Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Qupperneq 4
föstudagur 27. júní 20084 Fréttir DV Sandkorn n Gaddakylfan var veitt með viðhöfn í Iðnó á miðvikudaginn með pompi og prakt. Fyrir utan ritstjóra Mannlífs, Sigurjón M. Egilsson, hélt glæpamamman Margrét Frí- mannsdótt- ir ræðu fyrir verðlaunaaf- hendinguna. Sjálf er hún fangelsis- stýra á Litla- Hrauni og talar að jafn- aði um strákana sína á Hrauninu líkt og móðir talar um syni sína. Sjálf sagðist Margrét hvetja strák- ana sína til þess að skrifa glæp- ina niður á blað og senda inn í keppnina frekar en að fremja þá. Þess vegna verður athyglisvert að sjá hvort fanglesisskáld fæðist á næsta ári. n Aðstoðarkona borgarstjórans, Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, er að hætta hjá borginni. Sennilega er uppsögn hennar blóð- taka fyrir Ólaf F. Magnús- son en hann gerði ráð fyrir að hún yrði aðstoðarkona hans fram í mars á næsta ári. Ástæðan fyrir því að hún er að hætta mun vera sú að Ólöf hyggst opna eigin arkitekta- stofu. Aftur á móti gengur sá orðrómur um borgina þessa dag- ana að Ólafur hafi ekki verið sátt- ur við hana sem fjölmiðlateng- il en Ólafur hefur átt á brattann að sækja í fjölmiðlum og ítrekað komið illa út úr hinum ýmsu við- ræðuþáttum. n Hæstaréttalögmaðurinn og varaþingmaður Sjálfstæðisflokks- ins, Dögg Pálsdóttir, hefur staðið í ströngu á þessu ári. Nú síðast hafa Saga verktakar stefnt henni fyrir héraðs- dóm vegna meintra vangold- inna skulda. Þeir krefj- ast fimmt- án milljóna króna frá varaþing- manninum. Áður fór Saga Capital fjárfestingarbankinn í mál við Dögg og krafðist innsetningar í eignir fyrirtækis Daggar og son- ar hennar. Það mál rataði fyrir Hæstarétt að lokum. Núna hefur fyrirtækið verið tekið til gjald- þrotaskipta og má því með sanni segja að ekki hafi gengið vel hjá henni á krepputímum. Gárung- arnir eru þó miskunnarlausir og segja hæstaréttarlögmann- inn verja meiri tíma í dómsal í eigin mál heldur en vegna vinnu sinnar. n Eignaspjallakrossfaranum Jak- obi Frímanni Magnússyni hefur bæst liðsauki úr óvæntri átt en hann hefur hingað til verið gagn- rýndur fyrir að láta mála yfir list á veggjum borgarinnar. Nú hafa fangar á Kvíabryggju bæst í hóp- inn en þeir eru búnir að fram- leiða bol með Jakobi Frímanni en undir honum stendur: Remove your art. Á íslensku útleggst það sem: Fjarlægðu listina þína! Ísbjarnarblús Skáldið Skrifar Kristján Hreinsson sKáld sKrifar. Alltaf koma upp sögur af dýrum og alltaf eru það dýrin sem samúðina hljóta. Og svo kom í ljós að ísbjörninn var hestur... og svo kom í ljós að ísbjörn-inn var hrútur eða þoka og kannski kemur í ljós einhvern daginn að ís- björninn er naggrís. Hvernig í ósköpunum ætli menn fari að því að álykta sem svo að hófför geti hugsanlega verið spor eftir ísbirni? Og hvernig er hægt að ákveða það að þoka eða hrútur líti út einsog ísbjörn? Jú, kæru lesendur, hér er samsærið opnað og það sem áður var hulið verður í dag sýnilegt. Þið hafið tekið eftir því, að alltaf þegar eitt- hvað bjátar á í efnahagsmálum; þegar krónan veikist og þegar ríkisstjórnin er búin að pissa í alla skó landsmanna koma fréttir af dýrum. Hvað með Stóra Lúkasarmálið? Hvernig var það með hundinn hans Davíðs og hundahald- ið hans Alberts? Tíkur og svanir; kýr og kindur. Kúariða og kyssilegir ráðherrar. Alltaf koma upp sögur af dýrum og alltaf eru það dýrin sem samúðina hljóta. Já, jafnvel á Íslandi þar sem ríkistrúin meinar dýrum inngöngu í sjálft Himnaríki. En einsog landsmenn vita eru eng- in dýr hjá honum Guði. Jæja, áfram með samsæriskenninguna: Í forsætisráðuneytinu er dýravinur sem vinnur við það að koma á kreik sögum af dýr- um þegar allt er í óefni komið hjá ríkisstjórn- inni. Þessi dýravinur er ábyggilega kona, því þær eiga svo auðvelt með að fegra heiminn með einföldum aðgerðum. Ef ástandið er rétt í þann mund að fara í hnút er það smáhundur sem fær samúðina en þeg- ar það er mjög slæmt erum við að tala um ís- birni. Þegar aðsteðjandi vandi okkar er allur til kominn vegna aumingja í útlöndum og vegna þess að menn seldu jöklabréf og svo einnig vegna þess að menn í öðrum löndum kunna ekkert í hagfræði tölum við náttúrlega um ís- birni, því þeir koma með hafís til landsins og eru svona aðsteðjandi vandi. Það er ekki lengur pláss fyrir hærri vexti í seðlabankanum hans Davíðs og það er ekki lengur hægt að skamma vitleysingana sem stjórna okkur, þannig að við höfum komið okkur saman um það þjóðráð að sjá ísbirni hvar sem er og hvenær sem er. Og eftir að menn ætluðu að gefa einum birninum (sem var raunverulegur) deyfilyf um daginn og eftir að menn ákváðu síðan að skjóta skepnuna í bakið fæddist þessi limra: Fyrst buðu þeir bangsanum rús en bár’ann svo dauðan í hús og söguna alla nú sjálfsagt má kalla – hinn sorglega ísbjarnarblús. Forsvarsmenn bókuútgáfunnar Nýhils eru afar ósáttir við styrkveitingar Bókmennta- sjóðs og telja hann hafa brugðist hlutverki sínu. Úthlutunin er hneyksli, segir Viðar Þorsteinsson, stjórnarformaður Nýhils. Njörður Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Bókmenntasjóðs, segir Nýhilsmenn ekki skilja að hlutverk sjóðsins sé margþættara en að styrkja bara nýjan skáldskap. Nýhil kvartar til Þorgerðar „Það að halda því fram að sjóðurinn styrki ekki frumsamdar bókmenntir er alveg í grundvallaratriðum rangt,“ segir Njörður Sigurjónsson, framkvæmda- stjóri Bókmenntasjóðs, um fullyrð- ingar frá Nýhilsmönnum. Nýhilsmenn eru ósáttir við úthlutunina og telja að ekki hafi verið farið að ákvæðum um að styrkja frumsamin verk höfunda. „Það eru ný íslensk skáldverk sem eru hlunnfarin í þessari úthlutun,“ segir Viðar Þorsteinsson, stjórnarformaður hjá Nýhil. Nýhil er íslensk jaðarbóka- útgáfa og félag ungra ljóðskálda sem hefur vakið athygli með nýstárlegum ljóðaupplestrum. Þrír sjóðir runnu saman í einn Bókmenntasjóður varð til þeg- ar þrír eldri sjóðir runnu saman í einn. Menningar-, þýðingar- og bókmenntakynningarsjóður voru sameinaðir undir einum hatti. Hugmyndin með því var að efla bókamenningu. Sjóðurinn úthlutaði 24 milljónum í síðasta mánuði. Viðar segir að það sé skandall að engu hafi verið úthlutað til nýrra verka rithöfunda. „Sjóðurinn hafði auglýst eftir umsóknum um útgáfu- styrki til nýrra íslenskra verka. En svo úthlutar hann engu til slíkra verka og er eiginlega skandall að mínu mati. Það voru miklar vonir bundnar við sjóðinn því það hafa aldrei verið neinir styrkir í boði til útgáfu af þessu tagi hér á landi áður. Svona útgáfa er mest fjárþurfi hér á landi.“ Eins árs gamall sjóður Viðar segir að Nýhil sé ekki vant því að láta vel í sér heyra gagnvart rík- inu. Hins vegar sé þetta hagsmuna- mál fyrir alla yngri rithöfunda. „Því er borið við hjá stóru forlögunum að kostnaðurinn við að gefa út þess- ar fyrstu bækur sem seljast ekki vel sé of mikill. Alveg sérstaklega ljóða- bækur. Hluti af okkar starfsemi hef- ur verið að gefa út ljóðabækur ungra höfunda. Við vitum alveg hversu dýrt það er. Við erum að gefa þetta út í sjálfboðavinnu. Því þykir okkur það vera mikil synd að það sé ekki staðið við þau fyrirheit sem lofað var.“ Njörður segir hins vegar að enn sé verið að þróa Bókmenntasjóð og þegar stórar upphæðir skipti um hendur sé ljóst að það sé ekki hægt að gera öllum til geðs. „Fólk á erfitt með að komast að hjá forlögunum. Við vildum sérstaklega vekja áhuga fólks að sækja um. Einhvern veginn hefur þetta skolast til í eitthvert al- gjört kjaftæði. Ný íslensk skáldverk eru ekki meginatriði sjóðsins. Það er bara eitt af hlutverkum sjóðsins. Ef menn skoða lögin þá er hlutverk sjóðsins margþætt.“ Da Vinci lykillinn fékk styrk Viðar bendir á að nokkrir risar í ís- lenskum ljóðaheimi hafi fengið styrk vegna endurútgefins efnis. „Orðið á götunni hefur lengi verið að sjóðirnir þrír hafi verið vettvangur forlaganna að skipta á milli sín peningum. Það var ekkert verið að hugsa um hvert og eitt verkefni.“ „Sem dæmi get ég nefnt Da Vinci lykilinn. Sú bók er ein mesta met- sölubók allra tíma. Hún fékk opin- beran styrk úr þýðingarsjóði. Þetta er það sem var. Margir bundu vonir við að þessi nýi sjóður myndi breyta þessu. Að það yrðu teknar upp skyn- samlegri áherslur. En það sem gerist er að hann dettur í það far að hann lætur eins og þetta sé enn gamli menningarsjóður. Þetta skiljum við ekki og höfum sent erindi til mennta- málaráðherra. Okkur finnst ástæða til að láta í okkur heyra vegna þess að okkur finnst þetta slæm vinnubrögð. Og ekki í samræmi við lög.“ Njörður bendir hins vegar á að ekki sé hægt að veita öllum styrk. „Það eru ýmis sjónarmið í gangi og það er bara gott mál. Mörg góð verk fengu ekki styrk og það er miður en þannig er það nú bara.“ BENEDikt BóaS hiNRikSSoN blaðamaður skrifar: benni@dv.is Njörður Sigurjónsson njörður er framkvæmda- stjóri Bókmenntasjóðs. óskað eftir íslenskum verkum Bókmenntasjóður óskaði sérstaklega eftir umsóknum frá íslenskum rithöfundum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.