Listin að lifa - 01.06.2006, Qupperneq 7
og trúlofaði okkur Valgerði dóttur sína.
Trúlega hefur hún verið með á æfingu í
það skiptið. Ég þori að fullyrða að síðan
höfum við ekki hist. En ég tók þetta hátíð-
lega og mér er þessi fyrsta trúlofun mín
minnisstæð allar götur síðan þó að kær-
astan sé því miður gleymd nema nafnið.
Foreldrar mínir stofnuðu nýbýli þarna
á sléttunni 1927, en 1943 vorum við allt
í einu orðin Reykvíkingar án þess að
hafa hreyft okkur spönn ffá rassi eða
annað til sakar unnið. Um líkt leyti eign-
aðist Mosfellshreppur land Lágafells
vestan þjóðvegar og skipti því í skika und-
ir nokkur nýbýli. Foreldrar mínir fengu
einn bútinn og bjartan vordag árið 1946
vorum við sest að við Hulduhólana vestan
undir Lágafelli, með Úlfarsfellið fyrir aug-
unum þar sem það er tilkomumest. Orðin
Mosfellingar aftur og farin að stofna
nýtt nýbýli. Ég, sem hafði hafið mennta-
feril minn i Laugarnesskóla og notið til
þess þjónustu skólabíls, þurfti nú sjálfur
að ganga (eða hjóla) í hina áttina, alla
leið að Brúarlandi. Félagsskapurinn var
hinn besti þar líka og sumpart gamlir
vinir sem einnig höfðu fengið að fylgja
feðrum sínum á söngæfingar. Lærimeist-
ararnir Lárus Halldórsson skólastjóri og
Klara Klængsdóttir reyndust engu lakari
en Magnús Éinarsson frá Laxnesi, sem var
kennari minn í Laugarnesskólanum.
Brúarland - hús með mikla
mannlífssögu
Brúarland var merkilegur staður.
Bygging hússins hófst 1922 en fjármagn
leyfði ekki meira en kjallarann að sinni.
Þar hófst kennsla í barnaskólanum þá um
haustið og var í fýrsta sinn sem barna-
fræðsla í sveitinni hafði fastan samastað.
Húsið þótti lágkúrulegt og ljótt og ort var:
Hús var reist við héraðsbraut,
hreppur Mosfells á það.
Það cetti að standa ofan í laut
svo enginn þyrfti að sjá það.
Haustið 1929 var húsið fullgert. Þá kvað
við annan streng:
A Brúarlandi byggð var höll,
barnaskóli friður.
Hann cetti aðflytjast upp á jjöll
svo fengi að sjá hann lýður.
Þetta hús var skóli sveitarinnar næstu
áratugina. Ennfremur samkomustaður
hennar hvort heldur var til skemmtunar
eða alvarlegra funda. Auk þess átti Lárus
skólastjóri þar heima lengi vel með stóra
í átt að miðbæ Mosfellsbæjar með Varmárskóla í forgrunni. Blái turninn íyrir miðri mynd er Kjarni,
sem hýsir m.a. skrifstofur bæjarstjórnar, heilsugæslustöðina, bókasafnið, apótekið, Bónus og ÁTVR.
Handan við sér á Lágafellið, en yfir það gnæfir Úlfarsfell.
fj ölskyldu og margt fólk annað tengt honum
og konu hans Kristínu Magnúsdóttur frá
Mosfelli. Þar að auki voru skólastofur
gjarnan leigðar dvalargestum á sumrin
vel fram á fimmta áratuginn. Sjálfsagt
þótti meðan þess var kostur að kennarar
ættu líka heima í húsinu. Mér er til efs að
nokkurt hús í Mosfellsbæ eigi jafn volduga
og fjölbreytta mannlifssögu. Sem betur
fer tók Magnús Lárusson Halldórssonar
hana saman í stórum dráttum og setti á
blað árið 1983, bjargaði henni þar með frá
glötun. Hafi hann sæll gjört.
Þarna í kvosinni, ofurlítið ofar með
Varmá, gerðist líka verulegur kafli atvinnu-
sögu Islands. Ullarverksmiðjan Álafoss tók
þar til starfa árið 1896. Fallkraftur fossins
sneri öxli sem lá í gegnum verksmiðjuhúsið
en um hann reimar sem knúðu tæki henn-
ar. Rafmagn var ekki enn komið til sögu
á landinu. Álafossverksmiðjan átti eftir að
vera býsna stór vinnustaður á íslenskan
mælikvarða allt fram á miðjan síðari hluta
20. aldar, svo þekkt að um tíma var nafn
Mosfellssveitar í hættu. Áætlunarbíllinn í
Mosfellssveit var kallaður Álafossrútan
og þegar hér var stofnað sérstakt læknis-
hérað var það nefnt Álafosslæknishérað.
Reykvikingar fóru í ferðalög á sunnu-
dögum alla leið upp að Álafossi og höfðu
með sér nesti; fyrir kom að þeir færu jafn-
vel á laugardegi með tjald og létu fyrir
berast alla helgina ef veðrið var gott.
Fyrsta sundhöll landsins
Margt merkisfólk kom við sögu á
Álafossi meðan allt var þar í blóma. Varla
er samt á nokkurn hallað þó nefnt sé nafn
Sigurjóns Péturssonar - Sigurjóns á Ála-
fossi, sem kom að verksmiðjunni 1917
og stjórnaði rekstri hennar til dauðadags
1955. Fyrir utan verksmiðjureksturinn
var Sigurjón mikill íþróttaunnandi og -iðk-
andi. Að hans undirlagi tók starfsfólkið
að stunda reglubundna leikfimi og jafnvel
íþróttir og er ekki vitað um svo markvissa
vinnustaðalíkamsrækt annars staðar fyrr.
Ofan við Álafossinn hafði verið sett
upp uppistöðulón til vatnsmiðlunar.
Vatnið í því var ylvolgt meðan hverirnir
efra voru enn óvirkjaðir. Þar kom Sigur-
jón upp búningsaðstöðu fyrir fólkið og
kenndi sjálfur sund til að byrja með, setti
líka upp bretti til að stinga sér af. En hann
lét ekki þar við sitja heldur reisti fyrstu
sundhöll á Islandi einhvern tíma á fjórða
áratugnum neðar með Varmá og þar
lærðu allir Mosfellingar og margir fleiri
að synda allt þar til Varmárlaug kom til
skjalanna árið 1964, þegar uppbygging
mennta- og íþróttamiðstöðvar að Varmá
hófst. En fyrsta sundhöll landsins stendur
enn á Álafossi og hefur nú fengið annað
hlutverk: er upptökustúdíó hljómsveitar-
innar Sigurrósar.
Fikrum okkur áfram upp með Varmá og
förum þá fyrir neðan garð á Reykjalundi,
sem tók til starfa sem vinnuheimili berkla-
sjúklinga á miðjum fimmta áratugnum.
Þar stóð herskálakampur mannlaus eftir
að herinn fór. Menn sáu í hendi sér að taf-
arlaust mátti nýta braggana sem bráða-
birgðahúsnæði til endurhæfingar sjúklinga
°g byggja síðan nýtt og betra eftir efnum
og ástæðum. En frá því er gerr sagt annars
staðar í þessu blaði.
Á svipuðum slóðum er líka að finna
dælustöð hitaveitunnar. Árið 1933 var