Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Qupperneq 39
DV Sport föstudagur 27. júní 2008 39
Weah mælir með adebayor fyrrverandi framherji
aC Milan og besti knattspyrnumaður í heimi eitt sinn,
george Weah, hefur sagt sínu gamla félagi að kaupa
Emmanuel adebayor frá arsenal. Bæði Barcelona og
Milan hafa verið orðuð við tógó-manninn sem skoraði
30 mörk í öllum keppnum fyrir arsenal á síðasta tíma-
bili.„Hann er með góða tækni, sterkur og skorar mikið
af mörkum. Ef Milan hefur möguleika á að kaupa hann
myndi ég segja að hann væri góð kaup fyrir félagið,“
segir Weah
Thuram í PSG franski varnarmaðurinn Lilian thuram er á leið til Paris st. germain frá
Barcelona. Hann hefur komist að samkomulagi um eins árs samning við franska liðið.
thuram á 142 leiki að baki fyrir franska landsliðið en hefur nú lagt landsliðsskóna á
hilluna 37 ára gamall eftir að frakklandi mistókst að komast upp úr riðlakeppni Evr-
ópumótsins. thuram hefur leikið með Parma, juventus og Barcelona auk þess sem
hann lék með Mónakó síðast þegar hann var í frakklandi árið 1996. thuram lék 40
leiki með Barcelona en skoraði ekkert mark.
LESTU NÚNA SPORTIÐ Á DV.IS!
Oftast brOtið á
Ballack er ekki eingöngu grófur. Baráttumenn lenda oft í
átökum og kappinn er einnig sá leikmaður sem ofast hefur
verið brotið á í keppninni. Þó ber að geta þess að Luca toni
og Valon Behrami lentu oft í tæklingum varnarmanna.
Behrami lék einungis þrjá leiki á mótinu og því var ofast
brotið á honum að meðaltali.
leikmaður brot mín. leiknar lið
Michael Ballack 14 471 mín Þýskaland
Luca toni 14 403 mín ítalía
Valon Behrami 14 272 mín sviss
gökhan Inler 13 282 mín sviss
giorgos Karagounis 13 220 mín grikkland
EM í knattspyrnu lýkur senn. Sparkspekingar eru sammála um það að mótið í Sviss og Austurríki hafi verið
með fjörlegasta móti. Leikirnir hafa margir verið skemmtilegir, dramatískir og spennandi. Tölfræði er orðin
órjúfanlegur þáttur af greiningu knattspyrnuleikja og DV skoðaði nokkrar athyglisverðar staðreyndir um
Evrópukeppnina árið 2008. Hafa ber í huga að leikur Spánar og Rússlands er ekki hluti af þessari tölfræði.
EM í töluM
flest mörk
skOruð að
meðaltali
Hollendingar og Þjóðverjar tróna
á toppi þessa lista en þess ber að
geta að þýska stálið hefur leikið
einum leik meira en Hollendingar.
Hinir appelsínugulu fóru
hamförum í riðlakeppninni og
skoruðu níu mörk. flestir voru á
því að tími þeirra væri kominn til
þess að vinna titilinn 20 árum eftir
að þeir gerðu það síðast. svo var
þó ekki og rússar stöðvuðu
vindmyllurnar með stæl í 8 liða
úrslitum.
lið mörk meðaltal
Holland 10 2.5
Þýskaland 10 2
spánn 8 2
tyrkland 8 1.6
Portúgal 7 1.75
rússland 7 1.75
flest skOt að marki
spánverjar hafa verið sókndjarfir á EM. framlínumenn-
irnir hafa verið iðnir við kolann og eru óhræddir við að
láta vaða á markið. rússarnir hafa einnig unnið hug og
hjörtu allra sem horft hafa á EM. skemmtilegur
sóknarleikur þeirra endurspeglast í mörgum skotum í
átt að marki.
Skot að marki Skot meðaltal
spánn 84 21
rússland 79 19,75
Holland 78 19,5
Portúgal 65 16,25
tyrkland 64 12,8
Oftast brOtið
af sér
tyrkirnir eru harðsnúnir. Þeir gefast
ekki upp í leikjum sínum og komust
í undanúrslit þó þeir hafi einungis
verið samtals 8 mínútur yfir í leikjum
sínum á EM. Þar af voru 6 mínútur í
leiknum við Þjóðverja sem þeir
töpuðu í undanúrslitum.
lið brot meðaltal
tyrkland 102 20,4
spánn 81 20,25
rússland 77 19,25
Holland 76 19
Þýskaland 71 14,2
skOt á mark
Pavluchencko er einnig sá leikmaður sem oftast hefur hitt á
markið. david Villa sem er markahæstur í keppninni með 4 mörk
er hins vegar næstur honum. 40 prósent þeirra skota sem ratað
hafa á markið hafa endað í netinu hjá spánverjanum snjalla.
leikmaður Skot mín. leiknar lið
roman Pavlyuchenko 11 302 mín rússland
david Villa 10 311 mín spánn
Cristiano ronaldo 8 281 mín Portúgal
ruud van nistelrooy 7 287 mín Holland
Wesley sneijder 6 310 mín Holland
Oftast brOtið af sér
Mikil átök eru í kringum þýska miðjutröllið Michael
Ballack. Ballack er með þann vafasama heiður að hafa
brotið oftast allra af sér í keppninni.
leikmaður brot mín. leiknar lið
Michael Ballack 17 471mín Þýskaland
david Villa 14 311 mín spánn
tuncay sanli 12 410 mín tyrkland
Yuri Zhirkov 12 399 mín rússland
roman Pavlyuchenko 12 302 mín rússland
Oftast brOtið á
Það er erfitt að stoppa þýska stálið. í það
minnsta virðast varnarmenn annarra liða
þurfa að beita bellibrögðum til þess að
stöðva þá. Þó oftast hafi verið brotið á
þeim í keppninni, ber að taka það fram
að Þjóðverjar eru búnir að leika fleiri leiki
en margir flestir aðrir. Oftast er búið að
brjóta á ítölum að meðaltali, eða 20
sinnum í leik. Brauðfætur segja sumir,
illstöðvandi segja aðrir.
lið brot meðaltal
Þýskaland 82 16,4
ítalía 80 20
Króatía 78 19,5
Portúgal 78 19,5
spánn 78 19,5
david Villa
Er marksækinn.
mörk fengin á sig
tyrkirnir lögðu allt undir í leikjum sínum sem voru
nær allir æsispennandi. Þeirra hugmyndafræði var
þessi. Það skiptir ekki máli hve mörg mörk við
fáum á okkur, við skorum fleiri. öllum að óvörum
voru það tékkar og frakkar sem fengu flest mörk
að meðaltali á sig.
lið mörk á sig meðaltal
tyrkland 9 1,8
tékkland 6 2
frakkland 6 2
Portúgal 6 1,5
Þýskaland 6 1,2
flest skOt að marki
roman Pavlyuchnko er einn þeirra rússa sem skapað hefur
sér nafn í keppninni. Marksækinn sóknarmaður sem hver
vörnin á fætur öðrum hefur lent í vandræðum með. Er
óhræddur við að skjóta og hefur skorað 3 mörk á EM.
leikmaður skot mín. leiknar lið
roman Pavlyuchenko 24 302 mín rússland
Cristiano ronaldo 20 281 mín Portúgal
Wesley sneijder 19 310 mín. Holland
Luca toni 16 403 mín. ítalía
david Villa 16 311 min spánn
roman Pavlyu-
chenkoEr ein af
óvæntum stjörnum á
EM í knattspyrnu.michael ballack
Er mikill baráttuhundur.
hollendingar
Voru mark-
sæknir á EM.
Valon behrami
Mátti oft liggja
eftir tæklingar
varnarmanna.
Spánverjar Eru að sanna
að sóknarbolti skilar sér.
Tyrkir harðir fatih
terim, þjálfari tyrkja, er
harður í horn að taka
eins og leikmennirnir.
oftast brotið
á Þjóðverjum
Þjóðverjar hafa
fengið að finna
til tevatnsins.
Petr Cech Er
óvanur því að fá svo
mörg mörk á sig.
StórSkota-
liðið boðað