinnutíminn í fiskvinnslunni og
hausaþurrkuninni er mjög svipað-
ur. Þau pör sem hjá fyrirtækjunum
starfa eru því mikið til í fríi á sama
tíma og geta þannig notið samveru-
stundanna með maka og börnum.
„Það var auðvitað vonin að fólk-
ið eignaðist börn og það hefur orð-
ið raunin. Fæðingunum fjölgar hið
minnsta,“ segir hann hæstánægð-
ur með þá fjölgun sem orðið hefur í
samfélaginu.
Aðspurður hvort hann vonist þá
til að börnin starfi hjá sér þegar þau
stækka segir hann hlæjandi: „Nei,
það er ekkert nauðsynlegt.“
Alls starfa um hundrað manns
hjá fyrirtækjunum tveimur, að stór-
um hluta fólk erlendis frá. Á Suð-
ureyri búa rúmlega þrjú hundruð
manns og því þriðjungur sem vinnur
hjá þeim.
Þetta helst
föstudagur 27. júní 20082 Fréttir DV
- þessar fréttir bar hæst í vikunni
Eldsneytisverðið náði nýj-
um hæðum með enn einni
verðhækkuninni í vikunni.
Bensínlítrinn kostar nú
hátt í 180 krónur á sumum
stöðum og verð dísillítrans daðrar
við 200 króna markið. Þetta hefur
vakið mikla óánægju og áfram-
sendir nú hver netverjinn á fætur
öðrum áskorun þar sem fólk er
hvatt til að grípa til aðgerða gegn
háu eldsneytisverði. Þannig er
almenningur hvattur til að hætta
að kaupa bensín hjá tveimur
stærstu olíufélögunum, N1 og
Skeljungi, í von um að þau lækki eldsneytisverð til að vinna við-
skiptavini aftur til sín. Sumir hafa farið aðrar leiðir, eins og Sigurveig
Sara Björnsdóttir sem er hætt að fara á bílnum í vinnuna. Þess í stað
ferðast hún í og úr vinnu á hesti sínum.
enn hækkar bensínið
miðvikudagur 25. júní 20086
Fréttir DV
Sigurveig Sara Björnsdóttir
Ríður til að mótmæla„Ég vil að menningin verði aftur
eins og hún var fyrr á öldinni sem
leið, að menn fari bara á hrossum út
í búð,“ segir Sigurveig Sara Björns-
dóttir, starfsmaður Íshesta, en hún
hefur fengið sig fullsadda af háu
bensínverði. Sara tók málin í sínar
hendur og ferðast nú ríðandi til og
frá vinnu.
Sara hefur útbúið hina bestu
aðstöðu fyrir hrossin úti í garði hjá
leigusala sínum, en sá fer að sögn
með henni í útreiðartúra. „Við ætl-
um bara að hafa þessar sláttuvélar
í garðinum,“ segir Sara og bendir á
að kostir hestsins sem fararskjóta
séu fleiri en bara bensínsparnaður.
„Þetta bæði dregur úr mengun og
fækkar banaslysum í umferðinni,“
bætir Sara við, auk þess sem hrossin
spara vinnuna í garðinum.
Yfirmaður Söru hjá Íshestum,
framkvæmdastjórinn Einar Bolla-
son, er einnig mikill fylgismaður
útreiða við dagleg störf. Hann lýsti
lausninni á bensínvandanum fyrir
hlustendum Bylgjunnar í viðtali um
daginn.
„Ég sagði bara mína skoðun á því
að ég vildi láta breyta þessum stóru
bílastæðahúsum niðri í bæ að hluta
til í hesthús og þjálfa bílastæðaverð-
ina upp í að sjá um hesta,“ segir Ein-
ar og bætir við að viðbrögðin hafi
ekki látið á sér standa. Yfir hann hafi
rignt bæði símtölum og tölvupóst-
um þar sem fólk lýsti hrifningu sinni
á þessum hugmyndum. „Menn hafa
gaman af þessu.“
Guðbrandi Sigurðssyni, aðal-
varðstjóra umferðardeildar lögregl-
u nar á höfuðborgarsvæðinu, líst
afar illa á aukna hestaumferð inn-
anbæjar. „Það gefur augaleið að það
færi ekki saman við borgarumferð-
ina,“ segir Guðbrandur og vísar í ný-
útgefna reglugerð um lögreglusam-
þykkt því til stuðnings.
Sigurveig Sara og
fararskjótinn Segir
hesta bæði ódýrari og
öruggari farkost en bíla.
Bensínið mun
hækka áfram
„Það varð smávægileg breyting á
heimsmarkaðsverðinu til hækk-
unar. Það sem reið baggamuninn
var gengi krónunnar,“ segir Magn-
ús Ásgeirsson, innkaupastjóri elds-
neytis hjá N1, um hækkun elds-
neytisverðs. Forsvarsmenn annarra
olíufélaga tóku í sama streng. Bens-
ínstöðvar landsins hækkuðu elds-
neytisverð umtalsvert í gær.
Hækkun um allt að fimm
krónur í gær
Flestar bensínstöðvar á land-
inu hækkuðu verð á bensín- og
dísilolíulítranum um þrjár krónur
í gær. Þess eru dæmi að verð ein-
stakra stöðva hafi hækkað um allt
að fimm krónur milli daga. Til sam-
anburðar lækkaði bensínverð um
tvær krónur á árs tímabili frá júní
2006 til sama mánaðar 2007.
Um er að ræða síðasta verð-
stökkið í þeirri röð hækkana sem
dunið hefur yfir undanfarið. Ekki
sér enn fyrir endann á hækkunun-
um.
Þegar blaðamaður ræddi við
Magnús upp úr hádegi í gær sagði
hann heimsmarkaðsverð hráolíu-
tunnunnar hafa hækkað um rúm-
an dollar frá því hann mætti til
vinnu fyrr um morguninn. Magnús
vildi þó ekki segja til um hvort fleiri
hækkanir væru í vændum.
Herkvaðning
neytendafrömuða
Síðasta útspil sjálfskipaðra neyt-
endafrömuða er eins konar her-
kvaðning sem gengur eins og sinu-
eldur manna á milli í tölvupósti. Þar
eru kaupendur eldsneytis hvattir til
að sniðganga tvö stærstu olíufélög
landsins til að koma af stað verð-
stríði. Þó er ljóst að ekki er við olíu-
félögin ein að sakast.
16. júní síðastliðinn náði heims-
markaðsverð á olíu methámarki
þegar tunnan kostaði tæpa 140
dollara. Síðan þá hefur verðið
lækkað um fimm dali, þótt enn sé
það æði sveiflukennt. Ofan á það
leggst lágt gengi krónunnar. Hún
tók hressilega dýfu í gær og lækkaði
um tæp þrjú prósent. Líkt og Magn-
ús bendir á er þar fólgin aðalástæða
hækkunar bensínverðsins í gær.
Tæp helmingshækkun
á aðeins ári
Með ólíkindum er hversu hratt
bensínverð hefur hækkað síðast-
liðið ár. Í júní á síðasta ári seldi
Skeljungur bensínlítrann á 124,6
krónur. Síðan þá hefur lítrinn hækk-
að um tæpan helming og kostar nú
hjá sama félagi 176,4 krónur. Bens-
ínverðið hafði ekki tekið nándar
viðlíka stakkaskiptum árin áður.
Fyrir ári kostaði 6.230 krónur að
fylla fimmtíu lítra bensíntank. Nú
fást aðeins um 35 lítrar fyrir sama
fé.
Lítrinn fer yfir tvö
hundruð krónur
„Það er stöðugt vaxandi eftir-
spurn eftir orku, sérstaklega olíu og
bensíni,“ segir Guðmundur Ólafs-
son, lektor í hagfræði við Háskóla
Íslands. „Sú eftirspurn mun ekki
minnka í bráð.“ Guðmundur telur
öruggt að bensínverð sé ekki á leið
niður, heldur komi þvert á móti til
með að hækka áfram.
Sá ótti sem verst
hrjáir marga er að
bensínlítrinn læð-
ist yfir hið geigvæn-
lega tvö hundruð króna
mark. Aðspurður hvort
honum finnist líklegt
að verðið fari svo hátt
fyrir áramót segist Guð-
mundur telja það geta
gerst.
HafSTeinn gunnar HaukSSon
blaðamaður skrifar hafsteinn@dv.is Guðleg ábending
um að gæta sín
„Auður heimsins safnast til
þess landsvæðis sem aldin-
garðurinn var í upphafi. Þetta
held ég að sé guðleg ábend-
ing til allra um að gæta sín og
gera sig klára,“ segir Gunnar
Þorsteinsson, forstöðumaður
Krossins, um þær miklu bens-
ínhækkanir sem landsmenn
og fólk um allan heim hafa
orðið áþreifanlega vör við. „Við
eigum að hafa það í huga að
það er einn sem öllu stýrir og
stjórnar. Atburðarásin er fyrir-
sögð og þetta er hluti af henni.
Hækkandi bensínverð kemur
mér ekki á óvart. Auður er vald
og valdið er flutt á þennan
stað og það verður notað gegn
hinum vestræna manni. Menn
skyldu gæta sín. Það er tími til
kominn að skoða stöðu sína.
Maður spyr sjálfan sig
þegar þessar fjár-
málahremming-
ar eru um allan
heim og eng-
inn ræður við
neitt hvort
þetta sé þetta
lokahrun
sem við
eigum von
á eða hvort
við fáum
einhvern frest.
Kannski Geir H.
Haarde komi því
til leiðar.“
„Guðmundur telur öruggt að bensínverð
sé ekki á leið niður, heldur komi þvert á
móti til með að hækka áfram.“
Verð
bensín-
lítrans
20
04
1
05
,9
0
k
r
ó
n
u
r
20
05
1
09
,6
0
k
r
ó
n
u
r
20
06
1
26
,9
0
k
r
ó
n
u
r
20
07
1
24
,6
0
k
r
ó
n
u
r
20
08
1
76
,4
0
k
r
ó
n
u
r
Þjóðin var slegin óhug
þegar fréttir bárust af því
að hundur hefði fundist
hálfniðurgrafinn og enn á
lífi. Einhverjir höfðu sett
þungan stein yfir hundinn
svo hann gat sig hvergi hreyft. Hann
varð hins vegar þeirrar gæfu aðnjót-
andi að fólk í gönguferð með hunda
sína varð hans vart. Lögreglan hóf
rannsókn á ódæðinu. Eigandinn gaf
sig fram og fékk hundinn afhent-
an enda ekki grunaður um þessa
illu meðferð sem hundurinn hlaut.
Netverjar urðu sumir hverjir æfir
og sögðu jafnvel að réttast væri að
kviksetja þann sem hefði gert hundinum þetta.
hundur grafinn lifandimánudagur 23. júní 20082 Fréttir DV
InnlendarFréttIrritstjorn@dv.is
Illvilji stýrir Svani
Björn Bjarnason dómsmála-
ráðherra hefur snúist til varnar
fyrir flokksfélaga sinn Hannes
Hólmstein Gissurarson, prófess-
or og rithöfund. Á bloggi sínu
gagnrýnir Björn harðlega hvernig
Svanur Kristjánsson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskóla Ís-
lands, ritar um Hannes í greinum
sem birst hafa í Fréttablaðinu.
Þar reifar Svanur meðal annars
að Hannes hafi ekki verið ráðinn
út frá faglegum sjónarmiðum
heldur vegna pólitískra skoðana.
„Jafnframt hefur Svanur veist
að Ólafi Þ. Harðarsyni, prófess-
or við sömu deild, auk þess að
gagnrýna Kristínu Ingólfsdóttur,
rektor Háskóla Íslands. Á bak við
þessi skrif býr óvenjulegur ill-
vilji,“ segir Björn.
Tveir stútar
Lögreglumenn á Akranesi
stöðvuðu tvo ökumenn undir
áhrifum áfengis aðfaranótt
sunnudags. Báðir ökumenn-
irnir voru færðir á lögreglu-
stöðina á Akranesi þar sem
þeir voru teknir í skýrslutöku.
Síðdegis í gær var lögregl-
an svo kölluð út vegna bílveltu
norðan Hvalfjarðarganga. Bet-
ur fór þó en á horfðist og slas-
aðist enginn alvarlega. Bílinn
þurfti hins vegar að fjarlægja
með kranabíl.
Eigandi hvolpsins sem fannst und-
ir grjóthrúgu á laugardag gaf sig
fram við lögregluna á Suðurnesj-
um í gær. Hann sagðist hafa feng-
ið hvolpinn fyrir stuttu en hann
sloppið í burtu. Að sögn lögreglu
liggur eigandinn ekki sérstak-
lega undir grun um að hafa grafið
hundinn lifandi. Ekki fengust þó
upplýsingar um hvort lögreglan
teldi sig vita hver var þar að verki.
Rannsókn er þó hvergi nærri lokið
enda um gróft dýraverndunarbrot
að ræða. „Þetta lítur vel út hjá okk-
ur,“ sagði lögreglumaður í samtali
við blaðamann.
Undir tuttugu kílóa grjóti
Helgi Sigurðsson, dýralækn-
ir á Dýraspítalanum í Víðidal, hef-
ur hugsað um litlu blendingstík-
ina eftir að hún fannst. „Dýr hafa
verið lokuð inni og komið að þeim
sveltum eftir marga marga daga.
En að fara vísvitandi með dýr út í
hraun og setja á það farg. Það hlýtur
að vera geðveila sem hrjáir þá sem
gera svona. Þetta er það óhugsandi.
Ég er búinn að vera í þessu í þrjátíu
ár en ég hef aldrei heyrt um svona
lagað. Það er eitthvað verulega bog-
ið við þetta,“ segir hann.
Fjögurra mánaða tíkin sem tal-
in er vera doberman-blendingur
fannst við Kúagerði í nágrenni Keil-
is á laugardag. Steinum hafði verið
hrúgað um hvolpinn þannig að að-
eins höfuð hans stóð upp úr. Tíkin
var mjög veikburða en Helgi tel-
ur hana hafa verið í grjóthrúgunni
í um sólarhring. Grótið var mjög
þungt og hver steinn ekki undir tut-
tugu kílóum. Tíkin er með lömun-
areinkenni í annarri framloppunni
eftir grjótið sem á henni var.
Ætluðu að svelta
hana til dauða
Helgi segir dagamun á hvolpin-
um: „Það er mikil og góð framför
hjá greyinu. Hann braggast bara
vel og er miklu betri í dag en í gær,“
sagði Helgi í samtali við DV í gær.
Tíkin, sem ekki hefur fengið nafn
eftir að hún fannst, borðar vel og
mikið. Hún kemur til með að dvelj-
ast á Dýraspítalanum í Víðidal á
meðan hún er að ná sér. Helgi segir
það skýrast á næstu dögum hversu
lengi það verður, hvort hún þurfi
að vera á spítalanum í einhverja
daga eða vikur.
Helgi telur engan vafa leika á
því að hvolpurinn var þarna graf-
inn í þeim tilgangi að svelta hann
til dauða. Aðstæður gefa ekkert
annað til kynna. Hann segir erf-
itt að meta hversu lengi hvolpur-
inn hefði getað haldið lífi þarna án
vatns og matar.
Tíkin Lukka fann hvolpinn
Aðalheiður Gunnlaugsdótt-
ir hundaeigandi og maðurinn
hennar fundu tíkina þar sem hún
hafði verið urðuð. Aðalheiður seg-
ir á bloggsíðu sinni frá því að þau
hjónin hafi verið með hundana
sína á göngu um hraunið þeg-
ar þeir fóru að gelta. Lukka, ein
tíkin, fór af stað og kom ekki
aftur þegar kallað var á hana.
Þegar eiginmaður Aðalheiðar fór
að grennslast betur fyrir sá hann
lítið trýni í steinhrúgu og fann
þannig hvolpinn.
Aðalheiði var afar brugðið og
segist aðeins vona að þetta sé eini
hvolpurinn sem hafi verið grafinn
á þennan hátt.
Vilja kviksetja
ódæðismanninn
Viðbrögð annarra í bloggheim-
um minna um margt á þegar talið
var að hundurinn Lúkas hefði ver-
ið myrtur í fyrra. „Lýsingin á kring-
umstæðunum gæti bent til kvala-
losta og kannski eru meiri líkur en
minni á að um slíkt sé að ræða,“
segir Friðrik Þór Guðmundsson á
sínu bloggi og vitnar jafnframt í Jó-
hannes Ragnarsson bloggara: „Satt
að segja á sá sem gróf kvikindið lif-
andi fátt betra skilið en að verða
kviksettur sjálfur. Ég geri ráð fyrir,
ef svo vel verkast að þrjóturinn
verði með lífsmarki þegar hann
verður jarðaður og vakni til lífs-
ins niður á sex fetunum, að
honum verði hugsað til hvolps-
ins sem hann gróf lifandi í Kúa-
gerði á sínum tíma.“
Emma Vilhjálmsdóttir for-
dæmir einnig verknaðinn: „Ætli
besta refsingin væri ekki bara að
gera það sama við þá og þeir gerðu
dýrinu? Ég mundi aldrei vilja
þekkja svona illa innrætt
fólk.“
„HLÝTUR AÐ
VERA GEÐVEILA“
ErLa HLynsdóTTir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
„Satt að segja á sá sem
gróf kvikindið lifandi
fátt betra skilið en að
verða kviksettur sjálfur.“
Ökumaðurinn
sætir rannsókn
Ökumaður bílsins sem
lenti í umferðarslysi aðfara-
nótt laugardags með þeim
afleiðingum að 19 ára farþegi
lést má eiga von á því að verða
ákærður fyrir manndráp af
gáleysi. Grunur leikur á að
hann hafi verið undir áhrif-
um áfengis en niðurstöður úr
blóðrannsókn eru væntan-
legar eftir um tíu daga. Þegar
DV ræddi við varðstjóra í gær
hafði hann ekki upplýsingar
um hvort hinn látni hafi verið
í öryggisbelti en í umræddum
bíl voru sex manns en aðeins
sæti, og þar með öryggisbelti,
fyrir fimm.
Lögregla gefur í dag upp
nafn þess sem lést í slysinu.
Aðrir sem í bílnum voru eru á
batavegi.
Rólegar nætur
á Akureyri
Lítið varð til að raska ró ak-
ureyrskra lögreglumanna um
helgina. „Þetta voru með dauðari
nóttum sem menn muna eftir,“
sagði Guðmundur Svanlaugsson
varðstjóri.
Guðmundur segir rólegheitin
kannski vera út af viðburðaríkum
bíladögum um síðustu helgi og
kominn tími fyrir fólk til að hvíla
sig. Þá logaði bærinn í áflogum
og margvíslegum uppákomum.
„Síminn hringdi ekki á föstu-
dagsnóttina og laugardagsnótt-
ina,“ sagði Guðmundur. Þrátt
fyrir rólegar nætur stoppaði lög-
reglan tvo ökumenn fyrir ölvun-
arakstur og nokkra fyrir of hrað-
an akstur.
Braggast vel Helgi
Sigurðsson dýralæknir hefur
annast tíkina frá því hún
fannst við Kúagerði á
laugardag. Henni fer mjög
fram á hverjum degi og býst
Helgi við að hún nái sér að
fullu. Eigandi hennar gaf sig
fram við lögreglu í gær.
dV-mynd róbert
Á annan tug manna voru blóðug-
ir eftir hópslagsmál í félagsheimilinu
Leikskálum á Vík í Mýrdal aðfaranótt
sunnudags.
Lögreglumenn á Hvolsvelli, sem
sinna löggæslu á Vík, eru óvan-
ir því að þurfa að skikka leikinn á
skemmtistöðum í umdæmi sínu.
Hjá því varð þó ekki komist að þessu
sinni enda fjöldi manna sem tók þátt
í slagsmálunum. Eftir að stilla tókst
til friðar í félagsheimilinu fóru sum-
ir þeirra sem slegist höfðu í Leikskál-
um á tjaldsvæðið í Vík. Þar voru þeir
með óspektir og fékk lögreglan ófá-
ar upphringingar og tilkynningar um
að enginn svefnfriður væri á tjald-
stæðinu.
Félagsheimilið Leikskálar gegnir
margvíslegu hlutverki á Vík í Mýr-
dal. Þar fer fram félagsstarfsemi
unglinga, auk þess sem eldri borg-
arar og kvenfélagið hafa þar að-
stöðu. Þess utan er félagsheimilið
leigt út til hópa.
Mikil umferð var í umdæmi lög-
reglunnar á Hvolsvelli um helgina og
frá föstudegi til sunnudags stoppaði
lögreglan 24 ökumenn fyrir of hrað-
an akstur. Sá sem ók hraðast mæld-
ist á 165 kílómetra hraða þar sem
hámarkshraði er 90. Þeir sem næstir
komu á eftir honum mældust á 153
kílómetra hraða og á 141 kílómetra
hraða þar sem hámarkshraði er 90.
Varðstjóri segir hraðann vera fárán-
legan og ótrúlega mikinn í ljósi þess
að umferðareftirlit sé öflugt og háar
sektir fyrir að aka svona hratt. Þeir
sem keyra á 165 kílómetra hraða
geta vænst þess að þurfa að greiða
140 þúsund krónur í sekt og sæta að
auki ökuréttindasviptingu.
Það sem kom lögreglumönnum
þó mest á óvart um helgina var að til-
kynnt var um jeppa sem oltið hafði á
Mýrdalssandi. Það þykir kannski ekki
óvenjulegt að bílar velti en ástæðan
þótti sérstök í sumarblíðunni sem
verið hefur að undanförnu. Alla-
vega var hálku kennt um að svo illa
fór. Tveir slösuðust og voru fluttir á
slysadeild.
olivalur@dv.is
Nær tuttugu slógust í Leikskálum
ólæti í Leikskálum allajafna fer friðsamleg s
tarfsemi fram í Leikskálum en um
helgina brutust þar út hópslagsmál.
2
Þrír menn hafa verið úr-
skurðaðir í farbann vegna
hugsanlegs manndráps
sem átti sér stað í byrjun
júní. Þá fannst maður um
þrítugt meðvitundarlaus í
rúmi sínu en samkvæmt heim-
ildum var hann færður þang-
að af tveimur löndum sínum
sem búa og starfa með honum.
Mennirnir eru pólskir verka-
menn sem vinna hér á landi.
Mennirnir sem voru handteknir
segja að þeir hafi komið að
manninum meðvitundarlaus-
um. Viku síðar var hann dáinn
en þá hafði hann legið þungt
haldinn á spítala. Einn maður
var hnepptur í gæsluvarðhald
en á mánudag var hann síðan úrskurðaður í farbann ásamt tveimur
öðrum.
l r dauðdagi
verkamanns
SegiSt
ekkert
muna
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
dv.isbesta rannsóknarblaðamennska ársins
Þrír í farbanni vegna dauða pólsks verkamanns:
Tugþúsundir bæTasT við auglýsT verð - verð á heimasíðu heimsferða segja bara hluTa sögunnar
þriðjudagur 24. júní 2008 dagblaðið vísir 112 tbl. – 98. árg. – verð kr. 295
Lögregla hefur yfirheyrt tíu mannsDularfullur dauðdagi á FrakkastígRannsakað eins og manndrápsmál
DV GEFUR MILLJÓN Farðu inn á dv.is og sláðu inn leyniorð dagsins.
Leyniorð dagsins
Geymið miðann
JONS24MESSA
Við gef
um fim
m
10.000
kr
matark
örfur hv
ern
virkan d
ag
í júní
ÓLétt og
LjÓmaR
Jóhanna vilhJálms-
dóttir og geir sveins-
son eiga von á barni í
desember. Þetta verður
Þeirra fimmta barn.
máL séRa
gunnaRs tiL
saksÓknaRa
FRéttiR
lögreglan á
selfossi vísar máli
séra gunnars bJörnsson-
ar til saksóknara í vikunni
og bíður saksóknara Það
hlutskipti að ákveða hvort
séra gunnar verði ákærður
eða ekki. málið er rannsakað
sem blygðunarsemisbrot
en minnst ein stúlkan
vonar að hann verði
ákærður fyrir al-
varlegri brot.
3
hitt málið
Óðinn Gestsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskvinnsl-
unnar Íslandssögu, segir
það meðvitaða stefnu hjá
sér að ráða pör í vinnu.
Fjöldi þeirra á nú von á
barni og önnur hafa ný-
lega eignast barn. Samfé-
lagið á Suðureyri er því
afar blómlegt og óvenju
stór árgangur sem lítur
dagsins ljós í ár. Starfs-
fólkið kann vel að meta
fjölskylduvæna stefnuna
og starfsmannavelta fyr-
irtækjanna verður minni.
ræður
pör í vinnu
„Það var auðvitað
vonin að fólkið eignað-
ist börn og það hefur
orðið raunin.“
Erla HlynSdÓttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Pörin gefast vel Óðinn gestsson
segir það hafa gefist afar vel að
ráða pör til vinnu og nú sé
starfsfólkið farið að fjölga sér.