Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Page 58
föstudagur 27. júní 200858 Helgarblað DV
Tónlist
Miðasala við innganginn
síðastliðin ár hefur alltaf verið uppselt á Hróars-
keldu-hátíðina rúmum mánuði áður en hátíðin
hefst. í ár hefur miðasalan hins vegar ekki gengið
alveg jafn vel og því verða miðar seldir við inn-
ganginn í þetta skiptið. Hugsanlega má kenna háu
miðaverði um það að ekki sé orðið uppselt en þeir
sem hugsa sér að kaupa miða við innganginn ættu
þó að vita að miðinn verður fimm þúsund krónum
dýrari við innganginn.umsjón: krista Hall krista@dv.is
Hjartadrottn-
ingin komin út
Hljómsveitin Motion Boys
hefur nú skellt nýjasta lagi
sínu, Queen of Hearts, inn á
Myspace-síðu sína: myspace.
com/motionboys. Lagið kemur
auk þess út á smáskífu í dag og
verður fáanlegt til niðurhals af
bæði tonlist.is og Grapewire.
net. Hljómsveitin hefur hingað
til sent frá sér lögin Waiting to
Happen, Hold Me Closer to
Your Heart og Steal Your Love
sem náðu töluverðum vin-
sældum. Nú vinna strákarnir í
Motion Boys hörðum höndum
að því að klára fyrstu breiðskífu
sína sem væntanleg er í haust
og adáendur sveitarinnar hafa
beðið með mikilli eftirvænt-
ingu.
HHHH
„Ég er að spila á milli Sigur Rós-
ar og Bjarkar svo maður er náttúr-
lega á einhvern máta eins og kræki-
ber í helvíti en maður verður bara
að finna einhverja lausn á því,“ seg-
ir Ólöf Arnalds sem kemur fram á
Náttúrutónleikunum í Laugardaln-
um á morgun. Ólöf hefur samið sér-
stakan baráttusöng í tilefni dagsins
sem nefnist Af stað og vonast til að
sem flestir taki undir í viðlaginu.
„Þetta lag kom bara til mín núna
fyrir tónleikana. Það þykir nú ekk-
ert voðalega fínt og er kannski ekki
beint „inni“ í dag að gera baráttu-
söngva en ég hugsaði bara með mér
að fyrst maður væri nú að fara að
spila á baráttutónleikum á annað
borð þá gæti maður allt eins tekið
það alla leið. Mér fannst þetta líka
bara góð leið fyrir mig til að leggja
mitt af mörkum og ég ætla að reyna
að sameina allan hópinn í söng í
viðlaginu. Það er svo rosalega ein-
falt. Textinn er bara: Af stað, af stað á
nýjan stað og lagið ósköp einfalt svo
ég vona að flestir taki undir.“
Ólöf með nýtt efni
Ólöf ætlar að eigin sögn að spila
meira af nýju efni á tónleikunum
enda vinnur hún nú að gerð sinn-
ar annarrar breiðskífu. „Ég ætla að
taka tvö cover-lög og spila fleiri ný
lög heldur en gömul en ég er að
byrja að máta nýja efnið fyrir nýju
plötuna. Ef allt gengur að óskum
kemur hún út fyrir næstu jól.“
Í byrjun árs eignaðist Ólöf lít-
inn gutta og aðspurð hvernig gangi
að sameina móðurhlutverkið og
tónlistina svarar hún: „Mér finnst
allt hafa gengið mér í haginn síðan
strákurinn kom í heiminn. Það fylg-
ir því svo mikil gæfa að eiga barn.
Svo er maðurinn minn í fæðing-
arorlofi núna og þegar það koma
svona álagstímar eins og núna fyr-
ir tónleikana þá er hann rosalega
mikið með hann. Svo á ég líka mjög
góða að.“
Ólöf segist að sjálfsögðu búast
við því að snáðinn mæti á tónleik-
ana á morgun og hlýði á mömmu
enda tónleikarnir hugsaðir fyrir alla
fjölskylduna.
stærstu tónleikar Íslandssög-
unar
Diljá Ámundadóttir, ein úr hópi
tónleikahaldara, tekur í sama streng
og Ólöf og hvetur alla fjölskylduna
til að mæta á tónleikana. „Það er al-
veg tilvalið fyrir fjölskyldur að eiga
saman góðan dag í Laugardalnum
en það er bæði ókeypis í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinn og í sund í Laug-
ardalslauginni og opið alveg fram á
miðnætti. Við hvetjum líka alla til að
koma ýmist hjólandi, gangandi eða
í strætó þar sem bílastæðin eru af
skornum skammti.“
Tónleikasvæðið verður opnað
klukkan fimm en þá hefja strák-
arnir í Ghostdigital og listamað-
urinn Finnbogi Pétursson leikinn.
„Þeir ætla að vera með umhverfis-
hljóðverk í brekkunni. Klukkan sjö
stígur Sigur Rós á svið og spilar til
kortér yfir átta, Ólöf Arnalds kem-
ur svo með gítarinn sinn og spilar í
hálftíma og Björk byrjar klukkan níu
og verður með rúmlega klukkutíma
prógramm. Öll dagskráin ætti því að
vera búin um klukkan tíu, í síðasta
lagi hálfellefu.“
Aðspurð hvað reiknað sé með
mörgum gestum á tónleikana svar-
ar Diljá: „Ég reikna allavega með
tuttugu til tuttugu og fimm þúsund
manns en það eru alls konar tölur
í gangi. Án efa geri ég ráð fyrir því
að þetta verði stærstu tónleikar Ís-
landssögunnar.“
Þeir sem vilja hita sig upp fyrir
tónleikana og hlusta á baráttusöng-
inn hennar Ólafar geta farið inn á
heimasíðuna: http://www.nattura.
info/Olof_Arnalds_AfStad.mp3
krista@dv.is
Þýskt þungarokk í
hæsta gæðaflokki
Þýska þungarokkssveitin
Contradiction er væntanleg á
Klakann og ætlar að spila á
þrennum tónleikum víðs vegar
um landið. Hljómsveitin var
stofnuð í Wuppertal í Þýska-
landi árið 1989 og gaf út sína
fyrstu plötu fjórum árum
seinna. Á þeim tíma var
þungarokkið ekki uppáhalds-
stefna tónlistartímaritanna og
fór því lítið fyrir sveitinni fyrr en
árið 2003 þegar sveitin gaf út
sína þriðju breiðskífu, Contra-
minated. Í kjölfarið spilaði
sveitin á yfir sjötíu tónleikum á
tveimur árum og hefur frægðar-
sól sveitarinnar risið ört eftir
útgáfu fjórðu og fimmtu skífu
hennar. Fimmta platan sem
nefnist The Warchitect hefur
fengið frábæra dóma í þekktum
rokktímaritum, Meðal annars
einkunnina 9,5 af 10 í Metal
Revolution þar sem platan var
sögð vera plata mánaðarins.
Contradiction hefur einnig
fengið frábæra dóma fyrir
sviðsframkomu og því má búast
við ógleymanlegum tónleikum
fyrir sanna þungarokksunnend-
ur.Hljómsveitin spilar 11. júlí á
þungarokkshátíðinni Eistna-
flugi í Neskaupstað ásamt
rjómanum af íslenskum
þungarokkurum, meðal annars
goðsögnunum í HAM. 13. júlí
mæta þeir svo ferskir á Húsavík
þar sem þeir troða upp á Gamla
Bauk en hljómsveitirnar Dark
Harvest, Atrum, Innvortis og
Disturbing Boner sjá um
upphitun. Daginn eftir verður
svo slegið upp heljarinnar
tónleikum í Hellinum, Tónlist-
arþróunarmiðstöðinni með
Contradiction, Severed Crotch,
Agent Fresco og Dark Harvest.
Ekkert aldurstakmark verður á
tónleikunum 13. og 14. júlí og
er miðaverð þúsund krónur við
dyrnar. Húsið verður opnað
klukkan 18.00 í bæði skiptin og
fyrsta band stígur á svið
klukkan 18.30. Athygli er vakin
á að tónleikarnir í Reykjavík eru
búnir snemma, eða um klukkan
21, þar sem bandið heldur af
landi brott síðar um kvöldið.
krista@dv.is
Contradiction með þrenna tónleika:
Contradiction frá
Þýskalandi spilar á
íslandi í júlí.
Kasabian í
teKnóið
Breska hljómsveitin Kasa-
bian hefur nú tekið óvænta
stefnu í tónlistarsköpun sinni
en að sögn gítarleikarans Ser-
ges Pizzorno er nýja platan
með teknó-ívafi. „Tónlistin
sem við erum að gera á rætur
sínar að rekja til teknósins og
danstónlistarinnar en er auk
þess undir áhrifum frá sjöunda
áratugnum.“ Forsprakki sveit-
arinnar, Tom Meighan, segir
að platan sé sú besta sem þeir
hafi sent frá sér hingað til. „Við
erum náttúrlega að keppa við
síðustu plötuna okkar sem var
með hinn stóra titil Empire svo
þessi varð að vera betri.“
Sameinast í
baráttusöng
Ólöf Arnalds spilar
ásamt Björk og Sig-
ur Rós á Náttúru-
tónleikunum í Laug-
ardalnum á morgun.
Hún samdi sérstak-
an baráttusöng í til-
efni dagsins sem all-
ir geta sungið með.
Tónlistarkonan Ólöf
arnalds Ákvað að semja
baráttusöng í tilefni
tónleikanna á morgun.
Diljá Ámundadóttir , ein úr hópi
tónleikahaldara
segir tónleikana á morgun án efa
verða þá stærstu í íslandssögunni.
sólótónleikar
albarns
Damon Albarn ætlar að
koma fram á tónleikum í
London 5. júlí næstkomandi
og syngja lög af sinni fyrstu
sólóplötu. Damon segir að það
hafi síður en svo verið auðvelt
fyrir hann að ætla að flytja
þessi lög, hann hafi nefnilega
þurft að ferðast alla leið til Afr-
íku til að hafa uppi á tónlistar-
manninum sem spilaði í ein-
hverjum af lögunum. „Ég hef
ekki svo mikið sem kíkt á þessi
lög síðustu sex árin. Við þurft-
um að fara alla leið til Sahara
til að finna fólkið sem spilaði
með mér á plötunni. Þetta fólk
bjó úti um allt en það er ótrú-
legt hversu auðvelt er að finna
fólk ef þú ert með rétta fólkið
að leita með þér,“ segir söngv-
arinn.