Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Qupperneq 52

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Qupperneq 52
föstudagur 27. júní 200852 Helgarblað DV umsjón: kolbrún pálína helgadóttir kobrun@dv.is Kaldir KaffidryKKir fyrir þá sem kunna að meta gott kaffi getur verið skemmtileg tilbreyting að fá sér kalda kaffidrykki, þá sérstaklega þegar vel viðrar. inni á heimasíðu kaffitárs má finna gómsætar uppskriftir að slíkum drykkjum. klakakaffi n 5 kaffiskeiðar (10 msk.) mikið brennt kaffi. n 1/2 lítri vatn n 2 glös klakar n klakar í fjögur glös n 8 msk. kaffirjómi hellið upp á kaffi á venjulegan máta. að því búnu eru 2 glös af klökum sett út í kaffið. kaffið kólnar hratt og þynnist mjög út svo að það verður hæfilega sterkt. á meðan kaffið kólnar þarf að fylla fjögur glös með klökum og hella síðan kaffi í þau. svo er 2 matskeiðum af kaffirjóma rennt yfir ísmolana og röri stungið í hvert glas. og þá er drykkurinn tilbúinn. sumarsÆla n 1/2 bolli heitt súkkulaði n 1/2 bolli sterkt uppáhellt kaffi n 1 tsk. náttúrulegt daVinci- jarðarberjasíróp n smá þeyttur rjómi. n skreytt með jarðarberjum og jafnvel súkkulaðispæni sírópið er sett í bolla, síðan kaffið og súkkulaðið. nauðsynlegt að hræra aðeins í bollanum áður en rjómanum er skellt ofan á. einnig er gott að setja rommsíróp í staðinn fyrir jarðarberjasírópið, og skiptir þá drykkurinn um nafn og nefnist Vínarvals. kaldur gustur n 1 bolli espressókaffi n 2 tsk. flórsykur n 1 tsk. daVinci-karamellusíróp n 1 tsk. daVinci-vanillusíróp n 1/2 bolli rjómi eða kaffirjómi n klakar espressókaffið lagað í mokka- könnu eða með espressóvél. kaffið látið kólna aðeins. kaldur rjóminn strokkaður. nokkrir klakar settir í hristara ásamt kaffinu, sírópinu og flórsykrinum. hrist vel. klakar settir í há glös og kaffinu hellt yfir. að síðustu er rjómanum hellt varlega yfir. skreytt með súkkulaðispæni. & ínMatur Hindberja- túnfisksalat fyrir 4-6 n 3 lárperur n safi úr 1/2 sítrónu n 200 g blandað salat n 2 dósir túnfiskur í olíu n 1 askja hindber n 15 basilíkulauf, gróft rifin n 4 msk. ólífuolía n 3 msk. hindberjaedik n 3 msk. rjómi n 1 1/2 msk. rifinn appelsínubörkur n 1 msk. appelsínusafi n 1 tsk. fljótandi hunang n salt og svartur pipar afhýðið lárperur og fjarlægið steininn úr með hníf, skerið í fallega báta og dreypið sítrónusafa yfir. Þvoið salat og setjið á fallegan disk eða fat. hellið olíu af túnfiski og blandið honum saman við salatið. setjið svo lárperuna varlega saman við ásamt hindberjum og basilíku. blandið ólífuolíu, hindberja- ediki, rjóma, appelsínuberki, appelsínu- safa og hunangi saman í lítilli skál og hrærið öllu mjög vel saman. hellið sósunni yfir salatið og kryddið með salti og pipar. berið fram sem meðlæti eða eitt og sér með góðu brauði. Það getur verið tilbreyting að setja t.d. appelsínur í salatið í stað hindberja, einnig er gott að setja t.d. ristaðar furuhnetur eða graskersfræ út í salatið. Allir geta eldað „Þetta er einföld uppskrift sem hefur reynst mér vel og hef- ur um langt skeið verið með- al vinsælustu réttanna hjá okk- ur í Tjöruhúsinu. Kosturinn við þennan rétt er að allir ættu að geta eldað hann, ófeimnir, og mér er það ljúft að deila hon- um með öðrum,“ segir Magn- ús Hauksson, veitingamaður á Tjöruhúsinu í Neðstakaupstað á Ísafirði. Pönnusteiktur koli n kolaflök, eins fersk og hugsast getur. Þeim er velt upp úr hveiti sem hefur verið kryddað með þeim kryddtegundum sem hendi eru næst, til dæmis fiskikryddi, provencial, salti, pipar, sítrónupipar, aromati eða álíka kryddi eftir smekk. n olía er snarphituð á stórri pönnu og flökin steikt í tvær til fjórar mínútur eftir þykkt flakanna, með sárið niður. Þegar fiskinum hefur verið snúið við á pönnunni er gott að lækka hitann eða jafnvel taka pönnuna af hellunni. Vænni klípu af smjöri er bætt út á pönnuna ásamt fínt saxaðri ferskri steinselju. kreistið svo safa úr hálfri sítrónu yfir pönnuna. n Þegar þarna er komið sögu er lykilatriði að dreifa lítilræði af cayenne-pipar yfir smjörið og fiskinn í pönnunni. n gott er að bera réttinn fram í snar- pheitri pönnunni og þá er ágætt að setja soðnar kartöflur og kirsuberjatómata með í pönnuna í lokin. annað meðlæti má vera salat eftir smekk hvers og eins. Þessi uppskrift virkar í það minnsta jafn vel með ýmsum öðrum feitum fiski, svo sem steinbít, hlýra eða smálúðu. ef flökin eru þykk þá lengist steikingin og mikilvægt er að brenna ekki smjörið. íslenskt smjör hefur reynst mér alveg sérdeilis vel til steikingar og þegar rétt hitastig er notað koma kostirnir fram, því smjörið freyðir fallega og ilmar. „Ég skora á Ólaf Þorkel Helgason sem næsta matgæðing. Ólafur er afburðakokkur og lesendur ættu ekki að verða sviknir.“M atg æð ing ur inn uppskrift: hanna ingibjörg arnarsdóttir mynd: kristinn magnússon Vasaklútabrellan Þvoðu alltaf nýjan litaðan vefnað sér og ef þörf krefur, handþvoðu í nokkur fyrstu skiptin. hvenær hefur umfram liturinn þvegist úr? prófaðu það með vasaklútsbrellunni. Þvoðu hvítan vasaklút með lituðu flíkinni. ef vasa- klúturinn er enn hvítur gefur flíkin ekki frá sér lit. Í BoÐi GestGJAfAns Spörum en eldum flott eru orð Gestgjafans að þessu sinni. Í nýjasta tölublaði Gestgjafans eru lesendum gefnar góðar hugmyndir að ódýrum en flottum réttum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.