Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Side 32
föstudagur 27. júní 200832 Helgarblað DV Sumar myndir koma manni í gott Skap Þótt sumarið sé ekki beint tíminn til að leggjast í sjónvarpsgláp eru alltaf nokkrar myndir sem koma manni í sumarfílinginn. dv tók saman íslenskar myndir sem ættu að koma flestum í gott skap. veggfóður var eins konar tímamótamynd. táningar flykktust á myndina sumarið 1992. Það var enginn jafnheitur og baltasar kormákur á þeim tíma. Hann átti heiminn sem hinn dullarfulli lass, sem var einstaklega fámáll en aðlaðandi. steinn ármann magnússon lék óþokkann og klisjuna sveppa, sem tíndi sveppi á umferðareyjum og safnaði myndum af öllum stelpunum sem hann hafði tælt. dóra takefusa lék andreu sem tældi til sín karlmenn á meðan ingibjörg stefánsdóttir lék hina saklausu sól, söngkonuna sem þráði að meika það. Hljómsveitin pís of keik lék stóran part í myndinni sjálfri. júlíus kemp var meðlimur í sveitinni ásamt ingibjörgu stefáns, og mána svavarssyni. einmana og vinafár drengur tekur málin í sínar hendur og teiknar sér vin. vinurinn pappírs pési vaknar til lífsins og upphefst þá mikið ævintýri. pappírs pési aðstoðar drenginn við að eignast vini og kennir honum góð lífsgildi. pappírs pési lendir í miklum háska þegar hann festist á milli dagblaða og endar í ruslinu. taka vinirnir sig þá saman og leggast á eitt við að bjarga honum. pappírs pési er barnakvikmynd byggð á skáldsögu Herdísar egilsdóttur og leikstýrt af ara kristinssyni. myndin var send í forval óskarsins árið 1991. sá sem ekki kemst í gott skap við að horfa á með á allt á hreinu er annaðhvort gerður úr stáli eða er finnskur í aðra ættina. Þessi mynd stuðmanna, sem ágúst guðmundsson leikstýrði, hefur þann eiginleika að geta skemmt landsmönnum jafnmikið í dag og þegar hún var frumsýnd fyrir meira en aldarfjórðungi. marga ódauðlega „one linera“, til að mynda „Það verður engin helvítis rúta, það verður langferðabíll!“ atriðið þar sem eggert Þorleifsson bregður sér í hlutverk miðils er svo á meðal fyndnustu atriða íslenskrar kvikmyndasögu. Það geta eflaust flestir sem hafa séð þessa mynd verið sammála um það að hér er á ferðinni ein fyndnasta íslenska kvikmynd sem gerð hefur verið. myndin var frumsýnd árið 2000 og fjallar um tóta, hina týpísku íslensku fótboltabullu sem er alltaf á leiðinni að meika það. einn daginn fær tóti þá frábæru viðskiptahugmynd að byrja innflutning á ópal-sígarettum frá búlgaríu en allt gengur á afturfótunum í þeim málunum. meðal leikara í myndinni eru Þórhallur sverrisson sem leikur tóta, jón gnarr, laufey brá og Hafdís Huld. eftirminnileg setning úr myndinni er þegar jón gnarr hreytir út úr sér: „konan mín er sko engin hóra!“ dalalíf frá árinu 1984 fjallar um þá félaga Þór og danna sem þeir karl ágúst og eggert Þorleifsson léku og hvernig þeim tekst að reka sveitabæ meðan bóndi nokkur skellir sér í sumarfrí til svíþjóðar. Þeir fá vinnuna út á það að sannfæra bóndann um að þeir séu algjörir snillingar þegar kemur að búskap en annað kemur þó í ljós. við fylgjumst með þeim félögum reyna með ótrúlegum og vægast sagt skoplegum hætti að hafa hemil á málunum í sveitinni á sama tíma og þeir fá góða viðskiptahugmynd til að græða nú örlítið á blessuðum búskapnum. einstaklega fyndið er þegar þeir ákveða að viðra aðeins hænurnar og hleypa þeim út og þegar þeim finnst sniðugra að sprauta bara lit á rollurnar til að merkja þær í stað þess að gata í eyru þeirra. allar stúlkurnar sem elskuðu bókina keyptu sér miða í forsölu á dís. álfrún örnólfsdóttir fékk það veigamikla hlutverk að vekja til lífs hina yndislegu dís úr samnefndri skáldsögu eftir silju Hauks, oddnýju sturludóttur og birnu önnu björnsdóttur. sagan gerist sumarið 2000 þar sem dís leikur á als oddi, vinnur á Hótel borg og djammar á kaffibarnum. dís sagði sögu reykvískra stúlkna á þessum tíma. Það var silja Hauksdóttir, einn af höfundum bókarinnar, sem leikstýrði kvikmyndinni. allar helstu leikkonur landsins koma fram í þessari sannkölluðu stelpumynd.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.