Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Side 22
föstudagur 27. júní 200822 Menning DV
Gyrðir þýðir
Nýlega var gefin út bókin
Flautuleikur álengdar sem er
safn þýddra ljóða eftir sam-
tímahöfunda frá Evrópu og
Norður-Ameríku. Ljóðaþýð-
andi er Gyrðir Elíasson. Mörg
þessara skálda eru þekkt og við-
urkennd,
bæði í
heimalönd-
um sínum
og utan
þeirra, en
fæst þeirra
hafa þó ver-
ið þýdd á ís-
lensku áður.
Af þeim
sem eiga
ljóð í safn-
inu má nefna Michael Ondaatje
og Anne Carson frá Kanada,
Kenneth Rexroth, Bill Holm og
Annie Dillard frá Bandaríkjun-
um, Norman MacCaig, Patrick
Kavanagh og R.S. Thomas frá
Bretlandseyjum, Tékkann Jirí
Wolker og utan af jaðri Evrópu
hljómar rödd hins tyrkneska
Nazims Hikmet.
Tímamót hjá Samtökunum ´78:
Afmæli og ný lög
Tímamót er hjá Samtökunum
´78 en þau fagna þrjátíu ára afmæli
sínu á þessu ári og bjóða til veislu í
Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhús-
inu, í kvöld klukkan níu.
Á morgun er alþjóðlegur bar-
áttudagur hinsegin fólks. Félagar í
samtökunum hafa góða ástæðu til
að fagna deginum því lög um að
prestar og forstöðumenn trúfélaga
fái rétt til þess að gefa saman pör í
staðfesta samvist taka einnig gildi
í dag.
Á hátíðinni verður stanslaust
stuð, líkt og Páll Óskar nefndi í einu
lagi sínu. Meðal þeirra sem koma
fram eru Rasmus Rasmussen og
Líggjan Ólsen en þeir eru meðal
virtustu popptónlistamanna í Fær-
eyjum. Einnig munu Friðrik Ómar,
Eva María og Haffi Haff mæta á
svæðið.
Mannréttindaverðlaun Samtak-
anna ´78 verða veitt í annað skiptið.
Með þeim verðlaunum vill félagið
heiðra einstaklinga, félagasamtök,
fyrirtæki eða stofnanir fyrir fram-
lag í þágu mannréttinda og jafn-
réttis. Margt hefur áunnist á þess-
um þremur áratugum sem liðnir
eru frá stofnun félagsins og marg-
ir lagt sína vinnu í það sem félag-
ið hefur í dag. Með því vill félagið
bjóða landsmenn alla hjartanlega
velkomna í afmælið og aðgangur-
inn ókeypis.
Annika
snýr aftur
Lífstíð er sjöunda sjálfstæða
sagan um Anniku Bengtzon.
Þýðandi bókarinnar er Anna R.
Ingólfsdóttir.
Þegar David
Lindholm,
færasti lög-
reglumaður
Svíþjóðar,
finnst myrtur
í rúmi sínu
fellur grun-
ur á Júlíu
eiginkonu
hans. Júlía
á yfir höfði
sér lífstíðarfangelsi verði hún
fundin sek um morðið. Fjög-
urra ára sonur þeirra er horfinn
sporlaust og er Júlía sterklega
grunuð um að hafa myrt hann
líka. Blaðamaðurinn Annika
Bengtzon rannsakar málið á
sama tíma og hún sjálf liggur
undir grun um að hafa kveikt
í húsinu sínu. Heimur hennar
hrynur meðan hún kafar sífellt
dýpra í ofbeldisfulla og myrka
fortíð hins myrta.
Sandárbókin
komin í kilju
Sandárbókin eftir Gyrðir
Elíasson er nú fáanleg í kilju en
kom upphaflega fyrir síðustu
jól. Bókin fjallar um fráskilinn
málara sem sest að í hjólhýsa-
byggð og hyggst einbeita sér að
því að mála
tré. Hann
hefur orðið
fyrir ýms-
um skakka-
föllum í
lífinu og
dvöl hans
í þessari
sérkenni-
legu byggð
er öðrum
þræði hugsuð til að freista þess
að öðlast hugarró. Ýmislegt
reynist þó standa í veginum.
Gyrðir Elíasson er af mörgum
talinn vera einn listfengasti rit-
höfundur þjóðarinnar og hefur
sent frá sér fjölda bóka á síð-
ustu árum.
„Ég er nánast fæddur á lúðra-
sveitaræfingu,“ segir Ari Bragi eftir
að hann og blaðamaður hafa fund-
ið sér sæti á efri hæð Priksins og
fengið sér sopa af ilmandi kaffinu.
„Það lá nokkuð beint við þar sem
bæði pabbi og föðurbróðir minn
eru trompetleikarar. Það eina sem
er spilað í fjölskylduboðum og svo-
leiðis er trompetmúsík. Ég þoldi
hana ekki þegar ég var lítill og ætl-
aði því aldrei að verða trompetleik-
ari. En þegar maður prófaði þetta
varð bara ekki aftur snúið.“
Óhætt er að segja að hljómsveit-
arferill Ara hafi byrjað snemma.
„Þegar ég var sjö ára fór ég í fyrsta
sinn til útlanda með lúðrasveit þar
sem ég spilaði á slagverk, kúabjöll-
ur og svoleiðis. Og strax þarna var
ég farinn að fikta við að lesa nót-
ur,“ segir Ari en þess má geta að all-
ir hinir krakkarnir í hljómsveitinni
voru tíu árum eldri.
Forsetaviðurkenning egóbúst
Eins og venjan er í tónlistarnámi
byrjaði Ari að læra á blokkflautu en
færði sig fljótlega yfir í klarinett og
svo túbu. „Þegar ég var níu eða tíu
ára fékk ég heiðursviðurkenning-
una Hvatningarverðlaun til ungra
Íslendinga, sem forseti Íslands af-
henti, því mér hafði gengið svo vel
í tónlistarnáminu. Það var svolít-
ið egóbúst. Ég ætlaði alltaf bara að
vera í fótbolta eða handbolta, sá
framtíðina í því. En þarna má segja
að það fari að breytast.“
Móðir Ara spilar ekki á hljóðfæri
Menning
Hann er yngsti
Íslendingurinn sem
útskrifast hefur úr
FÍH. Hann fór í
fyrsta sinn til út-
landa með lúðra-
sveit aðeins sjö ára.
Hann er nýkominn
inn í einn virtasta
listaháskóla Banda-
ríkjanna. Og Bubbi
Morthens kallaði
hann á dögunum
einn besta trompet-
leikara þjóðarinn-
ar. Blaðamaður DV
spjallaði við tromp-
etundrið Ara Braga
Kárason á Prikinu
á dögunum.
Ari Bragi Kárason „Þegar ég var níu eða tíu ára fékk
ég heiðursviðurkenninguna Hvatningarverðlaun til
ungra íslendinga, sem forseti íslands afhenti, því mér
hafði gengið svo vel í tónlistarnáminu. Það var
svolítið egóbúst. Ég ætlaði alltaf bara að vera í
fótbolta eða handbolta, sá framtíðina í því. En þarna
má segja að það fari að breytast.“
Veisla
Ný lög í dag geta samkyn-
hneigðir fengið staðfesta samvist.
Trompet-
leikari á leið á toppinn