Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Blaðsíða 55
Nafn?
„Introbeats (Forgotten Lores).“
Starf?
„DJ, upptökustjóri og afgreiðslumaður í Skífunni á
Laugavegi.“
Stíllinn þinn?
„Stíll? Ég veit nú ekki með það en ætli ég sé ekki svona
hiphop, skater-kombó.“
Allir ættu að...?
„Mæta á öll U.N.I.T.Y. hiphop-kvöldin sem eru einu
sinni í mánuði á 22.“
Hvað er ómissandi að eiga?
„Mat.“
Hvað keyptir þú þér síðast?
„Tilboð aldarinnar á Hamborgarabúllunni.“
Hvert fórst þú síðast í ferðalag og í hvaða tilgangi?
„Ég held að það lengsta sem ég hef farið eftir að ég flutti
heim frá Danmörku sé suður í Hafnarfjörð í Tacobell
missjón.“
Náttúruperlur á Íslandi?
„Neskaupstaður og allt þar í kring.“
Uppáhaldsflíkin í fataskápnum?
„„Turn It Up (A Little Louder!)“-bolurinn minn, þótt ég
sé ekki oft í honum þessa dagana.“
Hvenær hefur þú það best?
„Þegar ég er saddur.“
Lumar þú á góðu tískuheilræði?
„Ekki fara í eitthvað sem þér finnst ljótt.“
DV Tíska föstudagur 27. júní 2008 55
Introbeats
Persónan
Victoria Beckham er þekkt fyrir að ganga á
háum hælum. Þessi kona gengur á
óvenjulega háum hælum. Margir velta því
fyrir sér hvernig daman fer að þessu, hvað
þá ef hún fær sér í aðra tána. Konan á án
efa heilt herbergi bara undir skóna sína.
Hún sést aldrei tvisvar í sömu skónum.
Victoria Beckham hefur margoft sagt það í
viðtölum að hún hati að ganga í flatbotna
skóm, en svo virðist sem frúin sé eitthvað
að skipta um skoðun. Kannski er það öll
sólin í Kaliforníu sem hefur þessi áhrif á
hana, en um daginn náðist mynd af
Victoriu sjálfri í víðum gallabuxum og,
undirbúið ykkur, í flip-flop-sandölum.
frú Beckham fór ekki bara í sandala,
heldur mestu lummusandala sem
fyrirfinnast. Það er samt gott að vita að
konan er með opinn hug
og tilbúin að breyta til.
SNiLLd Í útiLegUNNi Það ættu sko allar stúlkur
sem eru á leiðinni á Hróarskelduhátíðina eða bara í
útilegu í sumar að hafa með sér það sem til þarf til að
farðinn fari nú ekki allur fjandans til. Því alvöru dömur
vilja jú alveg vera smart þótt þær gisti í tjaldi. Eitt af
því sem er einstaklega sniðugt í útilegusnyrtibudd-
una er Cleansing tips frá MaC. Þetta eru eins konar
eyrnapinnar með augnfarðahreinsi á og eru því gríð-
arlega hentugir til að strjúka í kringum augun þegar
maskarinn byrjar að leka.
AldreI segjA
AldreI
Í gömlum skóm
Af mömmu
Victoria Beckham hét því að ganga
aldrei í flatbotna skóm,
Of háir stundum þegar
Victoria er á of háum
hælum stendur hún
furðulega og það sést.
Regínustíllinn
regína Ósk var á
bleikum hælum í
Eurovision og
Victoria á alveg
eins bleikum
nokkrum dögum
seinna. Hennar eru
samt aðeins hærri.
Aldrei flatbotna Victoria
Beckham hélt því fram.
Neonpía úff,
hefur einhver
séð jafnæpandi
kjól og skó?
Flatbotna sandalar
Hver hefði trúað því
að Victoria Beckham
myndi einhvern
tímann láta sjá sig í
sandölum?
15 sentímetrar Ætli
Victoria sé ekki með
skemmda fætur eftir
alla þessa hæla. djörf í silfur-litum skóm.
Í Louboutin Beckham-
frúin á spækuðum Christian
Louboutin-hælum.
ekki „trendsetter“
frú Beckham er alltaf
vel til höfð, en hún er
ekki alltaf í flottustu
skónum.
dV-mynd Ásgeir Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
-hvað er að frétta?