Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Blaðsíða 6
föstudagur 27. júní 20086 Fréttir DV Sandkorn n Auðunn Blöndal, skemmti- kraftur og hrekkjalómur, var einn af þeim sem léku í Stjörnugolf- móti Nova á miðvikudag. Auð- unn lék með föður vinar síns Sveppa. Það vakti athygli marga að Auðunn, sem er yfirleitt þungamiðja brandaranna, hafði sig tiltölulega hægan í veislunni fyrir og eftir mót. Ástæðan var eflaust sú að Auðunn fékk ekki boðskort í byrjun. Heldur lét hann Sveppa vin sinn hringja nokkur símtöl og troða sér inn. Eftir dúk og disk, japl jaml og fuður tókst það að lokum en með naum- ind- um þó. n Annar Auðun, Auðun Helga- son, fékk heldur betur að finna til tevatnsins gegn Breiðabliki ekki alls fyrir löngu. Fékk hann vænt oln- bogaskot frá Prinsinum í liði Blika svo stórsá á honum. Auðun hefur verið sparkspekingur í EM-stofu Þorsteins Joð ásamt Pétri Mart- einssyni og farið á kostum. En vegna olnbogaskotsins þurfti að sminka hann meira en góðu hófi gegnir. Þrátt fyrir góðar og gildar tilraunir förðunardömu Sjón- varpsins tókst ekki alveg að fela hið karlmannlega glóðarauga sem Auðun skartar nú. En það munaði litlu. n FH-ingar voru sáttir í leikslok eftir sigur gegn Val á Vodafone- vellinum á þriðjudag. Ekki voru þó allir FH- ingar jafn- glaðir því háttsettir menn inn- an félags- ins hafa fengið nóg af drykkju og skrílslát- um í stuðningsmannasveitinni Mafíunni. Eftir leik ræddu aðal- menn FH um hvernig væri hægt að koma í veg fyrir að stuðnings- menn liðsins færu yfir til hins liðsins, væru með skrílslæti og létu börn fara að gráta eftir að hafa misst gosið sitt vegna hegð- unar FH-inga. Einnig var talað um hvernig væri hægt að koma í veg fyrir að fullorðnir menn hvettu börn til að öskra F-orðið í átt að dómara og réttu honum löngutöng. n Stuðningsmenn Púma-sveit- arinnar í Keflavík fengu verð- laun fyrir umferðir 1-7. Voru nokkur félög ósátt við þá ákvörðun KSÍ og hafa tjáð sig á vinsælum íþróttasíðun á verald- arvefnum. Stuðnings- menn FH, Fjölnis og KR hafa allir tjáð sig og sagst vera mun betri stuðningsmenn sem láti meira í sér heyra. Aðalmunur- inn er þó sá að stuðningsmenn Keflavíkur eru flestir bláedrú á leikjum liðsins. Eru ekki með óhróður og ljótan munnsöfnuð. Hafa stuðningsmenn KR meðal annars hótað línuverði að bíða fyrir utan eftir honum enda hafi hann verið bölvað fífl. Komið að uppgjöri Gunnar Þorsteinsson, forstöðumaður Krossins, telur hækkandi matvæla- og olíu- verð undanfara hins mikla hruns. Hann vísar í Opinberunarbók Jóhannesar því til stuðnings. Hann segir eina ráðið að vaka og biðja. Sóknarprestur Fríkirkjunnar segir heimsendaspár á slíkum grunni fáránlegar. „Þetta markar upphaf þjáninga- tíma fyrir jörðina alla og þá sem á henni búa,“ segir Gunnar Þorsteins- son, forstöðumaður Krossins, um þá viðsjárverðu tíma sem við lifum. Gunnar vitnar í Opinberunarbók Jóhannesar, sjötta kafla, sjötta vers, því til stuðnings. Hið mikla hrun Í Opinberunarbókinni stendur orðrétt: „Og mitt á meðal veranna fjögurra heyrði ég eins konar rödd er sagði: Mælir hveitis fyrir daglaun og þrír mælar byggs fyrir daglaun, en eigi skalt þú spilla olíunni og vín- inu.“ Gunnar segir versið rætast í hækkandi matvæla- og olíuverði: „Þetta er það sem ritningin talar um. Korn og bygg verður svo dýrt að daglaunamenn geta ekki keypt það. Þetta er að rætast fyrir augum okkar, þegar matarverð hækkar og menn eiga sér ekki björg vegna þess að matur verður dýr. Það er eitt af þeim táknum sem lögð eru til grundvallar hinu mikla hruni sem verða mun. Þarna sé ég þetta biblíulega samhengi sem er alveg ótrúlegt,“ segir Gunnar. Geir gæti bjargað okkur Gunnari þykir mannanna til- raunir til að hafa áhrif á stöðuna hjákátlegar. „Að keyra hér trukka niðri í miðbæ og flauta breytir engu um stöðuna. Það er Guð sem ræð- ur.“ Gunnar telur að með heims- kreppunni séu æðri máttarvöld að reyna að vekja manninn. „Þetta er full ástæða fyrir alla menn til að gera vörutalningu og sjá hvar þeir standa. Við ráðum engu þarna um. Við eigum að hugsa okkar gang og nota vel tímann sem við höfum.“ DV hefur fjallað mikið um hækk- andi bensínverð í vikunni. Gunnar telur, líkt og fram hefur komið, að þar sé um enn ein teiknin að ræða í hinni stóru áætlun Guðs. Auður heimsins safnist til þess landsvæðis þar sem aldingarðurinn var í upp- hafi. „Þetta held ég að sé guðleg ábending til allra um að gæta sín og gera sig klára. Maður spyr sjálfan sig þegar þessar fjármálahremmingar eru um allan heim og enginn ræð- ur við neitt hvort þetta sé þetta loka- hrun sem við eigum von á eða hvort við fáum einhvern frest. Kannski Geir H. Haarde komi því til leiðar.“ Náðarsáttmálanum lýkur Gunnar segir tímaskeiði þess náðarsáttmála sem gerður var með stofnun kristinnar kirkju rúmum þrjátíu árum eftir Krists burð senn að ljúka. „Tímaskeið þessa sáttmála er tvö þúsund ár. Þegar því tíma- skeiði er lokið tekur við nýtt tíma- skeið, það liggur fyrir. Þetta veit öll kristin kirkja, þetta er í trúarjátningunni. Menn hljóta að átta sig á því að náðartíminn er að styttast, síðan verð- ur ákveðið uppgjör og í framhaldinu kemur þús- und ára ríkið, sem er friðarríki. Þá munum við stjórna jörðinni með drottin í broddi fylkingar. Það verður betra stjórnarfar en er á jörð- inni í dag.“ En hvað er hægt að gera þang- að til? „Það sem hægt er að gera er að vaka og biðja, það er ekki flókið,“ segir Gunnar ein- faldlega. Heimsendaspár fáránlegar „Æ, æ,“ voru fyrstu viðbrögð séra Hjartar Magna Jóhannesson- ar, sóknarprests Fríkirkjunnar, þeg- ar blaðamaður sagði honum frá ályktunum Gunnars af Opinber- unarbókinni. „Ég hef ekki áhyggj- ur af þessu. Menn eru búnir í hátt í tvö þúsund ár að lesa mun meira í Opinberunarbókina en hægt er að lesa út úr henni með óskhyggju sinni. Að spá heimsendi á þessum grunni er hreint fáránlegt. Sú kristna trú sem ég legg traust mitt á snýst ekki um að skapa ótta, óör- yggi og sekt- arkennd hjá fólki,“ segir Hjörtur. HafsteiNN GuNNar HaukssoN blaðamaður skrifar hafsteinng@dv.is Gunnar í krossinum „Það er guð sem ræður.“ Hjörtur Magni „að spá heimsendi á þessum grunni er hreint fáránlegt.“ Vilyrði gefið fyrir arabavatni: Arabar fá lóð í Hafnarfirði Arabíska vatnsfyrirtækið Glac- ier World hefur fengið vilyrði fyr- ir lóð í Hellnahrauni í Hafnarfirði en DV greindi frá því fyrir tveimur vikum að arabískir fjárfestar hefðu hug á því að reisa vatnsverksmiðju í Hafnarfirði. Á síðasta bæjarstjórn- arfundi var gefið vilyrði fyrir að Glacier World fengi lóð í Hellna- hrauni 3. Endanlega verður gengið frá lóðarveitingu þegar endanlegur samningur liggur fyrir um vatns- kaup. Fyrirtækið samanstendur af ar- abískum fjárfestum frá Saudí-Arab- íu, Kúveit og Dubai. Það er Magnús Magnússon verkfræðingur sem er í forsvari fyrir fyrirtækið hér á landi. „Þetta er spennandi mál ef vel til tekst en það er aftur á móti á frum- stigi,“ sagði Magnús í viðtali við DV á sínum tíma en áætlað er að vatnsverksmiðj- an muni skapa um 690 störf. Fyrirtækið hyggst síðan flytja hafnfirska vatnið til Mið-Aust- urlanda þar sem það verður sett á markað. „Það er mikið óunnið við þetta mál en okkur líst vel á þetta,“ segir Almar Grímsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins í Hafnarfirði, um málið en hann vildi nákvæm- ari útleggingar á málinu þeg- ar það var lagt fyrir bæjarstjórn nú á mánudaginn. Hann seg- ir bæjarstjórann, Lúðvík Geirs- son, bæjarfulltrúa Samfylk- ingarinnar, hafa lofað að vinna hratt í málinu. Enn á eftir að semja um vatnskaup en stefnt er að því að drykkjarvatni Hafnfirðinga við Kald- árbotna verði tappað á flöskur og þær svo sendar til Mið-Austur- landa. Frekari tíðinda væri að vænta innan fárra vikna en samning- ar standa enn yfir á milli Hafnarfjarðar og Glacier World. konungur sádi-arabíu Konungur sádi-arabíu er abdullah en meðal þeirra sem vilja reisa vatnsverk- smiðju í Hafnarfirði eru sádi- arabískir fjárfestar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.