Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Blaðsíða 14
föstudagur 27. júní 200814 Helgarblað DV
?ER STARFIÐ ÞITT KREPPUHELT
Ástandið í efnahagsmálum hefur ólík
áhrif á sjómenn, eftir því hvernig skipum
þeir vinna á. Veiking krónunnar gerir
það að verkum að laun þeirra sem
eru á frystitogurum hækka í krón-
um talið miðað við gengi. Fiskurinn
er seldur á erlenda markaði í
erlendri mynt þannig að kjör
þeirra eru frekar stöðug. Hins
vegar eykst rekstrarkostnaður út-
gerðarinnar vegna hækkandi olíu-
verðs. Þeir sem eru í smábátaútgerð
og þau skip sem landa fyrir frystihúsin á Íslandi eru í erfiðari stöðu. Þar hefur hækk-
andi olíuverð mikil áhrif. Verð fisksins í landinu er ákvarðað af úrskurðarnefnd sjó-
manna og útvegsmanna og sú nefnd kemur saman tvisvar á ári. Verðfall krónunnar
seinustu mánuði hefur þess vegna komið illa við þessa sjómenn. Nýlegur kvótanið-
urskurður kemur einnig mjög illa við þessar útgerðir. Seinustu vikur og mánuði hefur
skipum verið lagt og starfsöryggi þess vegna ekki öruggt.
SkrifStofuleikir
hjá faSteignaSölum
Tilraunir til þess að glæða fasteignamarkaðinn lífi hafa engum árangri
skilað og ein blómlegasta atvinnugrein síðustu ára er sem stendur
undir þykku lagi af ís. Enn er ófyrirséð hvort afnám stimpilgjalda af fyrstu
íbúðarkaupum og sífelldar tilraunir til þess að tala fasteignaverð niður
muni bera árangur. Samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins var
33 kaupsamningum þinglýst á öllu landinu dagana 13. - 19. júní. Til saman-
burðar var 213 kaupsamningum þinglýst á sama tíma í fyrra. Um það bil 140 fast-
eignasölur eru með aðild að Félagi fasteignasala og samkvæmt þessum upplýsing-
um er hægt að áætla að fjórða hver fasteignasala hafi náð að selja eign á tímabilinu.
Þrátt fyrir að verð á áfengi og
tóbaki hafi hækkað stöðugt
frá ársbyrjun eru engin merki
um minnkandi verslun. Frá
því í janúar og fram í júní
hefur vísitala neysluverðs
á áfengi hækkað úr 100 og
upp í 105,1.
Ef tekið er mið af
janúar og febrúar
sést að á milli ára er salan
sífellt að aukast. Árið 2006
var heildarvelta áfeng-
isverslana í þessum tveim-
ur mánuðum 2.334 milljónir
króna. 2007 var veltan svo orðin 2.568 milljónir og í janúar og febrúar 2008 var hún
2.775 milljónir króna. Krepputal og minnkandi væntingar neytenda hafa því ekki leitt
til þess að landsmenn dragi af sér í áfengisneyslu.
Barþjónar örvænta ekki
Efnahagsástandið hefur lítil áhrif
á starfsmenn skólanna í landinu.
Kennarar, skólastjórar, leiðbeinend-
ur, skólaráðgjafar og aðrir þeir er
vinna í skólum landsins eiga það
ekki á hættu að missa vinnuna sína.
Í góðærinu varð þessi stétt að mati
marga eftir í launaþróuninni
en nú eru horfurnar betri.
Kjarasamningur grunnskóla-
kennara er í gildi þar til 31. maí á
næsta ári. Í byrjun þessa mánaðar
hækkuðu laun kennara um 25 þús-
und krónur á mánuði og við upphaf
næsta skólaárs bætast níu þúsund
krónur inn í launatöfluna. Þann fyrsta október hækka síðan öll starfsheiti um einn
launaflokk. Starfsmenn skólakerfisins búa við mikið starfsöryggi, þeir þurfa því ekki
að hafa áhyggjur af stöðu sinni ólíkt fólki úr mörgum öðrum starfsstéttum.
rándýrt að halda tónleika
Góðæri síðustu ára hefur fært Íslendingum hvern stórtónlistar-
manninn á fætur öðrum, sem komið hafa hingað til lands til
þess að halda tónleika. Innflutningur á tónlistarmönnum hefur
ávallt verið áhættusöm starfsgrein, en með óhagstæðu gengi
krónunnar hafa tónleikahaldarar ríka ástæðu til þess að hafa
áhyggjur. Gengið gerir það að verkum að dýrara er að flytja
tónlistarmennina hingað til lands, sem skilar sér til neytenda í
hærra miðaverði. Þannig hefur miðaverð á tónleika rokið upp á
seinustu árum, því áætlað var að tónleikar Bob Dylans hér á landi
hafi kostað um það bil 40 milljónir króna. Það þarf allt að ganga
upp svo ekki fari illa hjá tónleikahöldurum.
kennarar koma úr kuldanum
Árangurslausum fjárnámum
hjá einstaklingum fjölgaði
á fyrstu fjórum mánuðum
ársins samanborið við sama
tímabil í fyrra. Frá janúar til
apríl voru gerð 2.070 árang-
urslaus fjárnám, en á sama
tímabili í fyrra voru ár-
angurslausu fjárnámin
1.956 talsins. Árangurs-
lausum fjárnámum á lögaðila
fækkaði hins vegar líttillega á
milli ára, 868 í 768 á þessu ári.
Á fyrstu fjórum mánuðum
ársins hafa alls 63 einstakl-
ingar verið teknir til gjald-
þrotaskipta, en 62 einstaklingar á sama tímabili í fyrra. Gjaldþrotum lögaðila fækkaði
hins vegar á milli ára úr 237 á seinasta ári niður í 223 á þessu ári.
gjaldþrotum fjölgar ekki
erfiðara fyrir einyrkja