Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Síða 8
föstudagur 27. júní 20088 Helgarblað DV
Rúmt ár er liðið síðan hvarf hundsins Lúkasar vakti mikla athygli og harðvítugar umræður í netheimum. Þá
var ungur maður sakaður um að hafa misþyrmt Lúkasi þannig að hann hefði drepist. Það reyndist ekki rétt
enda fannst hann illa haldinn tveimur mánuðum síðar og hafði þá verið týndur í óbyggðum. Kristjana Svans-
dóttir, eigandi Lúkasar, þurfti að leggja talsverða vinnu í að byggja Lúkas upp á nýjan leik.
Hræddist
raftæki og
karlmenn
„Ég lét gelda hann áður en hann
slapp á síðasta ári, en það tekur þá
fjóra mánuði að átta sig á því að það
sé búið að gelda þá,“ segir Kristjana
Svansdóttir, eigandi kínverska smá-
hundsins Lúkasar, en rúmt ár er lið-
ið síðan Lúkas týndist á Bíladögum.
Málið náði miklum hæðum í fjöl-
miðlum eftir að óprúttnir aðilar sök-
uðu Helga Rafn Brynjarsson um að
hafa sett Lúkas í íþróttatösku og síð-
an sparkað hann til ólífis. Helgi mátti
þola gífurlegar ofsóknir vegna máls-
ins og fjölmargir reiðir bloggarar for-
dæmdu verknaðinn. Oft var Helga
hótað lífláti á vefsíðum og hálfgerð
sefasýki greip álitsgjafa veraldarvefj-
arins. Málið tók síðan óvænta stefnu
þegar fregnir bárust af því að Lúkas
væri á lífi.
Veiddi Lúkas
„Hann var í svakalega vondu
ástandi þegar við náðum honum að
lokum,“ segir Kristjana sem þurfti að
þola miklar raunir á meðan málið
stóð yfir. Ekki nóg með að hundur-
inn hennar væri horfinn – heldur var
uppi grunur um að hann hefði ver-
ið drepinn á hrottalegan hátt. Þess
vegna voru það gleðifregnir þegar
Kristjana komst að því að hann væri
í raun villtur. Eftir erfiðar tvær vikur
náði hún að veiða hann í búr.
„Þá var bara hálfur sigur unninn
því hann var rosalega hvekktur,“ seg-
ir Kristjana sem upplifði miklar per-
sónubreytingar hjá Lúkasi.
Hræddur við rafmagnstæki
Þegar Lúkas var kominn í hend-
ur fjölskyldunnar fór Kristjana að
taka eftir því að hann var gríðarlega
hvekktur. „Það mátti ekki hreyfa sig
snögglega í kringum hann,“ segir
hún sem dæmi og bætir við að Lúk-
as hafi einnig verið logandi hræddur
við rafmagnstæki. Þar á meðal var ör-
bylgjuofninn á heimilinu, sjónvarpið
og brauðristina. Þá var Lúkas einnig
hræddur við stóra karlmenn, konur
aftur á móti gátu nálgast Lúkas án
þess að hræða úr honum líftóruna.
„Það var ekki gefið að ná hon-
um til baka því hann var meira í ætt
við villidýr heldur en heimilishund,“
segir Kristjana um hið flókna verk-
efni að hlúa að dýrinu.
Smáhundur á kraftfóðri
Lúkas var horaður eftir að hann
fannst og því þurfti Kristjana að setja
hann á svokallað kraftfóður svo að
hann næði kjörþyngd á ný. Síðan var
hann ormahreinsaður og bólusett-
ur. Það var nokkuð um sýkla og plast
í maganum á Lúkasi eftir að hann
fannst en það er vegna þess að hann
nartaði í allt sem á vegi hans varð til
þess að draga fram lífið í óbyggðun-
um.
„Það gekk rosalega vel að fita
hann á ný, eiginlega of vel því hann
var orðinn of þungur um jólin,“ seg-
ir Kristjana hlæjandi en bætir svo við
að hann sé að komast í fantaform
þessa dagana.
Akureyringar rólegir
Aðspurð hvaða áhrif umræðan
á síðasta ári hefði haft á hana sjálfa
segir Kristjana að Akureyringar hafi
tekið málinu með stóískri ró.
„Það var nú aðallega fyrir sunn-
an sem móðursýkin greip um sig,“
segir Kristjana sem vill koma því á
framfæri að sjálf hafi hún aldrei sak-
að piltinn um þann glæp sem hann
var sagður hafa framið. Það hafi ver-
ið bloggararnir sem dæmdu hann án
dóms og laga.
Þegar hún er spurð hvort hún hafi
farið með Lúkas á Bíladaga í ár segist
hún ekki hafa gert það. Sjálf kíkti hún
út en leist illa á ástandið.
„Ég reyndi síðan bara að halda
mig innandyra því þetta virtist ætla
úr böndunum,“ segir hún en það
varð raunin því lögreglan á Akureyri
hafði aldrei séð annað eins og þegar
Bíladagar voru haldnir síðast.
Lúkas á hundasýningu
Aðspurð hvað taki við núna segir
Kristjana: „Við erum bara á leiðinni
á hundasýningu, Lúkas verður ekki
til sýnis en ég hef gaman af þessu
enda kemur til greina að læra eitt-
hvað tengt hundum í framtíðinni.“
Helgi Rafn Brynjarsson kærði þá
sem hótuðu honum á netinu á síð-
asta ári en rannsókn málsins er enn
í gangi enda nær hún til hundrað
manns. Þess má geta að á þessu ári
féll dómur vegna meiðyrða á net-
inu.
VALur grettiSSon
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
„Það gekk rosalega vel að fita hann á ný, eiginlega
of vel því hann var orðinn of þungur um jólin.“
Kristjana knúsar Lúkas
Þurfti að hafa mikið fyrir
því að venja Lúkas við
heimilishald.
Helgi rafn Brynjars-
son flæktist inn í meint
hundsmorð og var
dæmdur án dóms og laga
af bloggsamfélaginu.