Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Qupperneq 12
föstudagur 27. júní 200812 Helgarblað DV
Minni væntingar fólksins í landinu, verðbólga, fall krón-
unnar og svimandi háir stýrivextir eru hluti af skörpum
samdrætti í efnahagslífinu. Flestir finna fyrir ástandinu.
DV skoðar hvernig kreppan kemur við helstu atvinnugrein-
ar í landinu. Margar af blómlegustu atvinnugreinum síð-
ustu ára eru í lægð á meðan þeir sem starfa hjá hinu opin-
bera sigla lygnan sjó í samanburði við margar starfsstéttir.
ER STARFIÐ ÞITT
KREPPUHELT?LífLeg ferðaþjónusta
Skarpur samdráttur í efna-
hagslífinu kemur við flesta. Í
vikunni var gengi krónunnar
lægra en það hefur verið í sjö
ár. Á þessu ári hafa tíu fyrir-
tæki þurft að grípa til hópupp-
sagna, þar af fyrirtæki sem
hafa myndað stoðir atvinnu-
lífsins, svo sem bankar og stór
útgerðarfyrirtæki. Vinnumála-
stofnun gerir ráð fyrir því að
erlendum ríkisborgurum á
vinnumarkaðnum hér á landi
fækki mikið á næstu mánuð-
um. Þeim hefur þegar fækkað
um ríflega eitt þúsund manns
frá því fjöldinn náði hámarki.
Vinnumálastofnun gerir einn-
ig ráð fyrir því að atvinnuleysi
muni aukast mikið með haust-
inu og undir lok þessa árs
verði það komið yfir 2 prósent.
Verðbólgan í júní mælist
12,7 prósent og hækkaði um
0,4 prósent á milli mánaða.
Verðbólgan hefur ekki verið
meiri hér á landi síðan í ágúst
árið 1990, þegar hún mældist
14 prósent.
Þá eykur erfiðara aðgengi
að lánsfé hjá fjármálastofn-
unum enn vanda íslenska
efnahagslífsins. DV fer hér
yfir stöðu margra af helstu
atvinnugreinum samfélagsins
og skoðar hvernig þær standa.
Hvernig kemur efnahags-
ástandið við starfið þitt og
hvernig þolir það kreppuna?
DV leitast við að svara því.
LífLeg ferðaþjónusta
Á sama tíma og bæði stóru
flugfélögin, Icelandair og
Iceland Express, hafa þurft
að draga mikið saman seglin
í millilandaflugi, horfir bet-
ur við ferðaþjónustugeiran-
um innanlands. Margt helst
í hendur við að tryggja ör-
yggi þessarar stéttar. Þannig
virkar lágt gengi krónunnar
gagnvart stærstu gjaldmiðl-
unum hvetjandi á erlenda ferðamenn að koma hingað
til lands. Þegar farþegatölur fyrir maímánuð í
Leifsstöð eru skoðaðar kemur í ljós að farþegum sem komu hing-
að til lands fjölgaði um fimm prósent miðað við maí á síðasta ári.
Nokkur fjöldi erlends ófaglærðs starfsfólks starfar í
ferðaþjónustu og samkvæmt upplýsingum frá Vinnumála-
stofnun, er við því að búast að góð staða verði í atvinnu-
greininni fram í september, en þá gæti komið til þess að erlendu
starfsfólki yrði sagt upp.
Starfsmenn í flugþjónustu hafa farið illa út úr efna-
hagsástandinu. Hátt olíuverð og óhagstætt gengi
gerir það að verkum að dýrt er að fara til útlanda
og finna flugfélögin fyrir því. Á síðustu vikum hafa
verið sagðar fréttir af því að Flugþjónustan á Keflavíkur-
flugvelli hafi sagt upp fimmtungi starfsmanna sinna frá
og með 1. október. Þá hefur Icelandair gripið til hópupp-
sagna og sagt upp hátt í þrjú hundruð starfsmönnum vegna
erfiðleika í rekstri. Meðal þeirra sem hefur verið sagt upp eru
sextíu flugmenn og hundrað og fimmtíu flugfreyjur.
Dýr Dropinn
Sú starfsstétt sem
frægust er orðin fyr-
ir mótmæli vegna
hækkandi olíuverðs
er án efa atvinnu-
bílstjórar. Það er
kannski ekki
furða þar sem
lítrinn af dísil-
olíu hefur
hækkað
um heilar
63 krónur
frá því í júní
í fyrra. Þann
23. júní 2007 var
verðið 129,30 krónur
lítrinn en er nú kominn uppí 192,30 krónur. Það eru þess vegna
ekki bjartir tímar fram undan hjá atvinnubílstjórum en það virðist
ekkert lát vera á hækkun heimsmarkaðsverðs á olíu.
BruðLið Búið hjá Bönkunum
Það blæs ekki
byrlega um
bankastarfs-
menn þessa dag-
ana. Glitnir hef-
ur þurft að grípa
til fjöldaupp-
sagna á síðustu
mánuðum.
Í apríl sagði
bankinn
upp tutt-
ugu og þremur
starfsmönn-
um sínum og í
maí fengu aðrir sextíu og fimm starfsmenn uppsagnarbréf. Eftir
gegndarlaust ofurlaunabruðl æðstu stjórnenda bankanna síðustu
ár hafa menn nú brugðist við og skorið niður. Bankastarfsmenn
geta því ekki átt von á tugmilljóna starfslokasamningum á næst-
unni, líkt og viðgengist hefur.
Dregur saman hjá
iðnaðarmönnum
Á sama tíma og hægist mjög á nýbyggingum og viðskipt-
um með fasteignir, hefur það áhrif á aðra iðnaðarmenn.
Óneitanlega dregst saman hjá pípurum, rafvirkjum og múr-
urum þegar hægist á. Samdrátturinn í stéttinni er vel merkj-
anlegur, því samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun hefur einnig
dregið mikið úr því að erlendir starfsmenn ráði sig til starfa í greinunum og
að sama skapi hafa erlendir starfsmenn horfið á brott úr þessum störfum í
meira mæli en áður. Um það bil fjórðungur allra sem skráðu sig úr landinu
hjá Vinnumálastofnun á þessu ári starfaði í þessum greinum hér á landi.
ískaLDur Byggingariðnaður
Fasteignasalar eru ekki eina starfsstéttin sem finnur fyrir sam-
drætti á fasteignamarkaði. Húsasmiðir og byggingaverktak-
ar finna mjög vel fyrir kreppunni. Margir byggingaverktakar
sitja uppi með óseldar eignir fyrir hundruð milljóna króna.
Á meðan eru lánin fyrir framkvæmdunum ógreidd og staða
þeirra verður afar erfið. Á fyrstu fimm mánuðum ársins hefur
Vinnumálastofnun gefið út 1.200 vottorð fyrir erlent starfsfólk
sem er á leið af landi brott. Vottorðin eru gefin út til að fólkið
eigi rétt á atvinnuleysisbótum fyrst um sinn í heimalandinu og
eru langflestir erlendir ríkisborgarar sem þiggja slík vottorð.
Langflestir þeirra sem fóru úr landi er ófaglært starfsfók og
samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun eru
starfsmenn í byggingariðnaði ríflega helmingur þeirra
sem farið hafa af landi brott. Til samanburðar voru
gefin út jafnmörg vottorð af þessu tagi allt seinasta
ár og það sem af er þessu ári eru útgefnu vottorðin þegar
orðin tvöfalt fleiri heldur en allt árið 2006. Heildarfjöldi
erlendra starfsmanna hér á landi hefur jafnframt dregist
saman hér á landi. Á árunum 2005 og 2006 voru um það bil
helmingur allra erlendra starfsmanna, sem komu til landsins í
byggingariðnaði. Á síðasta ári lækkaði þetta hlutfall niður í 40
prósent og það sem af er ári er það um 35 prósent.
á júganDi niðurLeið